Alþýðublaðið - 18.05.1963, Qupperneq 16
FKA VIÐTALINU VIÐ LUNS I GÆR
íslandsstjórn bíður
og athugar málin
JOSEPH LUNS, utanríkisráðherra
Hollands, ræddi stundarkorn við
blaðamcnn í gær og lét ánægju
eína í ljós yfir að hafa verið boð-
ínn hingað, en íslands væri eina
ft'ATO-landið, sem liann hefði ekki
Fueimsótt fyrr. Innan kómískra
eviga bætti hann því við, að sér
Væri það mikii ánægja að koma
jbingað svo skömmu eftir kosning-
nr í Ilollandi, þegar stjórnarmynd-
un stæði fyrir dyrrnn, því að því
fjær, sem maður væri einhverjum
eíað, því vinsælli væri maður á
lieim stað. Hann lýsti ánægju sinni
með viðtöl sín við ráðherra, en í
gænnorgun ræddi hann við Ólaf
'Zfhors, forsætisráðherra, Guðmund
ít Guðmundsson, utanríkisráð-
Ikerra, og Gylfa I>. Gíslason, við-
fekiptamálaráðherra.
Umræður snerust að langmestu
leyti um Efnahagsbandalag Evrópu
og NATO, svo sem við er að bú-
ast, þegar rætt er við mann, sem
jafnvel er kunnugur þeim málum
og dr. Luns.
Hann var m. a. spurður um að-
stöðu fiskveiðiþjóða innan Efna-
liagsbandalagsins (EBE) og lagði
þá áherzlu á, að íslenzka ríkis-
stjómin hefði enga ákvörðun tekið
EBE-málinu, engin umsókn, af
einu eða neinu tagi, hefði komið
frá henni. Hún biði og athugaði
málin. — Viðskiptamálaráðherra
hefði fylgzt með málinu, en þar
með búið. Hann kvað það sína
persónulegu skoðun, að ekki væri
viturlegt að sækja um aðild nú,
þó að hugsanlegt væri að hægt
væri að semja um aukaaðild. Það
hefði breytt mjög miklu, er samn
ingaumleitanir Breta fóru út um
þúfur, Norðmenn, Danir og írland
hefðu hætt við umsóknir sínar, þó
að hlutlausu ríkin, Austurríki,
Sviss og Svíþjóð, hefðu enn áhuga,
og þá aðallega Austurríki.
Hann lagði mikla áherzlu á, að
ekkert ríki utan EBE hefði beðið
hnekki vegna bandalagsins. Þvert
á móti mætti fullyrða, að við til-
komu EBE hefðu viðskipti almennt
stóraukizt. EBE hefði aukið við-
skipti, en ekki dregið úr þeim, og
það ætti ekki aðeins við um aðild-
arríkin sjálf, sem að sjálfsögðu
hefðu dafnað mjög vel, heldur líka
um önnur ríki, er viðskipti ættu
við Efnahagsbandalagslöndin.
Spurningu um, hvort hættulegt
Frainhald á 3. síðu.
EDfiStlS)
44. árg. — Laugardagur 18. maí 1963 — 111, tbl.
Viðbúnaður vegna
kosninga í Kenya
Nairobi, 17. maí
(NTB—Reuter)
HER og lögregla voru viðbúin því
í dag að þurfa að bæla niður ó-
eirðir, sem kynnu að brjótast út
við Iok kosningabaráttunnar í
Kenya, en fyrstu kosningamar í
Kenya fara fram á laugardaginn.
Kosið verður í níu dagra og 3.5
milljónir hafa kosningarétt.
Viðbúnaðurinn stafar af f jölda j
ofbeldisverka og árekstra milli
afrískra flokka og stjórnmála-
manna síðustu viku kosningabar-
áttunnar.
Kosið er á rúmlega 700 kjör-
stöðum, en sumir þeirra eru hreyf-
anlegir. 90% kjósenda eru Afríku-
menn. Kjósa á 167 fulltrúa á sex
fylkisþing, sem sett hafa verið á
fót samkvæmt nýrri stjórnarskrá
Kenya. Fylkin sjö fá víðtæka
sjálfstjórn.
í sjöunda fylkinu, sem brezka
stjórnin stofnaði í marz sl. og nær
yfir hluta af norðurlandamæra-
héraðinu í Kenya, verður ekki kos-
ið að þessu sinni. Sómalir þeir,
sem þar búa, liafa neitað að kjósa,
þar eð Bretar neituðu að viður-
kenna kröfuna um sameiningu
svæðisins við Sómalilýðveldið.
Næst verður kosið um 41 full-
trúa í öidungadeildina. Vegna
neitunar Sómala um að kjósa
verða þó aðeins 38 fulltrúar kosn-
ir. 25 og 26. maí verða síðan kosn-
ir 129 þingmenn til fulltrúadeild-
arinnar.
Sá flokkur, sem ber sigur úr
býtum í þessum mikilvægu kosn-
ingum, mun leiða Kenya á braut
til algers sjálfstæðis seinna á
þessu ári. Baráttan stendur á milli
Kenya African National Union,
KANU, sem Jomo Kenyatta stjórn
Framh. á 2. síðu
Hans G. Andersen
tekur við starfi
Haraldar í Ósló
HINN 15. júlí næstkomandi lætur
Haraldur Guðmundsson, ambassa-
dor, af störfum í Osló fyrir aldurs
sakir, en Hans G. Andersen nú-
verandi ambassador í Stokkhólmi
tekur þá við ambassadorsstarfinu
í Osló. Páll Ásgeir Tryggvason,
sendiráðunautur í Kaupmanna-
höfn, mun veita scndiráðinu í
Stokkhólmi forstöðu, sem sendi-
fulltrúi (Chargé d’Affaires a. i.)
þangað til nýr ambassador verður
skipaöur þar.
SÍÐDEGISSKEMMTUN A-USTANS
A-LISTINN heldur almenna síðdegisskemmtun í Súlnasal Hótel Sögu næst-
komandi sunnudag, 19. maí, kl. 2 eftir hádegi.
SÖNGKVAR
Þuiíður Guðmundur Ófeigur Eggert Sigurður
D A G S K R Á :
1. Þuríður Pálsdóttir, óperusöngkona, syngur einsöng. Jórunn Viðar, píanóleikari, Ieikur
undir.
2. Ávörp: Guðmundur Magnússon, skólastjóri, Ófeigur J. Ófeigsson læknir og Eggert G. Þor-
steinsson alþingismaður.
3. Söngkvartett syngur: Árni Tryggvason, Bes si Bjamason, Brynjólfur Jóhannesson og Lárus
Ingólfsson.
4. Kynnir: Sigurður Guðmundsson.
Einar Jónsson leikur á píanó milli atriða. — Síðdegiskaffi verður framreitt meðan á dag-
skrá stendur.
Aðgöngumiðar verða afhentir á skrifstofu flokksins í Alþýðuhúsinu og hjá trúnaðar-
mönnum um allan bæ. — Allir stuðnings inenn A-LlSTANS eru^velkomnir.