Frækorn - 25.08.1903, Síða 15
FRÆ KORN.
127
í ljósi sorg sína yfir því, að það tókst
eigi.
Nýi páfinn.
4. ágúst fór páfakosningin fram. Kar-
dínálarnir kusu, eins og vandi ber til,
mann úr sínum hóp. Sá, sem kosníngu
hlaut, heitir Giuseppe Sarto; en sem
páfa kallar hann sig Píus X. Hann er
68 ára gamall. Kardínáli varð hann árið
1893, — Er vel líklegt, að páfaskiftin
geti haft ýmislegar afleiðingar í för með
sér; um það getur enginn sagt; en víst
er um það: páfas'aðan er ákaflega mikil-
væg : það, að yfir 200 milljónir manna
fylgja skipunum hans eins og boði frá
guði, þyðir meira en margur ætlar.
Norðmenn og hvalamáiið.
Fiskimenn í Norður-Noregi eru mjög
æstir gegn hvalaveiðum. Stórþingið
hefur hin síðustu ár hvað eftir annað
haft til meðferðar lagafiumvörp, ei banna
hvaladráp, en þau frumvörp hafa einlægt
fallið; einnig í ár. — Svo taka fiski-
mennirnir málið í sínar hendur, ráðast á
hvalastöðvarnar og brjóta þær niður og
jafna þær með jörðunni. Þeir vita vel,
að fangelsisvist verður aflciðingin, en
halda samt, að aðferð þessi verði þeirra
málstað að gagni. — Mjög merkir vís-
indamenn eru mótfallnir hvalabanni.
Norðmenn og Svíar
virðast nú fara að líta með blíðari aug-
um hvor til annars en fyr. Nýlega hefur
félag verið stofnað með félagsmenn í
báðum löndunum. Það hefur fyrir mark-
mið að stuðla að góðu samkomulagi
milli þjóðanna og heitir; »VeIferð bræðra-
þjóðanna«.
Qull
er sagt að hafi fundist í Færeyjum.
ýlfsökunar
er beðið á því, að »Frækorn« í þetta
sinn vegna anríkis í prentsmiðjunni koma
út seinna en vera ætti: Ti! þess að
bæta úr þessu er blaðið nú tvöfalt.
Til lesenda ..Frækorna.
Sökum þess, að svo margir hafa gjörst
kaupendur að blaðinu á þessu ári og
borgað fyrirfram, er upplagið af »Týnda
föðurnum« nú þrotið, og getum vér því
ekki með bezta vilja vorum sent þá bók
nú þegar til fleiri.
En hún verður endurprentuð svo fljótt
sem hægt er. Þá skal öllum verða sýna
full skil.
3 árgangur Frækorna, 1902.
Fáeinir árg. í kápu til sölu. Send inn
1 kr. 50 au. og bókin verður send um
hæl.
Það matgborgar sig að greiða and-
virði Frækorna fyrirfram. Enginn, sem
hefur gjött það mun be'a á móti þessu.
Auk þess að bjóða nýjum lyrirframborg-
andi kaupendum sérstök hlunnindi, svo
sem »Týnda löðurinn« gefins, — og
fleiri hundruð manns hafa sxtt því boði
— viljum vér bjóða sem
Gjöf til eldri kaupenda
svo lengi hin nýju upplóg hrökkva til:
Týnda föðurinn eða aðra jafnstóra ájæta
sögu alveg gratis.
Kaupendur! Yður mtmar lítið sem
ekkert um að borga blaðið, en útgefanda
munar mik ð um það I
Sendið því sem allra fyrst borgun fyrir
blaðið !
Vanskit. Sumir kvarta_ um, að btaðið
komi ekki með skilum. Ur sltku verður
bætt undireins og útgefandi fær að vita
um það
Upp/ag Frœkorna er svo að segja
þrotið hjá útg.
Óseld eint. af Fræk. óskast endursend
hið bráðasta- Upplagið er mjög svo
tæpt,