Alþýðublaðið - 14.02.1963, Qupperneq 2
*
SIMjoit.-'. uUi J. Astþórsson (áb) og Benedikt Gröndal,—ABstoOarritstJórl
Siörgvlo GuBmuncísson. •- Fréttastjórt: Slgvaldi Hjálmarsson. — Símar:
14 900 14 902 — 14 903 Auglýsingasíml: 14 906 — Aðsetur: AiÞýðuhúsiö.
— Prentsmiðja AlþýBublaÖsms, Hverfisgötu 8-10 — Askriftargjald kr. 65.00
& mánuöl t lausasöiu kr. 4 00 eint. Otgefandl: Alþýöuflokkutinn
Hver er með hverium?
, BÖRN Á VISSUM ALDRI 'hafa mjög gaman af
því, þegar piltar og stúlkur byrja örlítið að draga
sig saman. Finnst þeim spennandi að gera hróp
I ’hvert að öðru eða kríta á húsveggi til dæmis „Ein-
: ár og Ólafía eru hjón“ eða eitthvað slíkt.
Undanfamar vikur hafa alþingismenn þjóðar
innar í rauninni skemmt sér við svipaða iðju. Mikl
ar umræður hafa orðið um frumvarp um áætlun-
arbúskap, og hafa þær snúizt um flest annað en
efni frumvarpsins. Hefur verið rætt fram og aft-
ur um stjórnmál síðustu 20—30 ára.
■t r
I þessum umræðum hafa þingmenn keppzt um
að auglýsa, að þessi flokkur eða hinn hafi leyni-
legt samband við einhvern annan eða sterka löng-
un til samstarfs við komma, krata, íhald eða hvað
þykir við eiga hverju sinni.
Einar Olgeirsson hefur sakað framsóknar-
imenn um að vera tækifærissihna, róttæka í stjóm
arandstöðu, en fljóta í hjónarúmið hjá íhaldinu,
'Úvenær sem tækifæri býðst og reynast afturhalds-
samur sérhagsmuna'flokkur eftir það.
! Þórarinn Þórarinsson hefur keþpzt um að
* sanna, að leynileg mök séu milli kommúnista og
íhaldsins. Hafi þeir verið á alvarlegum stefnu-
kpótum 1958 og muni nú draga sig saman við
minnsta tækifæri.
Hannibal Vlaldimarsson hefur lýst yfir, að
Alþýðuflokkurinn hafi slegið öll met í íhaldssam-
vinnu — og til viðbótar gaf hann þær upplýsing-
ar, að framsóknarmenn mundu á þessu vori ekki
,kæra sig um að afneita samstarfi við kommún-
dsta.
Ef saklaus hlustandi ætti að trúa öllum þess-
«m mönnum, hlyti hann að komast að þeirri nið-
'Urstöðu, að tölulvert lauslæti ríkti í herbúðum
stjórnmálaflokkanna. Að vissu leyti er það rétt.
Stjórnkerfi okkar hefur ekki staðizt nema með
ðamsteypustjórnum, og állir flobkar hafa ein-
hvern tíma haft samstarf við álla hina.
1 Frajmsóknarflokkurinn, sem nú þyíkist allra
flokka róttækastur, hefur starfað með íhaldinu
fengur en nokkur annar flokkur. Alþýðuflokkar
nafa víða um ‘lönd, í Austurríki, Sviss, á Ítalíu, í
þýzku ríkjunum og, víðar, unnið með hægriflokk-
UBi — og hafa einnig gert það hér á landi. Is-
íenzkir kommúnistar hafa setið í stjórn með í-
kaldi — og eru vafalaust eini kommúnistaflokk-
’<jir í Evrópu, sem það hefur gert.
Umræður og heitstrengingar á þessu sviðí
Kafa því lítil áhrif á greinda kjósendur. Þeir
dæma stjórnmálin eftir öðrum atriðum, málefn-
'ám og framkvæmd þeirra. Þann dóm óttast Al-
þýðuflokkurinn ekki.
2 M. febrúar 1963 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Þetta er svefnsófinn sem hentar yður
Þægileg hvíla á nóttunni — Glæsilegur sófi á daginn
HÚSGAGNAVERZLUN AUSTURBÆIAR
Skólavörðustíg 16 Sími 24620
HANNES
Á HORNINU
★ Reykjavík — Hafnar-
fjörður.
★ Tjarnir beggja kaups
staða.
★ Gagnrýni á Hafnfirð-
inga.
★ Halda menn að vorið sé
komið?
VEGFARANDI SKRIFAR: „Éff
veit að göturnar í Reykjavík eru
víða illa gerðar og erfitt að gera
þær þannig úr garði, að þaer séu
hæfar nýjum íbúðahvcrfum. Þetta
er ef til vill eðlilegt, þegar um stór
aukna byggð er að ræða, en verra
er þegar gatnagerð er vanrækt svo
áratugum skiptir í gömlmn íbúða-
liverfum.
TJÖRNIN í REYKJAVÍK er til
mikillar fegurðarprýði og oft á góð
viðrisdögum unaðsstaður fyrir bæj
arbúa, enda hefur, fyrir alllöngu,
verið gengið svo vel frá götum um-
hverfis hana, að til fyrirmyndar er.
Þetta er góðra gjalda vert og ber
að geta þess, ekki síður en annars,
sem fer úr hömlu, því að ekki er
ádeila einhlít, ef ekki fylgir viður-
kenning á því, sem vel er af hendl
leyst. ;
Ég FÓR AÐ HUGSA um þetta
á sunnudaginn var, þegar ég ók til
Hafnarfjarðar og komst að tjörn-
inni þar. Aðra eins forsmón hef ég
ekki séð. Til dæmis er ástandið
þannig við brúna við tjörnina, að
minnsta kosti öðrum megin, að þa5
ætti að loka henni vegna slysa-
hættu — og vona ég að bæjarfó-
geti fari á staðinn og loki hennl
áður en slys ver'ða.
ÞARNA MEGIN við brúna er
vegurinn — ef veg skyldi kalla,
hruninn og aflíðandi brekka niður
í vatnið. Þarna — og raunar víðar
Frámh. á 13. síöu
/CWtVraW Til AlþýSublaSsins,
(jppáXiOTD Reykjavík
Ég óska aö gerast áskrifandi að Alþýðublaainii
Nafn ...........................................
Heimilisfang ................................