Alþýðublaðið - 20.04.1963, Qupperneq 16
EFRI myndin er af starfs-
fólki Borgarbókasafns Reykja
víkur og útibúa þess. Það
stendur hér í þrepunum fyr-
ir framan hið glæsilega bóka
safnshús að Þinglioltsstræti
29A. — Neðri myndin er af
nokkrum elztu starfsmönnum
safnsins og núverandi yfir-
bókaverði. Talið frá vinstri:
Katrín Magnúsdóttir, sem lief
ur starfað hjá safninu í 18
ár, en hefur nú látið af störf-
um. Herborg Gestsdóttir, sem
hefur starfað í 24 ár sem
bókavörður. Þá er Malin
Ágústa Hjartardóttir, eigin-
kona Sigurgeirs Friðriksson-
ar, sem var fyrsti forstöðu-
maður safnsins og allt til
dauðadags 10. maí 1942. —
Snorri Hjartarson, yfirbóka-
vörður, og lengst tit hægri
er Lára Pálsdóttir, sem byrj-
aði hjá safninu 1926 og vann
þar til 1955, og hefur að baki
lengstan samfelldan starfs-
tima.
FAÐIR VLADIMIRS ASKENÁZIJ:
KALLAR SON
SINN SVIKARA
I Moskva, 19. 'apríl (NTB-Reut.).
I DAVID Askenazij, faðir Vladimirs
Askenazijs, hins fræga píanóleik-
ara, lýsti því yfir í dag, að sonur
sinn væri svikari, þar eð hann
hefði ákveðið að búa í Bretlandi
, í framtíðinni. Upplýsingar þessar
eru fengnar frá aðilum, nánum
1 Askenazij-f jölskyldunni.
Ennfremur sagði faðir Askenaz-
ijs, að hann vildi ekki kannast við
son sinn, ncma hann ákvæði að
snúa aftur til Rússlands.
Vladimir Askenaiij og kona hans
deildu íbúð með forcldrum lians,
er þau bjuggu í Rússlandi. Ilöfðu
þau þar eitt herbergi til umráða
fyrir sig og son þeirra ungan.
Foreldrar Askcnazijs höfðu hitt
herbcrgi íbúðarinnar fyrir sig. —
Eldhús og bað var sameiginlegt.
Bandaríski píanóleikarinn, Mal-
colm Frager, sem átti í sumar a'
Icika á allmörgum liljómleikum
með Vladimir Askenazij í Rúss-
landi, sagði í Moskvu í dag, ..ð
hann vonaðist til að Vladimir
kæmi til Rússlands í sumar, :n
kváðst ekkert urn hans ráðagerðir
vita.
Sovézk dagblöð hafa ekki minuwt
einu orði á þá ákvörðun Askenaz-
ijs að sctjast að í Bretlandi. Þess
má geta, að 9 ár Iiöu frá því ; ð
hinn frægi ballett dansari, Rui- if
Nurejevs ákvað að setjast að á
ve&l^rlöndum, unz frá því var
skýrt í blöðum í Rússlandi.
Skýrt var frá því í dag, 'að Ask-
enazij muni leika með sovézku
filharmóníuhljómsveitinni, er hún
kemur til London í septembcr.
Umboðsmaður Askenazijs skýrði
frá því, að um það hefði verVð
samið við menntamálaráðherra
Sovétríkjanna.
SKIPSHAFNIRN-
AR GEN6U llT '
80RGARBÓKASAFN REYKJAVÍKUR 40 ÁRA:
ÓKAEIGNIN RÚM
82 ÞÚSUND BINDI
fcORGARBÓKASAFN Reykjavík-
«ir varð 40 ára í gær, en það tók til
Atarfa 19. apríl 1963. í upphafi
átti safnið 933 bækur, en á nú
82.078. Fyrsta árið, sem safnið
ðtarfaði, voru lánað út 31.961
I-rtndi, en 217.331 á síðasta ári.
íikrvðir lánþegar safnsins voru
1(006 ’62, en er reiknað með að 38
uf hverjum 100 lánþeguin séu börn
Og ungiingar 16 ára og yngri. Elztu
Itánþegarr.ir eru á níræðisaldri.
í tilefni afmælisins var haldið
fcaffisamsæti í gær í húsi safnsins
«ð Þingholtsstræti 29A. Þar voru
tneðal gesta borgarstjórinn í
Úteykjavík, Geir Hallgrímsson,
fulltrúar úr borgarráði, starfs-
menn safnsins, sem látið hafa af
störfum og fleiri.
Borgarbókasafnið nefndist í
fyrstu Alþýðubókasafn Reykja-
víkur, en árið 1936 var nafninu
breytt í Bæjarbókasafn Reykja-
víkur og aftur um áramótin 1961
— 1962 í Borgarbókasafn Reykja-
víkur. Fyrstu árin var safnið til
liúsa á Skólavörðustíg 3, en seint
á árinu 1928 flutti það í Ingólfs,-
stræti 12, þar sem það starfaði
nær hálfan þriðja áratug. í árs-
byrjun 1954 tók aðalsafnið til
starfa í núverandi liúsakynnum í
Þinglioltsstræti 29 A.
Lestrarsalur fyrir fullorðna lief-
ur verið starfræktur frá upphafi,
en fyrsta barnalesstofan tók til
starfa árið 1924. Barnalesstofur
eru nú sex talsins. Fjórar þeirra
eru í barnaskólum og eru einungis
opnar þann tíma ársins, sem skól-
amir starfa. Eru þær í Austur-
bæjarskóla, Miðbæjarskóia, Laug-
arnesskóla og Melaskóia. Tvær
yngstu lesstofumar eru í útibúum
safnsins í Hólmgarði og við Sól-
heima, og eru þær opnar allan árs-
ins hring.
Auk aðalútlánsdeildar safnsins í
Þingholtsstræti eru nú starfrækt
þrjú útibú, þar sem börn og full-
orðnir geta fengið bækur að láni.
Útibú I var stofnað árið 1934 og
’ Framh. á 5. síðu
Sandgerði í gær.
UNDANFARIÐ hefur staðið yfir
deila milli útgerðar Guðmundar
Jónssonar á Rafnkelsstöðum ann-
ars vegar og áhafna á bátum lians
og verkalýðsfélagsins í Sandgerði
hins vegar. Verkalýðsfélagið telur
Guðmund aðila að síldarsamning-
unum í Sandgerði, eins og liann
er aðili að öðrum samningum þar.
Bátar Guðmundar, Jón Garðar
og Víðir II. hafa undanfarið legið
við bryggju hér og ekki farið á
Sjó. Annar hefur legið hér í fimm-
tán daga, en hinn í tiu.
Þess má geta, að ekki hafði ver-
ið skráð á bátana um áramótin
eins og lögskráningarlögin mæla
þó fyrir um, og mun sýslumaður
nú hafa til athugunar kæru vegna
þess.
í dag átti svo að skrá á bátana
að nýju. Þegar á skráningarskrif-
stofuna kom, neituðu skipverjar að
sjálfsögðu að skrifa undir annað
en gildandi samninga og fór svo,
að þeir gengu allir út af skrán-
ingarskrifstofunni.
Ekki er vitaö hvort skipverjar
muni hætta sjómennsku hjá út-
gerðinni eða livert verður næsta
skrefið í þessu deilumáli.
Mál þetta hefur vakið feikilega
athygli um öll Suðurnes og mun
ekki ofmælt 'að segja, að mikill
hiti sé í mönnum.
★ PARIS: — Lögreglan og tveir
OAS menn skiptust á skotum á
götum Parísar á föstudag og ann-
ar þeirra beið bana. Hinn særðist
og var handtekinn. Einn lögreglu
maður særðist alvarlega. — Hinn
fallni, Marcetteau de Brem, er sak
aður uin að hafa falið Bernier, fé-
Iaga sinn, sem særðist í viðureign-
inni, og aðra menn eftir banatil-
ræðið við de Gaulle. Bernier hefur
verið dæmdur til dauða að honum
fjarstöddum.
Sumarfagnaður
Kvenfélagsins
KVENFÉLAG Alþýðuflokks-
ins heldur sumarfagnað næst
komandi þriðjudagskvöld kl.
8 í Iðnó, uppi. Fyrst verða á
dagskrá félagsmál (1. maí-
kafi'i). Stundvíslcga kl. 8.30
verður sýnd stutt kvikmynd.
Þá flytja þrjár ungar konur,
frú Hafdís Sigurbjörnsdóttir,
frk. Kristín Guðmundsdótt-
ir og frú Rosemarie Krist-
jansen stutt ávörp. Kaffi-
drykkja. Að lokum spilað
bingó, og þar verða góðir
vinningar.