Alþýðublaðið - 02.03.1963, Síða 3
Fölsk viðvörun
O.A.S. manna
PARIS, 1. marz (NTB-Reuter).
Yfirgefa varð í dagr dómssalinn,
þar sem fram fara réttarliöld í
máli 14 OAS-manna, er ákærðir
eru fyrir þátttöku í banatilræð-
inu misheppnaða gegn de Gaulle
forseta í ágrúst í fyrra, þegar ó-
þekktur maður hringdi í síma og
tilkynnti að húsið yrði sprengt í
loft upp.
Aðvörunin kom fram þegar hlé
hafði verið gert á málaferlunum.
þrátt fyrir ítarlega leit fannst
ekkert sprengiefni í húsinu.
Mikill viðbúnaður var hafiTur
í dag þegar de Gaulle forseti fór
frá París í dag til sveitaseturs síns
í Colombes-deux—Eglises, austur
af París. Öflugur lögregluvörður
var á leiðinni frá Slysee-höllinni
til þyrluflugvallar nokkurs, en for
setinn fór með þyrlu til sveitaset-
urs síns. Þyrla frá frönsku lög-
regiunni fór á eftir þyrlu forset-
ans alla leið.
Paul Stengl, forstjóri Ebenwolf
hótelsins í Múnchen, þar sem talið
er að OAS-foringjanum Antoine
Argoud hafi verið rænt, sagði í
dag, að manns nokkurs hefði verið
saknað á hótelinu í nokkra daga.
Nafn mannsins er franskt eftir
gestabók hótelsins að dæma.
Lögreglan rannsakar hvort það
geti hafa verið Argoud, sem rænt
var frá hótelinu.
Póstmenn í Finn-
landi í verkfalli
SAMKVÆMT símskeyti, sem
póst- og símamálastjórninni barst
í dag, 1. mprz frá Finnlandi, hef-
ur sendingu og móttöku pósts
verið hætt þar á miðnætti 1.
marz vegna verkfalls póstmanna.
Má því búast við töfum á pósti ■
til og frá Finnlandi.
Póst- og símamálastjórnin,
1. marz 1963.
Athugasemd frá
kvikmyndahúsaeigendum
Högni Egilsson kvikmyndagagn-
rýnandi Alþýðublaðsins las fyrir
nokkru mikinn reiðilestur í út-
varpi um skaðsemi kvikmynda,
sem sýndar eru börnum hér á
landi.
Nú hefur hann birt þennan boð-
skap í Alþýðublaðinu. Skilst
manni helzt, að umræddar sýning-
ar séu á leiðinni með að valda
æsku landsins óbætanlegu tjóni á
sál og líkama. Sem betur fer mun
þó eitt ofsagt, en annað missagt
Orkideuuppboð
á Pressuballi
PRESSUBALL Blaðamannafé-
lags íslands verður á Hótel Sögu
í kvöld og hefst kl. 7,00 með borð
haldi. Gunnar G. Cchram, formað-
ur Blaðamannafélagsins setur
liófið. Gunnar Gunnarsson skáld,
flytur ræðu, Svala Nielsen syngur,
leikararnir Gunnar Eyjólfsson og
Bessi Bjarnason flytja nýjan þátt
til skemmtunar eftir Harald J.
Ilamar, blaðamann, Kristinn Halls
son syngur skopkviðlinga eftir
blaðamennina Halldór Blöndal og
Stefán Jónsson, — og að lokum
verður stiginn dans.
Á miðnætti verður uppboð á
orkideum, sem próf. Níels Dungal
hefur ræktað í gróðurhúsi sínu.
í sambandi við uppboðið á orki-
deunum verður happdrætti, þann-
ið, að hver sá. sem kaupir orkideu
fær happdrættismiða, en vinningur
í happdrættinu verður ágóðinn af
sölu orkideanna.
í þessum fræðum, án þess að vér
viljum á nokkurn hátt bera í
bætifláka fyrir slæmar kvikmynd-
ir, af þeim er vissulega nóg, en
hins vegar er ekki við forráða-
menn islenzkra kvikmyndahúsa að
sakast í þessu efni, þeir ráða
ekki gerð myndanna.
En vér viljum harðlega mót-
mæla getsökum og dylgjum í garð
kvikmyndaeftirlitsins, frú Aðal-
björg Sigurðardóttir hefur aðal-
lega annast það undanfarin ár og
rækt það af mikilli samvizkusemi,
eins og lög standa til, sama er að
segja um þá aðra er þessu eftir-
liti hafa gegnt.
Fyrst rætt er um þessi mál'á
annað borð, er rétt að þeim sé
haslaður víðari vettvangur og
gætu þá framhaldsumræður m. a.
lotið að því að sumir þeirra, sem
hæst tala um skaðsemi kúreka-
mynda og Indíánamynda af ame-
rískri gerð, berjast nú með oddi
og egg fyrir því, að þessar sömu
myndir séu sendar inn á hvert
heimili með aðstoð sjónvarps. —
, Varla bætir það svefn og sálar-
| ró barnanna. Þá er það margra
j manna mál í þessari borg að leik-
! rit þau, sem nú t. d. eru sýnd í
öllum leikhúsum borgarinnar séu
engar barnaþulur, eru þau þó
friáls aðgöngu fyrir böm, — og
myndi ekki sitthvað í efni út-
varnsins vera þess eðlis, að vafa-
samt barnafóður mætti teljast, að
j ekki sé minnst á útgáfu vafasamra
I reifara í tímarits og bókarformi.
, íokum vilium vér taka það
fram. að vér fögnum gagnrvni á
j kvikmvndum en viljum mælast til
j þess. að fnllri sanngirni. sé beitt
0a menn m'ssi ekki sjónar af
! skótrinum fyrir trjánum.
I Með *>«kk fvrir birtinguna.
FAiasr kvikmyndahúsaeig-
enda.
PARÍS, 1. marz.
250 þúsund námaverka-
menn í Frakklandi hafa Iagt
nið'ur vinnu og aðrir verka-
menn hafa gert samúðar-
verkfall eða orðið að leggja
niður vinnu vegna verkfalls
námaverkamanna. Franska
stjórnin hefur tilkynnt, að
ef verkamenn mæta ekki til
vinnu á mánudag, muni hún
neyðast til að láta gefa út
réttarúrskurð, en við það
munu margir verkamenn
eiga það á hættu að missa
atvinnu sína, eða að þeir
verði látnir sæta dagsektum.
Hin þrjú verkalýðssamtök
Frakklands hafa lýst yfir
stuðningi við verkfallið, sem
sagt er að sé sumpart gert
til þess að tryggja bætt kjör
og sumpart til þess að verja
verkfallsrétt verkamanna.
Herlið hefur verið sent til
verkfallssvæðanna. Um 9/10
námaverkamanna munu
styðja verkfallið.
Kínverjar hörfa
frá landamærum
Peking, 1. marz.
Kínverska stjórnin tilkynnti í
dag, að Iokið væri brottflutningi
kínverskra hersveita við landa-
mæri Indlands, frá svæðum, sem
K nverjar höfðu áður en þeir
lýstu yfir vopnahléi í haust. Kín
verjar segja, að hersveitir þeirra
hafi hörfað til stöðva, sem þeir
höfðu 7. nóvember 1959, eða -20
km. innan raunverulegs yfirráða-
svæðis þeirra.
Kínverjar segja, að allar her-
sveitir þeirra séu nú komnar
aftur fyrir stöðvar sem þær höfðu
8. september 1962. Indverjar
hafa sagt, að þeir séu fúsir til
viðræðna við Kínverja þegar
hersveitir þeirra hafa hörfað aft
ur til þessara stöðva, en þaðan
gerðu þeir sókn s na inn í Ind-
land í haust.
Efri deildin i
Bonn staðfestir
öxul-samninginn
Bonn, 1. marz.
Efri deild vestur-þýzka þingsins
staðfesti í dag samstarfssáttmála
Frakka og V-Þjóðverja.
Samningurinn var staðfestur
með 7 atkvæðum en 3 sátu hjá.
í Efri deildinni eiga sæti fulltrú-
ar fylkjanna í V-Þýzkalandi, þrír
frá hinum fjölmennari en tveir
frá hinum. Hvert fylki hefur eitt
atkvæði. Þeir, sem sátu hjá, voru
frá Hamborg, Hessen og Neðra
Saxlandi, en þar fara jafnaðar-
menn með völdin.
Adenauer sagði í ræðu sem hann
hélt í efri deildinni þar sem hann
mælti með tillögu Kristilegra
demókrata um fullgildingu samn
ingsins, að þó að hann ætti nokkra
sök á viðræðuslitunum í Brússel
væri hann fylgjandi aðild Breta
að Efnahagsbandalaginu.
Hann sagði, að leysa yrði nokk
ur vandamál í sambandi við að-
ildina, en enginn vafi væri á því,
að Bretar mundu gerast aðilar fyrr
eða síðar.
Um samning Frakka og Vestur-
Þjóðverja sagði kanzlarinn, að
hann mundi ekki brjóta í bága við
skuldbindingar og réttindi Vestur
Þjóðverja í NATO eða EBE.
Kanzlarinn kvað viðræðusliiin
í Brússel hafa komið sér mjög á
óvart. Skömmu áður hefði hann
rætt við de Gaulle forseta í París
og skilist að de Gaulle reiknaði
einnig með því, að Bretar yrðn
aðilar að EBE.
Fangageymslur bæjarins vorn
orðnar troðfullar fyrir kl. 12 á
miðnætti í nótt. Lögreglan greindi
blaðinu svo frá, að um óveijumikla
ölvun væri að ræða og kallar lög
reglan þó ekki allt öinmu sína á
föstudagskvöldum. En í gærkvöldi
fóru saman föstudagur og mánaðar
mót, cvo að ekki var von á góðu;
Kínverjar viljá
framhald deiBna
PEKING, 1. marz (NTB-Reuter).
Kínverski kommúnistalokkurinn
hvatti í dag kommúnistaflokka í
öðrum löndum að leggja fram sjón
armið Kínverja í hugmyndafræði-
deilunni. Þar með hefur flokkur-
inn á áhrifamikinn hátt lýst þvi
yfir, að hann hyggist halda áfram
kappræðum um hugmyndafræði
Æskulýösdagur
þjóðkirkjunnar
HINN árlegi Æskulýðsdagur
liinnar íslenzku þjóðkirkju er nk.
sunnudag, 3. marz, verða þá
Æskulýðsguðsþjónustur með sér-
stöku sniði, kvöldvökur í ýmsum
Talið að flón-
elshlíf hafi
valdið slysinu
í BLAÐINU í gær var frétt um
bifreið, sem ók út af veginum hjá
Fagradalsskriðum. í fréttinni var
skýrt frá því, að bifreiðarstjórinn
hefði talið, að stýrið hefði bilað.
Eftir nákvæmari rannsókn kom
engin bilun í ljós á stýrisvél eða
stýrisgangi. Talið er líklcgast, að
bflstjórinn hafi misst vald yfir
bílnum vegna flónelshlífar, sem
var á stýrinu sjálfu, og var
mjög hál.
söfnuðum. Útvarpsdagskrá síð-
degis og merki seld víða um land.
Þetta er fimmta árið sem kirkj-
an hefur sinn sérstaka æskulýðs-
dag. Undanfarin ár hefur unga
fólkið tekið í hina útréttu hönd
safnaðarleiðtoganna og flykkzt í
sóknarkirkjurnar. Er fyrirkomu-
lag og með þeim hætti, að öllum
verður auðveld og eðlilegt að
vera virkari þátttakendur í guðs-
þjónustunni heldur en oft vill
verða. Eru prentaðar messuskrár
afhentar hverjum kirkjugesti við
kirkjudyr, en á þessum blöðum
eru öll messusvörin. Er þess
vænzt, að kirkjugestir flytji svörin
og syngi sálmana. Þá munu einn-
ig ungmenni lesa pistil og guð-
spjall dagsins og biðja inngöngu-
bænina. Verða þessar guðsþjón-
ustur í flestum kirkjum landsins,
annað hvort núna um helgina eða
næstu sunnudaga, þar sem svo
hasar til, að prestur getur ekki
messað á öllum kirkjum presta-
kallsins sama daginn.
Framh. á 15. síðu
fyrir opnum tjöldum. Þetta stríð
ir gegn sjónarmiði sovézka komm-
únistaflokksins, sem vill forðast
deilur fyrir opnum tjöldum.
Það var hin opinbera frétta-
stofa Kínverja, sem birti útdrátt
úr grein í tímaritinu „Rauði fán-
inn.“ í grein þessari er því hald-
ið fram, að andstæðingar kín-
verskra kommúnista í kommúnista
hreyfingunni banni blöðum að
skýra frá sjónarmiðum Kínverja í
deilunni. Þá er kommúnistahreyf-
ingin sökuð um að trufla með kröft
ugum útvarpsstöðvum útvarpssend
ingar Kinverja frá Peking. Sagt er,
að útvarpssendingar Kínverja til
Sovétríkjanna séu truflaðar.
í Moskvu tjáði Sergei Roman-
ovsky, forstjóri sovézku menningar
málaskrifstofunnar erlendum blaða
mönnum í dag, að Rússar trufluðu
ekki útvarpssendingar Kínverja til
Sovétríkjanna. Útvarpssendingar
Kínverja hafa aldrei verið trufl-
aðar, sagði hann.
Ódýrt
handprjónagarn
ifMIIIIIIMI
JtlliMIIMMt
JMIMIIIIHIIlJ
HlMlllllllilllfl
lliilllllllllllll]
‘IIIIIIIMMMIIll
•MMIIIMIIMMll
WMIIMMMMIMj
tlMIIIMIiMi
•iHiMuiiiMiMtMimHiiitiiiniHiHiimimimm*..
....................................illNW(
MIHMMi-
, IHMlllMitlfi.
illlllllllliHm
‘llllllllllllHNf
lllllllllIIIIIIIC
IMIIIIIIilllllN
lliMIIMIHIIIN
IMMHIIUMIP
MMMMMN*P
IIIMHINN
Miklatorgi.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 2. marz 1963