Alþýðublaðið - 21.04.1963, Síða 10
HIN mikla íþróttahátíð að Há-
logalandi á föstudagskvöldið, sem
íþróttafréttamenn dagblaða og út-
varps stóðu að tókst sérlega vel.
Aðeins 15 mín. eftir að sala að-
göngumiða hófst, en það var kl.
8, var hver einn og einasti miði
uppurinn, en hundruð manna biðu
í ofvæni eftir smugum, til að
troða sér inn. En sú bið var á-
rangurslaus. Húsið varð þegar
yfirfullt.
Stundvislega, svo sem íþrótta-
mönnum sæmir, hófst hátíðin,
manns Samb. íþróttafréttamanna,
manni Samb. íþróttafréttamanna,
Atla Steinarssonar, þar sem hann
, bauð hina miklu þyrpingu ungra
\ og gamalla, sem lagt hafði leið
sína í Hálogaland þetta kvöld, vel-
komna með óskum um að menn
FH sigraði í
2. flokksmóti
í Keflavík
■ f r
tJm páskana fór fram keppni
i utanbæjarliða í 2. flokki karla í
handknattleik í Keflavík, en
;keppni þessi hefur farið fram und
anfarin ár. Að þessu sinni tóku
4 lið þátt í keppninni, ÍBK, FH,
Haukar og Breiðablik.
j , Úrslit leikjanna urðu þessi:
4 FH-Haukar 11:10
Haukar-Breiðablik 18:9
FH-Breiðablik 22:7
ÍBK-Haukar 18:15
. FH:Breiðablik 15:11
ÍBK-Breiðablik 15:10
Úrslit urðu því þau, að FH
slgraði, hlaut 6 stig, ÍBK 4 stig,
Haukar 2 og Breiðablik ekkert.
i Tveir aukaleikir fóru fram í
kvennaflokki og sigraði Breiða-
blik í báðum.
Litla bikar-
keppnin kl.
i Ivö í dag
'i'Litlá' bikarkeppnin svokallaða
hefst í Keflavík í dag og hefst
; kL 2 en ekki kl. 4 eins og skýrt
var frá í gær. Fyrsti leikur keppn
innar verður milli Keflvíkinga og
Akurnesinga.
mættu skemmta sér vel. Lýsti
hann síðan dagskrárliðum og
skemmtiatriðum. Gat formaður
þess, að stjórnandi kvöldsins væri
ekki aðeins hinn landskunni held-
ur og næstum heimskunni hand-
knattleiks- og knattspyrnudómari
Magnús Pétursson. Tók Magnús
síðan þegar að gegna sínu mikils
verða hlutverki. Stóð hann sig af
mikilli prýði.
Fyrst fór fram gömul íþrótta-
grein, svonefnd „Glenna”, sem
fluttist hingað til lands með land-
námsmönnum. Þátttakendur stjóm
ir ÍR og KR. Fóru leikar svo, að
ÍR sigraði en KR dæmt jafntefli
samkvæmt sérstökum lagabókstaf
í Grágás. Annars var Finnbjörn
hinn frækni, fyrrum Norðurlanda
meistari sá, sem glæsilegast gerði
glennuna. Leikur landsliðs ungl.
og landsliðs hinna éldri í körfu-
knattleik var næsta atriðið. Var
þetta mjög fjörugur og skemmti-
legur leikur og jafn. En honum
lauk með sigri landsliðs hinna
eldri. Hápunktur kvöldsins var
svo afburðahörð keppni í hand-
knattleik milli íslands meistara
Fram og liðs íþróttafréttamanna,
fóru leikar næsta óvænt, því í-
þróttafréttamenn báru sigur og úr
bítum. En rétt er nú kannske áð
geta þess, vegna sögunnar, áð
Frammarar léku í pokum upp að
miðju og talað var um að binda
hendur markvarðarins hjá ísl,-
meistunum á bak aftur, þó ekki
yrði úr. Þrátt fyrir þetta varð
munurinn aðeins 1 mark, 13:14.
í liði íþróttafréttamanna lék
sem liðsmaður forseti Handknatt-
leikssamb. íslands, Ásbjörn Sigur-
jónsson. Bar leikur hans mjög vott
um glæsileg tilþrif og fimi. Sig.
Sigurðsson íþróttafréttamaður út-
varpsins, sem undanfarið hcfur
Framhald á 14. síðu.
Myndirnar eru frá revyu
íþróttablaðamanna og vel-
unnara þeirra. Þegar okkur
bárust myndir Sveins Þor-
móðssonar, vonim við í mikl-
um vanda staddir, því að
hver myndin var annarri
betri. Hér eru aðeins þrjú
sýnishorn, efsta myndin sýn-
ir hið sigursæla iið íþrótta-
fréttamanna að leik loknum.
Á næstu mynd sést Ásbjörn
Sigurjónsson, form. Handkn.-
sambandsins, í vígahug, og
á þriðju myndinni skorar
Sig. Sigurðsson fyrirliði úr-
valsliðs íþróttafréttamanna
sigurmarkið í leiknum.
t- . 10 21. apríl 1963 —ALbÝÐUBLAÐIÐ