Alþýðublaðið - 26.05.1963, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 26.05.1963, Qupperneq 7
SÆNSKUM STliD- ENTUM FJÖLGAR RÚMLEGA 40.000 stúdentar stunda nú nám við sænska háskóla og æðri skóla, en árið 1970 mun þessi tala vera kominn upp í 80.000 sagði menntamálaráöherrann, Ragnar Edemann, í ræðu, sem hann flutti S Uppsölum 1. maí síðastliðinn. Menntamálaráðherrann skýrði ennfremur frá því, að margar nýj- ungar væru á döfinni í málum hinna æðri skóla í Svíþjóð, vegna þess að þjóðin þyrfti stöðugt á auknum fjölda sérmenntaðra manna að lialda. Áætlun um stór felldar breytingar í skólamálum, bvo sem fjölgun æðri skóla og aukna deildaskiptingu í þeim, er fullgerð allt til ársins 1970, Fimmti háskóll Svíþjóðar, hinn nýi háskóli f Umea, mun verða tilbúinn árið 1970, en þegar er séð fyrir, að hann verður ekki nema bráðabirgðalausn á skólaskorti Svía. Er þegar farið að hugsa til þess að reisa sjötta háskólann í Svíþjóð. Edemann ménntamálaráðherra sagði að síðustu, að seint yrði gott og fullkomið skólakerfi ofmetið, því að á því ylti heill og velferð þjóðarinnar, og raunar allra þjóða, f lengd og I bráð. GLÆPIR AUKAST TIL að koma í, veg fyrir hina auknu tölu hvers kyns afbrota í Bandaríkjunum og til að upplýsa þau, er aöeins eitt, sem lögregl- una skortir tilfinnanlega, sagði J. Edgar B. Hoover yfirmaður Banda risku leyniþjónustunnar (F.B.I.) fyrir skömmu í viðtali, en það er aðsíoð almennings. Kvað Hoover mjög skorta á það, að íbúar Baridaríkjanna greiddu eins götu leyniþjónustunnar og þeir gætu. Hoover sagði, að þstta yrði oft til þess að gera augljós mál flókin og ylli afar miklum töf um og erfiðleikum. Að sögn Hoov ers hafa afbrot í Bandaríkjunum aukizt síðastliðin fimm ár fimm sinnum meira en íbúunum hefur fjölgað á sama tímabili. Iloover var mjög áhyggjufullur yfir þess ari þróun og taldi, að þetta hlyti að enda með skelfingu, ef ekki yrði sterklega gripið í taumana og það fyrr en seinna. Tveir Iögreglumenn munu vera á hverja þúsund íbúa Bandaríkj- anna, sagði Hoover að lokum, og þess vegna veröur fólk að gera sér ljóst, að það verður að vinna ötullega með lögreglunni og leyni þjónustunni, ef takast á að stöðva þá miklu aukningu afbrota, sem ár lega á sér stað í Bandaríkjunum. KIM Sft AN I KAFFI- TÍMANUM HÉR á myndinni sjáum við nýstárlega hljómleika. Þeir fara fram í húsagarði einum í Glasgow í Skotiandi og eru haMnir af tveimur litlum systkinum, 5 og 7 ára. Á- heyrendurnir eru mæður og böm úr nágrerminu og virð ast skemmta sér konunglega af myndinni að dæma. ,Þess má geta, að á efnisskrá har- monikuleikaranna ungu vovu um þrjátíu lög. WWWWHWWWWMMWW Liz safnar málverkum ELÍZABET TAYLOR, kvik- myndastjarnan fræga og fagra, veit hvað hún á að gera við alla þá peninga, sem kvikmyndirnar gefa henni í aðra hönd. Hún er dóttir eins mesta listaverkasala í Kaliforníu, Francis Taylor, og hag ar sér samkvæmt því. Þegar í æsku kenndi Francis dóttur sinni það, að aldrei væri peningum eins vel varið og þegar keypt væru fyr ir þá listaverk. Elízabet breytir dyggilega eftir kenningum föður síns og hcfur eignast fjölmörg listaverk um ævina. Um daginn keypti hún til dæmis á uppboði í Lundúnum málverk eftir Van Gogh á sem svaraði nokkrum millj. ísl. kr. og áður hefur hún meðal annars aflað sér dýrra verka eftir Renoir, Cassatt, Modigiiani, Rou ault, og Frans Hals. Liz Taylor er jafnvel svo séð í peningamálum, að hún leigir myndir sínar út til listasafnsins í Los Angeles og græðir þannig stórlega á meistur um málaralistarinnar. SMÆLKI ASdáandi: Mikið lifandis ósköp ertu með fallega hálsfesfs. Leikkonan: Já, finnst þér húir ekki falleg. Hún er gerð úr ölf- um giftingahringjunum mínum. ★ — Dóra mínt Viltu giftast mér? — Nei, Pétur minn, — en ég ver'ð að segja, að þú heíur gdðart smekk. * Kennarinm Hvað er mannæta. Jón? Jón (hugsar sig um): hað veít ég ekki. Kennarinn: Hvað værir þú, ef þu ættir foreldra þína? Jón (snöggur upp á lagið): Muii- aðarleysingi. ★ Viðskiptavinur (kemur inn á skril stofuna): Hvaða aðili er ábvreur hér? 6 ' Sendisveinninn (auðmjúklega).- Ef þer eruð að spyrja um þann, sem skuldinm er jafnan skellt á, þá er það ég, herra minn. ★ —~ Endaði leikritið vel? — Já, það held ég. Að mlnristá kosti virtust allir fegnir, þegar það var búið. ★ Kvikmyndadísin (nýgift); Er þettá húsið þitt? Eiginmaðurinn: Já, góða mín. Kvikmyndadýsin: IVlér kemur þaíf eitthvað svo kunnuglega fyrir sjón- ir. Ertu viss um, að við höfum ekki verið gift einhvern tíma áður. Sunnudagur 26. maí. 8.30 Létt morgunlög. — 9.00 Fréttir. 9.10 Morguntónleikar: — 10.10 Veðurfregnir). 11.00 Messa í Neskirkju (Prestiu:: Séra Jó nTorarensen. Organ- leikari: Jón ísleifsson). 12.45 Hádegisútvarp. 13.45 Miðdegistónleikar: Óperan „Siegfried“ eftir Wagner; loka- þáttur. 15.30 Kaffitíminn: a) Josef Felzmann og fóiagar hans leika. b) Carl Loubé og hljómsveit hans leika Vínarlög. 16.30 Vfr. — Guðjónusta í Aðventkirkjunni (Júlíus Guðmundsson prédikar; kár Aðventkirkjunnar og tvöfaldur karlakvartett sygja. Organgleikari: Sólveig Jónsson). 17.30 Bamatími (Skeggi Ásbjamarson). 18.30 „Efst á Amarvatnshæðum": Gömlu lögin sungin og leikin. 18.55 Tilkynningar. — 19.20 Vfv. — 19.30 Fréttir og íþróttaspjall. 20.00 Svipast um á suðurslóðum: Séra Sigurður Einarsson fiytus* fimmta erindi sitt frá ísrael. 20.15 Kórsöngur: Söngfélag Hreppamanna syngur. Söngstjóri Sig- urður Ágústsson í Birtingaholti. Einsðngvari: Guömundur Guðjónsson. Píanóleikari: Skúli Halldórsson. 20.55 Sunnudagskvöld með Svavari Gests, spurninga- og skemmtl- þáttur. 22.00 Fréttir og veðurfr. — 22.10 Danslög. — 23.30 Dagskrárlok. Kvölddagskrá mánudagsins 27. maí. 20.00 Um daginn og veginn (Séra Gunnar Ámason-. 20.20 íslenzk tónlist: Tvö verk eftir Árna Bjömsson. 20.40 Leikhúspilstill: Sveinn Einarsson ’fil.kand. segír fréttir fr& útlöndum. j 21.05 Frá Menton-tónlistarhátíðinni f Frakklandi. 21.30 Útvarpssagan: „Alberta og Jakob“ eftir Coru Sandel; V. (Hannes Sigfússon). 22.00 Fréttir og veðurfregnir, 22.10 Hljómplötusafnið (Gunnar Guðmundsson). 23.00 Skákþáttur (Sveinn Kristinsson). — 23.35 Dagskrárlok. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 26. ma( 1963 £

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.