Alþýðublaðið - 20.04.1963, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 20.04.1963, Blaðsíða 2
j *iutJóror: Gijll J. Astþórssor (áb) og benedikt Gröndal.—AðstoOarritsýóll i BJörgviu GuCmundsson - Fréttastjórl: Sigvaldi Hjálmarsson. — Simar: j 14 900 - 14 002 — 14 903. Auglýsingasími: 14 906 — Aðsetur: Alþýðuhúsiö. j — Preii'smiöja AlþýðublaÐsjns, Hverfisgötu 8-10 — Askriftargjald kr. 65.00 j 4 mánuði. t laLSjiulu kr. 4 00 eint. Ctgefandi: Alþýðuflokkurinn HVER Á METIÐ? SKÖMMU EFTIR MIÐNÆTTI í fyrrakvöld flutti Þórarinn Þórarinsson síðustu ræðu framsókn armanna í eldhúsumræðunum. Lét harm fullyrð- ingar og fúkyrði óspart vaða, eins og hans er ivenja. Meðal annars notaði hann spurningaform og stillti etjórnarflokkunum heldur betur upp við vegg. Ein af spurningum Þórarins, sem jafnframt er eitt af meginatriðum í áróðri stjórnarandstöðunn- ar, var þetta: Hefur dýrtíðin nokkru sinni vaxið eins ört og í tíð núverandi stjórnar? Það lá í orðum Þórarins, að svo væri ekki. En svarið er samt sem áður JÁ. Dýrtíð hefur oft vaxið hraðar en í tíð núverandi rlkisstjórnar, ekki sízt þegar framsóknarmenn hafa verið við völd. Nægir að taka eitt dæmi, frá árunum 1950—58, þegar framsóknarmenn voru síðast við völd. Það er ein af perlum íslenzkrar stjómmála- sögu, hvernig framsóknarmenn komust í ríkis- stjórn 1950. Fyrst rufu þeir stjórn Stefáns Jóhanns. Eftir það háðu þe:'r harða kosningabaráttu gegn í- haldi og f járplógsstarfsemi haustið 1949 og voru hin ir róttækustu. Þegar aftur fcom á þing, flutti minni hlutastjórn Ólafs Thors frumvarp um gengislækk un. Fyrir það tók framsókn þátt í vantrausti á þá stjórn, en gekk þegar á eftir til starfs við íhaldið og stjórnaði með því til 1956! Þegar gengið var lækkað 1950 — og hliðarráð stafanir gleymdust — var byrjað á nýrri vísitölu, 100. Eftir eitt ár var dýrtíðin orðin svo mögnuð, að vísitalan var komin upp í 132. Núverandi ríkis- stjórn hefur verið í þrjú ár að koma verðbólg- unni upp um 30%, en það tókst framsókn að gera á 12 mánuðum 1950! Þrem árum eftir gengislækkunina 1950 var vísitalan orðin 156, sem er mun meiri1 verðbólga en orðið hefur í tíð núverandi ríkisstjómar. Verður 'því e'kki komizt hjá því að játa, að í þessu efni á núverandi stjórn ekfcert met. Sá 'heiður hvílir á herðum Framsóknarflokksios frá tíð ríkisstjórnar Steingríms Steinþórssonar. Af þessu verður Ijóst, að Þórarni hafa orðið slæm mistök á með spurningu sinni í fyrrinótt. Honum hefði verið nær að raska ekki sivefnró lands manna með slíkri fásinnu. EINN VARÐ EFTIR BILANIR I IHRESHER DEGI EYRIR SLYSIÐ iiaasisi McCOLLÉ. PORTSMOUTH — Rafvirkinn á (NTB-AFP) bandaríska kjarnorkukafbátnum „Thresh- er“, Raymond McCooIe, lauti- nant, hefur skýrt frá því í sjó- prófum vegna „Thresher“-slyss ins í Portsmouth, að nokkrar vclarbilanir hafi orðið á kaf- bátnum daginn áður en hann fór hinztu ferð sína. „Thresher" sökk á Atlants- hafi úti fyrir Boston hinn 9. apríl. 129 menn fórust. McColle varð eftir í landi þegar „Thresher" lét úr höfn og slapp þannig naumlega við örlög þau sem biðu félaga hans um borð. Hann hefur haldið því fram í sjóprófunum, að kvöldið áð- ur en báturinn sigldi á haf út hafi áhöfnin og verkamennirn ir á skipasmíðastöðinni þar um kafnir við að gera við dýpt um hafnir við að gera við dýpt ar- og siglingarrör kafbálsins. Hann sagði ennfremur, að skip stjórinn, Jolin Harvey, hefði neyðzt til að hætta við reynslu ferð hinn 23. marz þar eð nokkr ar vélarbilanir komu í Ijós. Charles Palmer, varaaðmiráll, sem er yfirmaður skipasmíða- stöðvar flotans í Portsmouth kveðst ætla, að rannsóknir varð 'aindi orsakir skipstapans nái einnig til hans. Kafbáturinn var rannsakaður nákvgemlega í skipasmíðastöðinni í Ports- mouth skömmu áður en hann sökk. Palmer, varaaðmíráll, er þannig annar liðsforinginn, sem rannsóknin nær til. Hinn er Stanley Iiecker skipherra, yfirmaður „Skylark::, sem var fylgdarskip kafbátsins á síð- ustu ferð hans. Sennilega ber Hecker ábyrgð á því, að end- ursendingu síðustu skeytanna frá „Threslier“ seinkaði. HANNES Á Einhýlishús til leigu í Silfurtúni er til leigu frá 1. júní, 160 ferm. einbýlishús. Tilboð sendist fyrir 5. maí á af- greiðslu blaðsins merfct: „Einbýlishús“. SJÓMAÐUR SKRIFAR: „Skafmnt er nú stórra högga á milli. Stór fiskiskip velta á hlið- ina og síga í hina votu gröf á 3— 4 mínútum. l>að er hreinni til- viljun háð að skipverjar bjargast. Og þetta eru móðins slys. Þau sigla í kjölfar tækninn'ar eða hvað? “ / ÉG HEF hlustað á margar sjó- ferðasögur, og þar fóru skip á hliðina, fengu á sig brotsjói, sem brutu kannske allt lauslegt ofan af, en hörkuðu samt af. Eitt skip fór í hring í sjónum útaf Vestfjörð um fyrir nokkrum áratugum, braut af sér siglutré og allir kom ust lífs af að mig minnir. En livað er það þá nú til dags, sem veldur því, að skipunum hvolfir og þau sökkva í hafið. Er það nokkur goð gá að láta sér detta Chug, að aðal- lega sé tvennt, sem veldur. í fyrsta lagi meiri yfirbygging á skipunum nú en áður og svo koma til við- bótar þung veiðitæki, kraftblökk, þung síldarnót og vírar. Hitt svo, að líklega er oft ekki næg kjöl- festa í skipunum til að vega á móti mjkilli yfirbyggir.gu og þung um veiðitækjum. ÞAÐ ER ATHYGLISVERT að skip eitt, sem nýlega fékk á sig brotsjó, missti nótina, en rétti sig við á eftir. Manni dettur í hug að spyrja, livað hefði skeð hefði skip þetta ck'ki losnað við nótina? Sá, sem þetta rilar var skipverji á skipi, sem lagðist á hliðina í stór sjó, en það rétti sig við eftir að lagfæringar höfðu verið gerðar um borð í því. En hefði þetta skip verið með nýtízku yfirbyggingum, kraftblökk og nót upp á bátapalli, þá myndi ég ekki hafa verið til að pára línur þessar. NÚ ERU SVO MÖRG SKIP, stór og mikil og sjálfsagt sum á- gætis sjóskip, farin i hafið, að það opinbera getur ekki lengur horft II111111IIIIIlllllIIIIIII111«!t111111111 + SjómaSur skrifar um sjósiysin. * í hverju liggja mistökin? NauSsyn á nákvæmri rannsókn. ;i(t„i„„................................................. iii ii iiii iii in 11111111111 ima á þetta án aðgerðar. Það þarf að skipa 3ja eða 5 manna nöfnd liinna allra færustu manna til að kanna hvað hægt er að gera til öryggis sjómönnunum. Það er ekki hægt að horfa lengur aðgerð arlaust á þennan voða, sem blas ir við. NÚVERANDI ALÞINGI ætti í þinglokin að taka þetta mál til meðferðar og ræða þetta vanda- sama mál, án allra flokkadrátta og koma nefnd á laggirnar til að rann saka þessi tíðu slys og finna lausn, ef hægt er. Þetta má ekki lengur vera afskiptalaust af hálfu lögjaf- ans. Og ég tel, að þótt háttvirtir þingmenn hafi annrikt nú að kafa í nauðsynlegum og miður nauðsyn legum málum, þá er þetta mál það al varlegt, að ekki verður lengur við unað. ÞJÓÐIN HEFUF EKKI efni á að fórna dýrmætum mannslífum og öllu öðru; sem þar af leiðir. Fyrir hálfri öld man ég að einn af glöggskyggnustu mönnum þjóðar innar mat mannslífið þá á 30. þús. krónur. Nú má sjálfsagt marg- falda þá tölu með 100 eða svo. En í raun og veru verður manns- lífið aldrei í krónum metið, þar ráða önnur sjónarmið og eiga að ráða. Hér verður eitthvað virki- lega róttækt að ske til að stöðva þessi ægilegu slys nærri því við bæjardyrnar hjá okkur“. Skemmtana- skatturinn samþykktur ALÞINGI afgreiddi í gær sem lög frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingarnar á skemmtan'askatti. Nokkur átök urðu í sambandi við afgreiðslu málsins um það, hvenær innheimta 15 kr. gjalds ins á viriveitingastöðunum skyldi hefjast á kvöldin. Varð niðurstað an sú, að fastsetja það ekki í lög unum, heldur hafa það reglugerð arákvæði. Stúlka óskast Viljum ráða stúlku til aðstoðarslarfa í prentsmiðjuna, helzt vana. ALÞÝÐUPRENTSMIÐJAN H.F. VITASTÍG. 2 20. apríl 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.