Frækorn - 22.04.1909, Side 1
HiilMÍLISBLAE)
MEÐ MYNÐUM
RITSTJORI: DAVID ÖSTLUND
10. arððttður.
Keyklauík 22. apríl 1900.
$. röiubiaö.
r
Aframl
Áfrani! lirindurn allri blekking!
Áfram! móti sól.
Andann sannri auðgum þekking,
ánauð hrnpi’ af stól.
Brjótum niður vanans virki,
vilt sem hefir þjóð.
Bróðureining alla styrki,
andans kyndi glóð,
bróðureining alla styrki,
andans kyndi frelsis-glóð.
Áfram! áfram! ei má hika,
afturför er sök. —
Út með sjónhring eygist blika,
opin stendur vök.
Marga herða hrygðar-spennur.
hjálp þeim ber að Ijá.
Tímans hjól með hraða rennur,
hika því ei má,
tímans hjól með hraða rennur,
hika því ei lengur má
Áfram! þó að alla vega
að oss hreyti smán,
áþján leið með tár og trega
tál og friðarrán.
Áfram! meðan merki veifar
myrkra dísin blind,
heimskan forn, og knapi kneifar
kalda eiturlind,
heimskan t'orn og knapi kneifar
kalda dauðans eiturlind.
(Charles Mickay. - J. J.)
„Furðuleg guðfræði.“
*Breiðablik« flytja í febrúar-
hefti þ. árs ritgjörð eftir ritstjór-
ann, séra Friðrik J. Bergmann,
þar sem hann deilir við séra
Björn B Jónsson, um innblást-
ur ritningarinnar. Séra Friðrik
j. Bergmann segir meðal annars
þessi orð í ritgjörðinni í »Breiða-
blikum«:
»En hvernig stendur á því, að
skiiningur þeirra, seni trúa bók-
staflegum innblæstri ritningarinnar,
er svo margvíslgur? Út af þeim
margvíslega skilningi á orðum biblí-
unnar er kristnin klofin sundur í
ótal sértrúarflokka. Af þeim er
lútherska kirkjan einn. Á hverju
veit séra Björu, að skilningur henn-
ar er einn réttur? Hver segir hon-
um þar til? Stendur nokkuð um
það í biblíunni? Ekki svo eg viti tii.
»Hvað gjörir hann þá, þegar
hann segist vera lútherskur maður,
fremur en kaþólskur eða aðventisti?
Hanu gjörir nákvæmlega það, sem
eg var að segja, að væri sjálfsögð
regla í guðfræðinni. Hann lætur
Krist segja sér til. Sú Kristsmynd,
sem hann ber í brjósti, leiðbeinir
honum. Skilningur hans á Kristi
og kenningu hans segir honum, að
hann vilji freniur vera lútherskur
maður en rómversk-kaþólskur eða
aðventisti. Lútherska kristindóms-
tegundin muni sannari mynd krist-
indómsins, en kaþólskrar kirkju eða
aðventistanna.
»Hér hjálpar bókstafur ritningar-
innar honurn enga lifandi vitund.
Allar þessar kirkjudeildir byggja
jafut á honum. Bæði kaþólsk kirkja
og aðventistar trúa innblæstri henn-
ar á injög svipaðan hátt og séra
Björn. í biblíunni er ekkert orð
um kaþólska kirkju, aðventista né
Lúthers-trú. Hvað segir honum til ?«
Svo langt séra F. J. Bergmann.
Vér álítum, að hinn mikils-
virti höfundur hafi sagt mjög
svo rangt frá ýmsu í þessum
áður tilfærðu orðum. Orð hans
um lútherska trú, aðventista og
kaþólska kirkju eru hreinustu
öfugmæli. Bað nær sem sé
engri átt að halda því fram, að
»allar þessar kirkjudeildir« »byggi
jafnt« á biblíunni. Vér skulum
stuttlega færa þessum andmæl-
um vorum stað.
Kaþólska kirkjan kennir aljs