Alþýðublaðið - 03.03.1963, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 03.03.1963, Qupperneq 7
■ ■ •as,— ftiÉlsí: ... •••/ : ■ ■ • . ■ — í KVÖLD heldnr Gnðni Þórð arson erindi nm Síam. Þetta er sjötta erindið, sem Guðni heldur af þessu tagi í ut- varpið ná í vetur, en alls munu þau verða átta. Er- indaflokk sinn nefnir Guðhi „Umhverfis jörðina". Þess má geta, að Guðni Þórðarson var á ferð í Síam í nóvemher mánuði sfðastliðn um. Næstu tvö erindi munu f jalia um Indland og Nepal. AlMÐUBLAÐK) - 3. marz 1963 % HIN SlÐAN Stúlkan, sem mátti ekki fara í samkvæmi EICHMER Hiewerts féll ekki vel að leika hinn stranga föður. En hann var hæstónægður með það, hvernig dóttir hans brást við, þeg ar hann bannaði henni að fara í samkvæmi, sem henni hafði verið1 boðið L Dóttir Riewerts, Beverly Ann, var fimmtán ára gömul. Henni itafðL eins og áður er getið, verið boðið í samkvæmi, en föður hennar fannst hún full ung fyrir slikt. Honum til mikillar ánægju, virtist henni ekki verða mikið um, þó hann bannaði henni að fara. Hún euðaði ekkert í honum, tók bann- ínu eins og sjálfsögðum hlut. Um kvöldið hjálpaði hún til við nppþvottinn samkvæmt venju. Þeg ar því var iokið, sagðist hún ætla að fara að sofa, og foreldrar henn- ar létu það gott heita. Hún gekk út úr stofunnni, og ittokkrum mínútum síðar heyrði fólkið, sem þar var, skothvell. Beverley Ann hafði framið sjálfs inorð. Hún var látin, þegar komið var með hana á sjúkraliús innan lítillar stundar. Hún hafði tekið byssu föður sínis úr skúffu í stofunnl, án þess að nokkur vissL Enginn vissi þó hvar hún hafði náð í skot, því faðir hennar geymdi byssuna ævinlega óhlaðna og engin skot voru til í húsinu. VINSÆLL BANKI FYRIR skömmu opnaði The Bank of America nýtt útibú I San Frans- isco. í auglýsingunni um opnun útibúsins var svo að orði komizt, að þetta nýja útibú væri m jög hent ugt fyrir viðskiptavini bankans. En nú hefur komið í ljós, að það var hentugt fyrir fleiri. Þar hafa nefni lega verið framdir þjófnaðir að meðaltali einu sinnl í hverjum mánuði síðan útibúið var opnað. í síðastliðinni viku voru tveir þjófn aðir framdir þar á sama sólar- hringnum. IR FÍLAR A FÓLK IIJARÐIR ölvaðra fíla skelfa nú í- búana á svæðunum í grennd við Tezpur í norð-austur Indlandi. Fílarnir komust í rís-bjór, sem kínverskar hersveitir höfðu skilið eftir, en þær réðust inn á þetta svæði I október síðastliðnum í síðastliðinni viku bönuðu fíl- arnir fjórum þorpsbúum, en sam- kvæmt indverskum lögum má ekki skjóta fíla, nema á þá renni æði. Fílamir tróðu fólkið í hel, þar sem það svaf í kofum úr strái. Þau, sem bana biðu, voru gömul kona og þr jú börn. Þorpsbúum tókst að Iokum að hrekja fílana á brott, með kyndlum og trumbuslætti. Á þessum slóðtun er liætt að veiða fíla í þeim tilgangi að selja TUTTUGU og þriggja ára gamall dýratemjari dvaldi nýlega tvo sól- arhringa í eiturslönguhópi, án þess að skaðast hið minnsta. Á þessum 2 sólarh. svaf hann J>ó ekki nema f jórar klukkustundir, annars hafði hann alltaf nóg að gera við að bægja kobraslöngunum frá sér. Ekki vitum við til hvers þetta uppátæki átti rætur sínar að rekja, nema tilgangurinn hafði verið sá einn að komast í blöðin. þá, því verðfall hefur orðið á marfc- aðnum. Fyrir nokkru var gangverð á meðal fíl um það bil 300 sterlings pund, en nú er verðið hinsvegar ekki nema 100 sterlingspund. Þess má geta, að það kostar næstum því 600 sterlingspund að fæða einn fíl í eitt ár. ÖRYGGI í UMFERÐ ÞÝZKUR sálfræðingur hefur kom- izt að þeirri niðurstöðu, að zebra gangbrautir séu alls ekki til þess fallnar að auka öryggi vegfarenda. Ástæðuna til þessa kveður hann vera, að randirnar á gangbrautun- um snúi öfugt. Það valdi því, að fótgangandi fólk hiki við að ganga eftir þeim yfir götuna, en hinsveg- ar sé lega randanna slík, að hún hvetji ökumenn til að balda ferð sinni áfram. Hann segir það vera sannað mál, að slík þverstrik hafi hindrandi áhrif á allar gangandi verur. Þessi þýzki prófessor víU, að i stað zebra brautanna verði allar gangbrautir yfir götur málaðar al- hvítar. FaSirinn: Finnst þér ekkl dá- samlegt hvernig iitlu ungarnir komast úr eggjunum? Sonurinn: Mér finnst nú 6Ilu skrýtnara hvernig þeir komast ínn I þau. Kennrinn við litlu stúlkuna, sem er að læra að skrifa: Hvar er komm an, sem á að vera yfir í-inu? — Hún er nú í blýantinum enn- þá. tAt Pípulagningamaðurinn: Komstu með öll verkfærin? Lærlingurinn: Já það gerði ég. Pfpulagningamaðurinn: Það var þér Ifkt. -jAr Dómarinn spurði konuna, sem mætt var fyrir réttinum, hvað hún væri gömul. Hún kvaðst vera þrítug. - Síðastiiðin þrjú ár, hafið þér aiitaf sagzt vera þrítug, sagði dóm arinn. - Já, ég iæt yður vita það, að ég er ekki ein af þeim, sem segja eitt f dag og annað á morgun, sagði konan. it ~ Af hverju ertu með þennan spotta bundinn um fingurinn’ — Konan mín setti hann þarna til að minna mig á, að fara með bréf í póstinn. — Mundirðu þá eftir því? - Hún gleymdi að láta míg fá það. _W — Trúir þú því að hjónabandið sé happadrætti? — Nei. í happadrættlnu hefur maður bó alltaf möguleika á því að fá vinning. ■V “ Frtu til í að verða fjófði mað ur í bridge? — Já, já. — Fínt. Þá vantar okkur bara þriðja manninn. - Pabbi, viff ætlum aff labba (sunnudagaskólnn. Sunnndagnr 3. 8.30 Létt morgunlög — Fréttir. — 9,10 Veðurfregnir. 9,20 Morgunhugleiðing og morguntónleikar: Ámi Kristjánsson tal ar um óratóríúna „Júdas Makkabeus" eftir Georg Friedriclí Hadel, — en síðan verða fluttir þættir úr henni. Organleikari: Guðjón Guðjónsson). 11.00 Messa í Kópavogskirkju (Prestur: Séra Gunnar Árnascn» 12.15 Hádegisútvarp. 13.15 íslenzk tunga; I. erindi: Upptök íslenzks máls (Dr. .Hreinn Benediktsson prófessor). 14.00 Miðdegistónleikar: Óperan „Lueia di Lammermoor'*. 15.40 Kaffitíminn — 16.00 Veðurfregnir). 16.20 Dagskrá æskulýðsnefndar þjóðkirkjunnar: Söngur, ávörp cg og erindi. — Flytjendur: Dr. Róbert A. Ottósson söngmála- stjóri og gufræðinemar, skiptinemar þjóðkirkjunnar, félagar í teskulýðsfélagi Akúreyrarkirkju, Jón Einarsson stud. theol., Séra Ingólfur Ástmarsson, séra Bragi Friðriksson og séra Ólafur Skúlason, sem hefur aðalumsjón með dagskránni, 17.30 Barnatími (Skeggi Ásbjarnason). — 18.20 Veðurfregnir. 18.30 „Bára blá“: Gömlu lögin sungin og leikin. 19.00 Tilkynningar. — 19,30 Fréttir. 20.00 Umhverfis jörðina: Guðni Þórðarson segir frá Síarn. 20.20 Frá ljóðakvöldi í Háskólabíói 20. f. m.: Irmgard Seefried syng- ur við undirleik Erik Werba. 21.00 Sunnudagskvöld með Svavari Gests, — spurninga- og skfemmtí þáttur. 22.00 Fréttir og veðurfr. — 22.10 Danslög. — 23.30 Dagskrárlok. Kvölddagskrá mánudagsins 4. marz. 20.00 Um daginn og veginn (Unnar Stefánsson viðskiptafræðingur). 20.20 „Mandaríninn makalausi", ballettsvíta eftir Béla Bartók. 20.40 Á blaðamannafundi: Jón Leifs tónskáld svarar spurningum. Spyrjendur: Emil Björnsson, Guðni Guðmundsson og Leiíui- Þórarinsson. Stjórnandi: Dr. Gunnar Schram. 21.15 „Barnaherbergið" (Shildren's Corner), eftír Debussy. 21.30 Útvarpssagan: „íslenzkur aðall" eftir Þórberg Þórðarson. 22.20 Hljómplötusafnið (Gunnar Guðmundsson). 23.10 Skákþáttur (Gunðmundur Arnlaugsson). — 23.45 Bagskrárlok.. HIN SÍÐAN

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.