Breiðablik - 01.03.1911, Side 8

Breiðablik - 01.03.1911, Side 8
l52 BREIÐABLIK Barnalegfur hug'sunarháttur og skilning- ur á lífinu skín hvarvetna í gegn, eins og vér verðum oft varir þann dag í dag meö þjóöflokkum á iágu og frumlegu menningarstigi. Lappar hafa þann dag í dag megnan ímugust á fólkstali og álíta, að drepsóttir og manndauði muni fylgja. Gallar í Austur-Afríku álíta hættulegt að telja fé, það komi í veg fyrir vöxt þess og fjölgun. í Osterode í Harzik Þýzkalandi varast almúginn sem mest að telja pen- inga, þeir fari þá þverrandi. Og í Pomm- ern þvkir varhugavert að teija ávexti á aldintré, eða gripi í fjósi, því menn eigi ekki að telja guðs blessan á fingrum sér. i) Menn á frumlegu stigi og þroskalausu eru furðu-lostnir, er þeir hugsa um æxlun- armátt líftegundanna. Forn-Gyðingarhafa nefnt þetta guðs blessan og er það fög- ur skýring trúhneigðra manna (1M122). Þessi vöxtur eða timgan kemur fornmönn- um fyrir sem dularfullur töframáttur og slæðunni frá augliti hans má enginn vera svo djarfur að lyfta, með því að fara að telja. Enginn gægist í spil guðdómsins, nema til óláns, hvort sem það er kona Lots, eða Davíð með þessu fólkstali. Á dögum jafn-guöhrædds konungs og Davíð var, átti alt að ganga vel og engin drepsótt að koma upp í landi, samkvæmt Farísea-guð ræðinni. Þegar nú samt sem áður þetta varð stöku sinnum, hlaut það að vera einhverri yfirsjón hans að kenna. Svona var hugmyndin og svo mynduðust skýringar sjálfkrafa. Frum- legur barna-hugsunarháttur, eins og títt er í æfintýrasögum og munnmælum, kem- ur hér hvarvetna í ljós. Guð stendur ekki í beinu sambandi við Davíð. Hann verð- ur að senda til hans. Samt sér Davíð engil guðs með líkamlegum augum, þar sem hann stendur á þreskivelli Arovna, Jebúsíta, og sveiflar drepsóttarsverðinu i) Hugo Gressmann: Die aelteste Geschicts- schreibung und Prophetie Israels. Göttingen 1910, bls. 150. gegn Jerúsalem. Með slíkri glöggskvgni sýnist Davíð naumast hafa þurft þess, að spámaðurinn Gað segði honum, hvar hann átti að reisa altari eða komast í samband við guð. Allirkannast við frásagtiir æfititýranna um, að gefnir ertt þrír kostir, eða þrjár bænir um að velja. Þýzkt æfintýr lætur bónda velja um þrjár hegningar (eins og Davíð): Annað hvort verður hann að eta 50 lauka hráa. eða þola 50 vandarhögg eða borga 50 skildinga. Hann var ágjarn og vildi ekki verða af með skildinga, valdi því fyrst laukana og síðan höggin, en þoldi hvorugt, svo hann mátti út með skildingana og þola þraut- irnar allar. Þriggja ára hungursneyð, þriggja mánaða flóttalíf, þtiggja daga drepsótt. Um það átti Davíð að \ elja. Eftir því sem fárið var meira, var tíminn styttri. Davíð veiur drepsóttina, því hann treystir miskunn guðs. Traustið bregst honum ekki. Jerúsalem sleppur. Engillinn sýnist rétt byrjaður, er guð læt- ur armlegg hans síga. Miskunnarverkið þeim mun áþreifanlegra sem stórar borg- ir eru stæst drepsóttar-bæli. Hegningin kemur fram við lýðinn, þó syndin sé framin af konunginum. En fár og ólán ávalt, afleiðing syndar. Nútíðar- maðurinn hugsar þar á annan veg. Land- skjálfta í Messína eða San Francisco set- ur hann eigi í samband við synd og af- brot. Fornmönnum virðist það órjúfandi lögmál. Eftirtektarverðast er hér, að syndarorsökin er hjá guði; hann egnir til manntalsins sjálfur. Með forn-Gyðing- um var syndin persónuleikatium fjarlæg- ari en eftir hugmyndum tnanna nú. Hug- niyndir vorar um guðdóminn heimta nú, að syndin sé honum svo fjarlæg, að í henni geti hann aldrei átt neinn þátt. En í fornöld var því eigi svo farið. Dutlung- ar og ýmislegt hughvarf hjá guðdóminum kemur oft fyrir og hneykslar ekki. Þetta getur orðið vildarvinum guðdómsins hættuspil, eigi síður en öðrum. Fyrir

x

Breiðablik

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.