Breiðablik - 01.03.1911, Síða 9

Breiðablik - 01.03.1911, Síða 9
BREIÐABLIK getur það þá komiö, aö guödómurinn lokki menn til syndar, til þess að geta hegnt. Því brot þarf aö vera, áður ólániö kernur. Engum hugmvndum um sjálf- ræöi mannsins eða fyrir fram ákvörðun guðs er þar blandað saman við. Margar sögur, þessarri líkar, koma fyrir í gamla testamentinu. Gað er látinn forherða einhvern, til þess að hegna honum. Langt er þó frá, að guðdóminum væri kent um alla tilhneiging til hins illa, eðá alla for- herðing gegn hinu góða. Miklu fremur var manninum sjálfum um kent. En þar sem um eitthvað torskilið var að ræða eins og bróðurmorð Kains eða þrjózku Faraós gegn Móse eða fólkstal Davíðs, hafa menn álitið yfir-heimslega veru orsök hins illa. Á elztu tímum var það illur andi, er lá fyrir dyrum og tældi menn til syndar með því að æsa hana upp í þeim (iM4‘ ). Á seinni tímum var það Sat- an. Kronikubókin, se.n rituð er mörgum öldum síðaren Samúelsbækur, lætur djöf- ulinn þess vegna koma fólkstali Davíðs til leiðar (1KT211 ). Það er ný guð- fræði þeirrar aldar og tekur hinni eldri mikið fram. Spámennirnir höfðu eigi lif- að og talað til engis. Þá munu menn spyrja, í hvaða augna- tniði þessi sögn um fólkstal Davíðs hafi myndast. Vanalega birtist tilgangurinn í einhverju smáorði í sögulok, sem þá myndar eins konar lykil að öllu. ,,Og Davíð reisti Jahve þar altari.” Vér höf- um hér eins konar helgisögu fyrir oss, er .gera vill grein fyrir helgi staðarins, þar sem Salómó-musterið síðar stóð, en það var þreskivöllur Arovna Jebúsíta. Stað urinn upprunalega helgaður af drepsóttar- englinum, er Davíð hafði séð þar eig- in augum, er hann dró sverðið gegn Jerú- salem! Þar reisti konungurinn altari í þakklætisskyni fyrir, að guð hafði hlíft höfuðborginni fyrir drepsóttinni. Sagan hefir að líkindum komið upp á dögum Salómós, í fyrsta lagi um þær mundir, að musterisgjörðin var hafin. 1 53 Áður hefði menn naumast geflð henni gaum. Nákvæmlega skýrir sagan frá kaupum þreskivallarins. Með svipuðum hætti er nákvæmlega greint frá kaupum Abra- hams á Makpela-helli að Hetítum í Hebr- on, til grafreits (1M23). Hvorki Abra- ham né Davíð vilja láta gefa sér neitt. Báðar sagnir leggja mikla áherzlu ágjald ið, er goldið hafi verið fyrir eignina frurn- byggjum landsins. Þeir afsala sér öllum eignarrétti til kaupanda. Þessi sögn vill öllum gera ljóst, að staðurinn, þar sem musterið stóð og Davíð aft líkindum hefir reist altari, hafi upphaflega verið notaður til veraldlegra starfa,—verið þreskivöllur. Eigandinn var að þreskja þar, þegar Davíð kom. En í raun og veru er með þessu verið að dylja annað, sem Gyðing- urinn vill lála menn algerlega sleppa úr minni. Jebúsítar höt'ðu lengi skoðað þetta heilagan stað. Hvaða guð Kanverjar hafa dýrkað þar, vitum vér ekki með vissu. Líklega hefir það verið guðinn Nmib. Amarna-bréfin segja, að hann eigi hús hjá Jerúsalem. Þessa heiðinglegu helgi er verið að breiðayfir með nafninu þreski- völlur; hún hefir að líkindum eld-gömul verið. Staðurinn er skreyttur þann dag í dag með klettahvelfing hins svo-nefnda Omar-musteris, sem er eitt hið fegursta í Austurlöndum. Aðal-kjarni þessarrar sögu, eins og allra sagna Gyðinga, er trúin á guð og guðlega handleiðslu. Þeir sáu guð á öllum vegum sínum og á bak við alla við- burði þjóðlífsins. Þessi skilningur á líf- inu og gangi viðburðanna er kjarninn í kenningu Jesú og meginþáttur í lífsskoð- an hvers kristins manns og menningar- þjóðanna kristnu. En sú guðstrú birtist hér óneitanlega á mjög frumlegu stigi og í rnjög barnalegum umbúðum. Þroska- ferillinn er langur, en dýrlegt að skilja.

x

Breiðablik

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.