Breiðablik - 01.01.1910, Qupperneq 2
BREIÐABLIK
Og samherja þína þau seiða þér frá,
er sökum án raka þú margborinn ert
og litið með tortrygni’ og óvild er á
hvert einasta framtak þitt hugsað og gert.
Þau einblína’ úr skotum og skima inn um gátt
og skoða í spéspegli alt nema sig.
Og alt sem þau þekkja, að Ijótt er og lágt
þau langar að reyna að kenna við þig.
Þú mátt vera sterkur ef stenztu þá raun,
að standi á þér spjótin úr sérhverri átt
og tælt sé þitt fylgilið frá þér á laun
og fornvinasveit jafnan leiki þig grátt, —
að glámsaugun stari’ á þig kvöld eftir kvöld
með kynginnar nágeig í starandi sjón:
vor ferlega kynfylgja öld eftir öld,
sem altaf var landsins vors glötun og tjón.
Með ægishjálm göfginnar gaktu þinn veg
og gæt þess að láta það hvervetna sjást,
að réttlætisást þín sé óbifanleg
og ósérplæg, brennheit þín föðurlandsást!
Þá vinna þér aldrei nein glámsaugu geig,
þá glóir við ljóshimin skjöldur þinn hreinn,
þá knýtir að lífslitum Saga þér sveig
og sigrandi deyr þú, þótt standirðu einn!
—ísafold.
Guöm. Guömundsson.