Breiðablik - 01.06.1906, Blaðsíða 16

Breiðablik - 01.06.1906, Blaðsíða 16
i6 BREIÐABLIK. undir dauSann með því aS veita mér sakramenti. HiS annaS mun eg þá kom- ast að raun um.“ Þeir gengu út úr salnum og kórdreng- urinn á eftir. Þögulir og vandræðalegir urðu vinirnir eftir. Loks tók éinn til máls lágum rómi „Dantíval er allur úr lagi, líklega er hann í raun og veru veikur. Eg held við ættum að vera við hendina. “ ,,Vissulega!“ svaraði annar, ,,en eg vona, að hann hverfi aftur til okkar eitt- hvað rólegri eftir þessa kirkjulegu at- höfn. “ í þessu bili kom þjónninn með boð. „Húsbóndinn biður yður alla að afsaka. Honum er ilt í höfði og hann ætlar að hátta ofan í rúm.“ Gott og vel!“ svaraði Briffaut, ,,segið húsbónda yðar, aS hann skuli alls ekki órólegur vera okkar vegna“ Hann sneri sér síðan til vina sinna og hélt áfram: ,,HvaS ætlið þið að gjöra, fara eða vera? Að mínu leyti vil eg helzt taka hjúkrun- arstöðuna að mér“ ,,Við verðum hér allir!“ Það varð allsherjar samþykt. Dantíval hafði sofnað. Andardráttur- inn var reglulegur, andlitið rólegt. Ein- ungis varir hans hreyfðust eins og væri hann í draumi að tala við einhvern. Þó var engin áherzla lögð á þetta. Hve oft menn tala í svefni! Klukkan þrjú morguninn eftir var röð- in komin til Briffaut, að sitja við sæng veiks vinar síns. Hann, sem bæði var trúleysingi og háðfugl, langaði til að sýna fram á, að hér væri alls ekkert ó- vanalegt á ferðum. Dantíval kastaði sér fram og aftur, án þess þó aS vakna. Andardrátturinn virt- ist erfiður. „LíSur þér ekki vel?“ spurði Briffaut órólegur. ,,Óskar þú nokkurs?“ Ekkert svar. Dantíval varð stöðugt órólegri. Stund- um sogaði hann að sér andann og teygði sig. Augun hafSi hann galopin, en hann sá ekkert framar. Fyrst hafði Briffaut stokkið á fætur, en svo hné hann eins og máttvana niður í stólinn. Hann hafði orðið einhvers var, svo hann nærri stóð á öndinni. Að nokkrum mínútum liðnum,fekk hann fyrst staðið á fætur. Honum fanst hjart- að komið upp í hálsinn, þegar hann reif upp dyrnar að viðhafnarsalnum, þar sem þeir félagar ýmist sátu og smápískruðu eöa dottuöu hver hjá öðrum. ,,Vinir mínir!“ hrópaði hann hásum rómi, ,,það er óttalegt, komið þið! Hann er dáinn,-----og eg hefi séð hana, hana móður hans! Hún kom inn í herbergið, alveg eins og presturinn lýsti henni, gekk að rúminu, beygði sig yfir son sinn og þrýsti augnalokunum aftur. Eg sá líka, að hún kysti hann á ennið, og svo fór hún út úr herberginu aftur, mjög kyrrlátlega eins og hún hafði komið. “ Yfirkomnir af geðshræringum gengu þeir allir inn í herbergið þar sem dauð- inn var. Briffaut hafði sagt satt, Dantíval var látinn. Daginn eftir var litli bærinn ekki búinn aö ná sér eftir snögglegt dauðsfall unga og vinsæla undirforingjans, þegar hann aftur komst í uppnám út af. nýrri fregn, sem barst út. Heitmey Dantí- vals hafði strokið með söngkennara sín- um nóttina, sem hann lézt. Sá viðburð- ur minti vini kapteinsins á síðustu orð móður hans, sem þeir hlutu aS setja í samband við það, sem fram viS þá var koniið. ,,Aumingja vinur minn!“ tautaði Briff- aut fyrir munni sér; efunargirni hans hafði beSið slæman hrekki: “Þú hefir losast við beiskan sársauka; guðhrædd sál ástríkrar móður hefir varðveitt þig frá örvænting og ef til vill frá því að stytta sjálfum þér stundir!“ BREIDABLIK. Mánaðarrit til stuðnings íslenzkri menning-. Fridrik J. Bergmann ritstjóri. Heimili 259 Spence Str., Winnipeg. Ólafur S. Thorgeirsson útgefandi. Heimili og- afgreiðslustofa blaðsins 678 Sherbrook Str., Winnipegf, Canada. Telephone 4342. Verð : Hver árgf. 1 doll. Hvert eintak 10 cts. Borgfist fyrirfram. Prentsmidja Ólafs S. Tiiorgeirssonar.

x

Breiðablik

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.