Frækorn - 22.04.1909, Qupperneq 6

Frækorn - 22.04.1909, Qupperneq 6
FRÆKORN 62 12. Talaðu ekki illaumprest- inn! Hefir þú eitthvað við hann að athuga, þá er bezt að gjöra það við hann persónulega. Siðferðisástandið á vorum dögum er rotnara, en margan grunar. í ýmsum löndum eru hreint og beint »glæpamannafélög«, og sum þeirra standa í sambandi hvor við önnur bæði í löndum þeim. þar sem þau eiga heima, og eins landa á milli. Eitt þessara félaga nefnir sig »Svarta höndin«. A síðustu ár- um hafa þúsundir glæpa verið drýgðir í nafni þess félags. Félagið »Svarta höndin« heimt- ar árlega »skatt« af miklum Fjölda manna; enginn, sem vill vera óhultur um líf sitt, þorir að neita að láta úti féð, sem »hönd- in« heimtar. Um 30,000 manns lit'a af því fé, sem þannig er ógnað út af mönnum. Aðeins í New York er ætlast til, samkvæmt skýrslum Iögregl- aCCocxXó ia, lia- Tvcm. unnar þar, að »tekjur« félagsins nemi árlega meir en 20,000,000 - tuttugu mill. — krónum. Vér sýnum hér eina mynd af bréfi, sem einn auðmaðurinn í New York nýlega fékk. — Rað er ritað á ítölsku, og hljóðar þannig á íslenzku: »Háttvirti vinur! Félagið hefir ekki gleymt yður. Færið (oss) peningana, ella eruð þér dauð- ans. Vér hlífum engum,oglög- reglan getur ekki verndað yður.« preparate pcr ui TUA MOKTE Til þess að sýna, að bréfið er frá »Svörtu höndinni«, er eitt af merkjum þess sett undir bréfið. Af öðrum merkjum setjum vér hér þrjú: Merkið til vinstri tákn- ar brú dauðans, merkið efra til hægri »svörtu höndina« sjálfa, en merkið neðra til hægri þýð ir: »Þér skuluð deyja«. Sigraðu hið illa! Sasra- Hann var einhver sá mesti drykkjumaóur, sem sögur fóru af, hann Jón gamli Grímsson. Hann var einn af þeim sorglega mörgu mönnum, sem ekki hugsa um neitt, ekki lifa fyrir neitt, nema eiturbikarinn — brenni- vínsflöskuna; hann var með öðr- um orðum á þeim vegi, sem liggur þráðbeint að barmi grafar og dauða. Jón gamli var reglu- maður framan af ævi sinni, en maður, að nafni Daði, er síðar verður nefndur, kom honum til að drekka, og mun Jón þá hafa verið um þrítugt. Eftir að Jón fór að drekka, bjó hann jafnan vió sorg, eymd og mæðu. Hann hafði aldrei gifst, en átti samt einn son, er nú var 18 ára að aldri og hét Skúli, Hann var ákafur drykkju- maður, en sá, sem gaf honum fyrsta staupið, var faðir hans. Hann var í rauninni drengur hinn bezti, er hann naut sín, er sjaldan var; hann var vondur við vín. Þeir feðgar áttu heima í koti einu, rétt við sjó. Kotiðvargam- alt sjávarnaust, er róðramenn höfðu legið við f og geymt í pjönkur sínar. Kot þeirra feðga var rétt nið- ur dottið og lífshætta í því að vera. Rar var sóðalegt um að litast úti fyrir, en hálíu verra er inn kom. Óþrifnaðurinn var fram úr hófi. Þar mátti vaða aur og leðju upp í hné, rakinn draup niður af veggjunum, og alt var eftir því. Brennivínslyktina lagði fyrir vitin langar leiðir frá kof- anum. Þar voru einu húsgögn- in grautfúinn borðgarmur og bekkur hálfu verri. Koffort eitt gamalt og ógeðslegt var alt þeirra matarbúr. Eitt kvöld kom Jón gamli heim dauðadrukkinn að vanda. Hann þrammaði inn í kofann, sletti sér niður á bekkgarminn; þar sat hann og rorraði i myrkrinu um hálfa klukkustund, þar til Skúli kom heim, og var hann mjög drukkinn.

x

Frækorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.