Breiðablik - 01.06.1906, Blaðsíða 11

Breiðablik - 01.06.1906, Blaðsíða 11
BREIÐABLIK. 11 Þorberg-sdóttur. Sumarið 1887 fluttust þau til Ameríku með börnum sínum 4 og námu land í Nýja Islandi í Arnesbygð. Af þrem bræðrum er Sveinn elztur, sem nú er kaupmaður við Is- lendingafljótt. Þar næst Þorýaldur. Hann stundaði nám við Wesley College og útskrif- aðist þaðan með ágætum vitnisburði 1902 og hatði á námstíma sínum fengið 90 doll. verð- laun eitt árið, 80 doll. verðlaun annað skifti og silfur-medalíu um leið og hann útskrifaðist. Frá háskólanum hér fór hann til Harvard há- skólans og varð þar kandídat í náttúrufræði Þorberg-ur Thorvaldson. eða Bachelor of Science 1903, ætlaði að halda því náini áfram og verða Master of Science, en lézt 9. feb. 1904. Þorbergur byrjaði skólanám við Wesley College haustið 1900 og hefir haldið því stöð- ugt áfram síðan. I undirbúnings deildinni fekk hann 25 doll. verðlaun fyrir bezta frammistöðu í öllum námsgreinum. Fyrsta árið í College- deildinni fekk hann 60 doll. verðlaun fyrir latínu og stærðfræði. Annað árið gullmedalíu fyrir bezta frammistöðu bæði árin. Þriðja árið fekk hann 100 doll., sem voru fvrstu verðlaun í náttúruvísindum. Nú um leið og hann út- skrifaðast fær hann silfurmcdalíu fyrir ágæta frammistöðu í sömu grein. Hann hugsar sér að halda áfram námi í efnafræði og eðlisfræði og getur fengið að verða aðstoðarmaður kennarans við háskólann hér í þeirri grein um leið og hann heldur náminu áfram, sem hann ef til vill gjörir næsta ár, ef hann fer ekki annað. ið 1896. Þar gekk hann gegn um College- deildina á fjórum árum og útskrifaðist með ágætum vitnisburði 1900. Næsta ár var hann með foreldrum sínum á Gardar og var þar skólakennari. Haustið 1901 byrjaði hann lög- fræðisnám við háskólann í Grand Forks og út- skrifaðist þaðan 1903. Þar fekk hann beztu einkunn allra sem með honum útskrifuðust. Þá fekk hann líka Keefe-Davidson verðlaun- in, sem út eru látin í lögfræðisbókum. Eftir prófið var hann nokkura mánuði heima með foreldrum sínum, en um haustið tókst hann Hjálmar Ágúst Berg-man. lögfræðisstörf á hendur í bænum Grand Forks í eigin nafni og hélt áfram einn þangað til 1. apríl 1904. Pá gekk hann í félag við annan lögfræðing, J. A. Sorley, Norðmann einn, sem lengi hefir rekið lögfræðings- sýslu í Grand Forks. Með honum var hann þangað til síðast í október-mánuði síðastliðið haust, að hann sótti um að fá að ganga undir lögfræðispróf við Manitoba-háskólann og réðist til lögfiræðinganna Rothvvell & Johnson hér í Winnipeg að fengnu því leyfi. Nú hefir hann gengið undir fyrsta prófið og fengið Bachelor of Laws(LL. B.) lærdómsnafnbótina, sem þriggja ára nám þarf til að öðlast, en á eftir að gangci undir þau próf, sem lögfræðingafélagið heimt- ar, áður en leyfi fæst til að flytja mál fyrir dómstólum ríkisins. Þorbergur Thorvaldson fæddtir 24. ág. 1883 í Hofdölum í Skagaf., sonur Þorvaldar Þorvaldssonar og konu hans, Þuríðar

x

Breiðablik

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.