Alþýðublaðið - 20.04.1963, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 20.04.1963, Blaðsíða 3
IL TROVATORE SÝND f ÞJÓÐLEIKHÚSINU 4 bílar í ni ferð TROLLAFOSS, eitt af flutninga- skipum Eimskipafélags íslands, lagðist í gær að bryggju með mesta farm af bifreiðum, scm komið hef ur til islands í einni ferð. Var skipið með hvorki meira né minna en 154 bifreiðir. Voru nokkrar bif reiðanna á dekki, en flestar í lest- uin. Allar þessar bifreiðir eru nýjar, 'utan ein, sem var í eigu útlend- ings á íslandi. Einnig var gífur- lega mikið af landbúnaðarvélum á dekki. Var talið, að múgavélarnar á dekki nú hafi verið um 60 tonn að þyngd. Skipið lestaði þennan farm í Hamborg og Antverpen. Einnig er það með asfalttjöru o. fl. efni. Að þessu sinni var engin Volkswagen bifreið í ferðinni, en obbinn af bifx-eiðunum var af gerðinni Taún- us 12 m. Einnig var allmikið af frönsku fimm manna bifreiðunum Simca, en vinsældir þeirra virðast i fara ört vaxandi. Tröllafoss lenti í hinu versta veðri, er hann kom að landinu fyrir tveimur sólarhringum og varð að fara sér hægt vegna flutnings- ; ins á dekkinu. Að öðru leyti gekk ferðin að óskum. Tröllafoss hefur aðeins einu sinni komið með fieiri farartæki til landsins í einni ferð. það var fyrr í vetur, þegar skipið lestaði traktora ásamt bifreiðum. Voru þá yfir 200 farartæki í lest- um skipsins. Skiþstjóri á Tröllafossi er Guð- ráður Sigurðsson, og hefur hann verið með skipið í rúmt ár. Hann hefur áður verið skipstjóri .á Fjall fossi. MVNDIN er tekin skömmu eftir að Tröllafoss lagðist að bryggju í gær, og sýnir glögglega hvílíkan fjölda landbúnaðarvéla hann var með á dekki. (Ljósm.: Rúnar G.). Grimau dæmd- ur fiB dauða ÓPERAN H, Trovatwre verður frumsýnd í Þóðleikhúsinu um miðjan maí. Leikstjóri er Sví- inn, Lars Rönsten; stjórnandi hljómsveitarinnar, Daninn Ger- hard Scheplern; lafjktjöld er!u gerð af Lárusi Ingólfssyni, en bún ingar allir eru fengnir að láni hjá konunglegu óperunni í Stokk hólmi. Aðalhlutverkin eru í hönd’rn Guðmundar GuðjSnssonar, sera leikur Manrico, Guðmundur Jóns son leikur Luna, Leonora er lek in af Ingeborg Kjellgren (frá Stokkhólms-óperunni), Azucena er leikinn af Sigurveigu Hjalte- sted, Jón Sigurbjörnsson leikur Ferrando og Svala Nielsen, Ines. Gerhard Schepelern hefur um skeið unnið í Árósum, þar sem Guðmundur Guðjónsson söng undir hans stjórn, en annars er hann tónlistarráðunautur við danska útvarpið og starfsmaður Konunglega leikhússiqs. Ingeborg Kjellgren er fastráð- in við óperuna í Stokkhólmi, en hefur starfað í tvö ár við óper- una í Köln. Hún hefur getið sér gott orð sem sópransöngkona. Þetta er 17. söngleikurinn, sem Þjóðleikhúsið sýnir. Áður hafa þar verið sýndár 8 óperur og 8 óperettur. Áður hafa verið sýnd- ar tvizx óperur eftir Verdi; Rigo- letto og La Traviata. Auk þessa hafa allmargir erlendir gestir komið hingað og haft óperusýn- ingar eða óperettusýningar í Þjóð leikhúsinu. Óperan II Trovatore var frum- sýnd árið 1853 í Rómarborg. — Óperan átti strax miklum vin- sælcjum að fagna og hefur verið og er sífellt sýnd víða um heim í hinum stærstu óperuhúsum. Efnið er sótt til Spánar, þar sem í byrjun fimmtándu aldar var ort um hina óhamingjusömu xappa: Greifann og trúbadúrinn, sem báð ir elskuðu hina sömu fögru konu. Að sjálfsögðu leiðir ást þeirra til þess að þeir deyja og allir með. VERDI SYNGUR BARA f BAÐINU... MADRID og MOSKVU, 19. apríl (NTB-Reuter). KRÚSTJOV forsætisráðherra hef- ur skorað á Franco hershöfðingja að ógilda dauöadóminn yfir Julian Grimau, spánska kommúnistafor- ingjanum. Jafnframt bcrast þær frcgnir frá Madrid, að dómsyfir- völd hafi staðfest dauðadóminn, sem kveðinn var upp í réttinum. Dauðadpmurinn var sennilega til umræðu á ráðuneytisfundi í dag, en líklegt er talið, að stjórn- in hafi ekki endanlega fjallað um málið. Julian Grimau var sakaður um | að vera í félagi í spánska komm- únistaflokknum, sem er bannaður. Einnig var hann sakaður um að hafa pyndað hægrisinnaða Spán- verja í borgarastyrjöldinni eða fyrirskipað pyndingar. Grimau neit aði síðarnefndri sakargiftinni, en sagði: Ég hef verið kommúnisti í 25 ár og ég mun deyja sem komm únisti. Fregnir hafa borizt af mótmæla- fundum við spönsk sendiráð erlend is. Tékkar hafa boðið Grimau hæli sem pólitískum flóttamanni. ALÞÝÐUBLAÐIÐ ræddi í gær við | leikstjórann Lars Rönsten, sem kom hingað til lands í vikunni, og er nú tekinn til við að æfa upp 11 ' Trovatore. Æfingar eru raunar [ hafnar fyrir löngu í Þjóðleikhús- inu og hefur Fritz Weisshappel æft einsöngvarana. Herra Rönsten sagði, að sér litist sérlega vel á leikhúsið, leiksviðið væri mjög j þægilegt, og söngvararnir hefðu fallegar raddir. Hann sagði, að hann hyggði gott til starfsins hér. Rönsten hefur um átta ára bil starfað við Stokkhólmsóperuna og sett upp margar óperur þar. Auk þessa hefur hann sett upp þrjár óperur í Kaupmannahöfn og loks hefur hann starfað við leikstjórn með frönskum leikstjóra á Drottn- ingholm-leikhúsinu í Stokkhólmi. Næsta verkefni verður í haust að setja upp Aidu, sem verður frumsýnd á 150 ára afmæli Verdis 10. október. Rönsten segir, að um 300 óper- ur séu sýndar ár hvert í Stokk-1 hólmi. Óperur hinna gömlu meist- ara séu sífellt á dagskrá, en svo ! koini inn nýjar óperur eða nýstár- legar uppsetningar á gömlu óper- unum inn á milli. Aðspurður um það, hvernig Aðspurður um það, hvernig Stokk- J að liún væri ailvel sótt en aðsókn-! in gæti þó verið betri. Nú væri í. bígerð, að hef ja nýja auglýsinga-' herferð til að auka aðsóknina að óperunni. Aðspurður um það, hvort sjón- varpið hefði ekki dregið úr að- sókn að óperunni sagffi leikstjór- inn, að mesta sjónvarpsfárið væri nú gengið yfir, en kvikmyndahús- in hefffu orðið harffast úti, þegar sjónvarpið kom. Mörg smábíó hefðu þá lokað eitt af öðru, aðeins hin stóru hafi staðið af sér alla storma. Aðspurðnr um það, hvort hann hefði sjálfur sungiff í óperum, sagði herra Rönsten, að það hefðl hann ekki gert. Hann syngi hvergi ncma í baðherberginu. GUISEPPE VERDI fæddist 10. okijiber árið 1813 í Ron- cole á Italíu. Hann var sonur gestgjafa þar. — Hann fékk styrk frá því opinbera til þess að stunda tónlisíarnám 1 Milanó og þótti ekki sér- lega efnilegur í fyrstunni, en árið 1839 var þó frumsýnd óperan Obeto eftir gestgjafa soninn, Giuseppe. Þar á eftir komu margar óperur, en eng in þeirra megnaöi að afla honum mikillar frægðar. Þa3 var ekki fyrr en árið 1851, sem nafn hans var skrifað stórum stöfum, þaö var, er Rigoletto var frumsýnd. — Skömmu síðar komu óperurn ar II Trovatore og La Travi- ata, sem frumsýnd var í Fen eyjum sama ár, og II Trova tore var frumsýnd í Róm 1853. Nú var aftur öldudalur í frægð Verdis.sem aftur náði hámarki með fmmsýningu óperunnar Aida, sem fyrst var flutt í Kairó árið 1871, en skömmu síðar i Milanó. Þessi ópera hefur síðan ver- ið sýnd um allan heim, eins og raunar fleiri óperur Verd- is, sem hélt áfram að skrifa óperur fram í andlátið. .— Requim (til minningar um A. Manzoni) var flutt í Mil- anó árið 1874, árið 1887 var Othello sýnd í Milanó og Falstaff í M vinó p / 1903. Þá var tónskáldið látið fyr- ir tveim árum. Hann lézt í Milanó, 27. janúar árið 1901. Deilt um kött Dacca, 19. apríl (NTB — Reuter). NAFNIÐ á ketti sendiherra Banda- ríkjanna á Indlandi hefnr hleypt illu blóði í marga í Pakistan og óttast er að afleiðingin verði stjórnmálalegt deilumál. Orffrómur er á kreiki um að köttur Galbraiths sendiherra heiti „Ahmed”, sem er sama orðið og Múhaineð. Sagt er, að liér sé um guðlast að ræða. Varaforseti Pakistanþings sagði í dag, að ef orðrómurinn væri sannur væri málið þúsund sinn- um alvarlegra en allar vopnasend- ingar vesturveldanna til Indlands. Máliff hlýtur að þróast í alvarlegt milliríkjamál, sagði varaforsetinn, Afzal Cheema. Af hálfu Pakistanstjórnar er sagt, að stjórnin muni rannsaka málið ef satt reynist að kötturinn raunverulega heiti Ahmed. Galbraith sendiherra sagði í dag, að það væri rangt að köttur- inn bæri nafn spámannsins. — Þannig væri mál með vexti, að börn hans hefðu eignazt köttinn í bænum Ahmedabad, og kötturinn hefði verið kallaður eftir bænum. t öryggisskyni var dýrið skýrt upp aftur og heitir það nú Gujerat í höfuðið á héraðinu, sem hefur Ahmedabad fyrir liöfuðstað. ALÞÝÐUBLA9IÐ — 20. apríl 1953 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.