Breiðablik - 01.06.1906, Blaðsíða 15

Breiðablik - 01.06.1906, Blaðsíða 15
BREIÐABLIK. i5 vera svo kalt og sagfgasamt í gröfinni.“ Hún skalf um leið og hún talaði orðin, og eg vissi ekki, hvort hún talaði í al- vöru eða gamni. Var það hjátrú, tikt- úrur, eða hvað? Barnalegasta ósk móður minnar var mér heilög skylda. “ Gestirnir voru nú staðnir á fætur. Endurskin áhrifanna, sem atburður þessi hafði á þá gjört, hvíldi yfir svip þeirra. Allir, nema hinn efagjarni Briflfaut, virt- ust vera hrifnir, og allra augu hvíldu á hinu alvörugefna og einlægnislega and- liti prestsins, æstum svip vinarins, og hreyfingarlausa kven-andlitinu á mynd- inni. ,,Undarlegt atvik, vinir mínir, er ekki svo?“ spurði Dantival. ,,Andatrú!“ Briflfaut var fljótur til að gjöra þá yfirlýsing í vanalegum hæðnis- rómi. ,,Andatrú? Ef til vill!“ svaraði Danti- val raunalegur; ,,samt sem áður vildi eg bæta nokkuru við, sem mér virðist hafa sérstaka þýðing í þessu efni. Þar sem móðir mín hafði rnist mann sinn og mörg börn, var eg eina yndið hennar í lífinu. Hún var mjög guðhrædd og hafði næmar tilfinningar og djúpar fyrir hverri smá-hreyfing í sálarlífi annarra. Mig þekti hún svo nákvæmlega og var svo vön við að lesa í hjarta mínu, að hún réð óskir mínar, áður en þær höfðu náð full- kominni mynd hjá sjálfum mér. Hún var bezta vinkonan mín og ráðgjafinn, og jafnvel eftir dauða hennar, hefi eg orðið var við andleg áhrif hennar á hugs- anir mínar og breytni. ,,Það er engin furða“, greip Briffaut fram í fyrir vini sínum, ,,því þegar þú ætlaðir að gjöra einhverja ályktan, hefir þú blátt áfram spurt sjálfan þig: Hvaða ráð mundi móðir mín nú hafa gefið mér? —Andlegt samfélag fyrri tíma blés þér öllu í brjóst, og svo fanst þér, að hún tala við þig. “ ,,Það gæti verið!“ hélt Dantíval áfram. ,,Eg ætla mér ekki að telja um fyrir neinum, en enn þá eitt þýðingarmikið augnablik stendur mér fyrir hugskots- sjónum.—Á dauðastund sinni sagði hún við mig: ,,Sonur minn góður, sýnilegum návistum verð eg nú að yfirgefa þig, en í rauninni verð eg ávalt hjá þér. Sálin mín, sem trú vorri samkvæmt er ódauð- leg, mun vaka yfir þér, og þegar hún er laus orðin við alla jarðneska annmarka, fær hún betur séð, hvað þér er fyrir beztu. Eg vil ekki, að þú þurfir að líða þrautir“, hélt hún viðkvæmnislega áfram, ,,og eg ætla að blðja guð, að taka þig burt, þegar lífið yrði þér eigi til annars en sársauka. “ — Hafi móðir mín komið til að senda mér prest, getur það ein- ungis þýtt, að einhver mikil og óskiljan- leg óhamingja standi fyrir dyrum og að guð hafi heyrt bæn hennar. “ Geðshræring Dantívals hafði meiri orð- ið með hverju orði, augun fyltust tárum og hann greip með hendinni í bakið á hægindastólnum til að styðja sig. ,,Vinur minn!“ sagði Briffaut, sem var mesti sælkeri, ,,hættu þessum raunasög- um, ætli þér verði ekki annars ilt af þess- um ágæta miðdegisverði okkar? — Þá sneri hann sér með hæðnissvip að prest- inum og sagði: ,,Velæruverðugi herra, skyldi svo viðbera einhvern dag, að svip- ur mælist til, að þér gjörið mér sömu skil og þetta, vonast eg til þér verðið svo góður að gjöra það að morgni á fastandi maga. “ ,,Herrar mínir, eg ítreka það aftur, að mér þykir fyrir að hafa komið á svo ó- heppilegum tíma!“ sagði presturinn al- vörugefinn, án þess að gefa orðum Briff- auts gaum. „Dantival kapteinn þarf mín ekki við,—guði sé lof—eg hverf því aftur heimleiðis. “ ,,Nei, nei!“ bað Dantival. ,,Þó atvik þetta sé undarlegt, fær þó efunargirni Briffauts ekki gjört áhrifin af komu yðar að engu. Eg vil ekki láta yður koma til einskis og bið yður þess vegna að ganga inn í herbergi mitt og búa mig

x

Breiðablik

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.