Breiðablik - 01.06.1906, Blaðsíða 2
2
BREIÐABLIK.
þjóðar vorrar og láta í ljós álit sitt
um þau.
Síra Friðrik J. Bergmann, sem
áður var ritstjóri Aldamóta,
hefir látið tilleiðast að taka að sér
ritstjórn þessa tímarits fyrst um
sinn. Og þykist eg mega fullyrða,
að hann muni láta sér ant um, að
gjöra það eins huglátlega úr garði
að efni til og föng eru fyrir hendi.
Enda er það ósk okkar beggja, að
ritið mætti falla sem flestum í geð,
afla sér vinsælda allra góðra
manna og verða hugljúfur gestur
á sem flestum heimilum.
Breiðablik koma út eitt sinn á
mánuði hverjum með samalesmáls-
rúmi og þetta eintak. Verði ritinu
vel tekið, mun reynt verða að
bæta það og auka eftir því sem
tímar líða og því vex fiskur um
hrygg. Prýtt mun það verða
myndum merkra manna og staða,
að eins miklu leyti og hægt verður
við að koma. Og löngun hefi eg
til að láta það verða eins prúð-
mannlega til fara og ástæður
leyfa.
Vona eg þá, að góðir menn leggi
fram lið sitt til að útbreiða rit þetta
og gjörast kaupendur þess.
Ólafur S. Thorgeirsson
II.
FRÁ RITSTJÓRA.
Nýtt tímarit! Er það ekki
að bera í bakkafullan lækinn?
Er eigi þjóð vor nógu auðug orð-
in af blöðum og tímaritum?
Til eru nú með þjóð vorri tvö
tímarit almenns eðlis, sem nokkuð
kveður að, og svara kröfum tím-
ans.
í Kaupm.höfn hefir Eimreiðin
út komið þrisvar á ári um meir en
tíu ára bil, flutt marga góða hug-
vekju og þarfa og verið með meira
tímarits sniði en vér höfðum áður
átt að venjast. Hefir hún átt vin-
sældum eigi litlum að fagma op-
verið keypt og lesin af flestum
bókavinum, og henni helzt til for-
áttu fundið, hve sjaldan hún kæmi.
Mundi flestum þykja skarð fyrir
skildi, ef hún dytti úr sögu.
Á fósturjörðu vorri var S k í rnir
gamli látinn kasta ellibelgnum rétt
áður en hann varð áttræður og var
það þrekvirki eigi lítið. Nú kem-
ur hann út fjórum sinnum á ári
og er nú farinn að skila erindi sínu
með fornu fylgi og áhuga. Eru
öll líkindi til, að þar verði veigur-
inn mestur allra tímarita vorra, ef
fram verður haldið eins og byrjað
hefir verið. Enda er nú svo margt
orðið ritfærra manna og mikilhæfra
á fósturjörðu vorri, að eigi sýnist
ofætlan vera, að vér ættum eitt
tímarit, með líku sniði og Skírni,
er út kæmi mánaðarlega. Er von-
andi þess verði eigi langt að bíða.
En frá því, sem áður var, er fram-
förin þegar mikil.
Hér vestan hafs er enn þá ekk-
ert tímarit, er svari til þessara
tveggja, og er það af mörgum á-
stæðum næsta skiljanlegt. Hér er
tiltölulega fátt ritfærra manna með