Frækorn - 25.08.1903, Blaðsíða 7

Frækorn - 25.08.1903, Blaðsíða 7
FRÆKORN. ncy Jólín sem fæðingarhátíð Krists Williamson segir; »AUir kristnir menn vita, áð‘ 25. dág desembermánaðar nú er hinn viðurkenndi hátíðisdágur fyrir fæðingu Krists; en að- eins fáir vita það, að það hefur ei ætíð verið þannig. Það er staðhæft, að ýms- ir kristnir trúflokkar hafa slegið föstu eítthundrað þrjátíu og sex mismunandi dögum. Lightfoot gefur 15. september sem fæðingardag Krists. Epiphanus nefndir tvo trúflokka, annan sem heldur hann í júní, en hinn í júlí. Málið var úrskurðað af Júlíusi páfa, árið 337 e. Kr. og St. Chrysostomus, sem ritar árið 390, segir: Þessi dagur (þ. e. 25.des.) var einnig nýlega ákveðinn fæðingardag- ur Krists í Róm, til þess að hinir kristnu gætu í friði framfylgt helgisiðum sínum, meðan heiðingjarnir hefðu annríkt með siði sína (Brumalia, til heiðurs Bakkusi)«. í hina heimsfræga söguriti sínu, De- cline and Fall of the Roman Empire, seg- ir Gibbon; »Rómverjarnir (þ. e. hinir kristnu), er voru jafn óvísir og bræður þeirra um fæðingardag Krists, ákváðu hátíð þessa til hins 25. des., Brumalia eða vetrar- sólhvörf, en á þeim tíma héldu heiðingj- arnir fæðingarhátíð sólarinnar.» King segir í bók sinni »Gnosties and their Remains« ; »Hin gamla hátíð, sem haldin var 25. des. í minningu um fæðing hinnar ósigr- andi*) og með hinum miklu stríðs-leikj- um í Circus, breyttist seinna í minning- arhátíð um fæðingu Krists, þótt margir af kirkjufeðrunum játi, að hinn rétti fæð- ingardagur væri ókunnur á þeim tíma.« Dómherra Farrar segir; »Allar tilraunir til þess að uppgötva mánuðinn og daginn. eru árangurslausar. Það eru engar upplýsingar til, sem gera oss hægt að ákveða neitt, þó ekki væri nema mjög svo lauslega, um hinn rétta fæðingardag hans.« — Af þessu sést, að jólin eiga engan sögulegan, sannan rétt sem fæðingarhá- tíð Krists, Og þótt vér eigi viljum ta'la1 neitt á móti því, að menn haldi visáá’ri dag til minningar um fæéingu Krists, þá er víst, að enginn geti skoðað það sem skipað af guái að gera það'. Hjá guði hefur aðeins eitt hátíðaháld gildi f minn- ingu um fæðingu Krists, og það er sú hátíð,- sem verður í hverri sál, sem veitir frelsaranum viðtöku; því þá fæðist KristUr í þeirri sál sem frelsari frá synd. þvf að »svo mörgum, sem hann meðtóku, gaf hann kost á að verða guðs börn, þeim, sem trúa á hans nafn, sem ekki eru fæddir af blóðinu, né holdsins vild, né mannsins vilja, heldur af guði. Og orðið varð hold og bjó með oss, fullt náðar og sannleika.« Jóh.i, 12 —14. Sá, sem meðtekur hann, fær enn í dag að halda hátíð yfir fæðingu guðs í mann- legu holdi. Og í þeirri hátíð taka her- sveitir himinsins hlutdeild. Les. Lúk. 15, 7, 10. Kæri lesari! Hefur þú fengið hlutdeild í þessar i hátíð? , ----—----------- að að að að Maður Iðrast aldrel bessa. Að útleggja orð og gerðir annara til til hins bezta; að halda ætíð loforð s>n; vera ærlegur í sýslan sinni • loka eyrum fyrir baktali; heyra, áður en maður dæmir; biðjast fyrirgefningar á því, serií maður hefur gert rangt; að sýna hluttekningu í bágindum annr ara; ’’ að hugsa, áður en maður talar eðá framkvæmir, að maður ætíð geri hið bezta maður trúi á hið góða í mönnutv- «iö ö*---- ’ jjþ Xoöldbæn. að *) Hátíðin »Natalis Solis Invicti«, fæðingar- dagur hinnar ósigrandi sólar. Ó, Jesú gakk á undan oss, hvort æviferð cr dimm eða’ björt; breið tjaldbúð þína yfir oss, er augum lokar nóttin svört. JÓN JÓNSSON.

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.