Alþýðublaðið - 26.05.1963, Side 15
,,Af hverju segið þér það, herra
Halliday?"
,,Hún var drepin af manni, sem
heitir Wilbur. Hann er eiturlyfja
neytandi og hefur verið sleppt
úr fangelsi gegn skilorði.“
Hann neri feitan nefbroddinn
með handarbakinu.
„Af hverju haldið þér, að hann
hafi drepið hana?“
Ég dró djúpt andann.
„Ég veit, að hann gerði það.
Það var hennar vegna sem hann
fékk tuttugu ára dóm. Þegar lion
um var sleppt, fór hann að leita
að henni. Hann œtlaði að drepa
hana, en gat ekki fundið hana.
. Ég sagði honum hvar hún væri.
Hann fór til hússins, fann hana
og drap hana. Ég var þegar bú-
inn að hringja til Vasari og að-
vara hann um, að lögreglan væri
búin að sjá hann. Þegar Wilbur
kom, var Vasari þegar farinn.“
Keary tók upp blýant og tók
að slá honum í borðið. Harð-
neskjulégt og feitt andlitið á hon
iim var alveg svipbrigðalaust.
„Mjög fróðlegt," sagði hann,
„en ég fylgist ekki alveg með
því. Hvernig þekktuð þér þennan
Wilbur?“
„Það er löng saga,“ sagði ég.
„Kannski væri bezt, að ég byrj-
aði á byrjuninni."
Hann starði á mig.
„Jæja, allt í lagi. Ég hef nóg-
an tíma. Hvernig er þá sagan?“
„Þetta er yfirlýsing, lögreglu-
foringi, sem mun bendla mig við
málið,“ sagði ég. „Það mundi
spara tíma, ef þér fengjuð ein-
livem til að skrifa hana niður.“
Hann strauk á sér kjálkann og
ygldi sig.
„Eruð þér vissir um, að þér
viljið gefa yfirlýsingu, herra
Halliday?"
„Já.“
„Jæja, allt í lagi.“
' Hann opnaði skúl’fu í skrifborð
inu og tók upp lítið segulbands-
tæki. Hann setti það á borðið,
setti hljóðnemann í samband og
snéri honum að mér. Hann setti
tækið af stað og spólurnar tóku
að snúast.
„Byrjið þá, herra Halliday: lát
» um oss heyra yfirlýsinguna."
Ég talaði við litla hljóðnem-
ann. Ég sagði alla söguna: hvern-
ig ég hafði fyrst hitt Rimu Mar-
shall og bjargað lífi hennar, þeg-
ar Wilbur réðist á hana: hvernig
hún hafði bent lögreglunni á
hann, svo að hann fékk tuttugu
ára dóm. Ég útskýrði sönghæfi-
leika hennar, hvernig ég hafði
Wuðsöii,
siað,
endilega viljað verða umboðsmað
ur, hvernig ég hafði reynt að fá
hana læknaða, hvemig við höfð-
um brotizt inn í Pacific kvik-
myndaverið til að stela fé til að
greiða með lækningu hennar.
Hann sat þama og andaði
þungt og starði á rykuga~borð-
plötuna, hlustaði nákvæmlega og
auguil leituðu við og við til spöl-
anna.
Hann leit snöggvast upp og
horfði á mig, þegar ég kom að
því, er varðmaðurinn var skot-
inn, síðan leit hann niður aflur
og kjálkarnir tönnluðust á tugg-
unni.
Ég sagði hljóðnemanum frá
því hvernig ég hafði farið heim
aftur og tekið aftur til við námið
og loks stofnað fyrirtæki með
Jack Osborn. Ég sagði frá brúnni,
myndinni í LIFE og livernig
Eima hafði komið til Hollands
City og byrjað fjárkúgun. Ég
sagði frá slysi Saritu og hvemig
mig vantaði peninga til að bjarga
henni.
„Svo að ég ákvað að drepa
þennan kvenmann,“ sagði ég.
„Þegar ég loksins fann hana, gat
ég ekki íengið mig til þess. Ég
brauzt inn í húsið og fann byss-
una upp úr vasanum og lagði
hana á borðið. „Þetta er hún.“
Keary hallaði sér fram til að
skoða byssuna, siðan rumdi í
honum, og hann hallaði sér aftur
í stólnum.
„Á meðan ég var að leita að
byssunni fann ég kassa með bréf-
um. Eitt af bréfunum var frá
konu, sem heitir Clare Sims , ■. .“
„Já, ég veit það. Ég fann bréf
ið líka og las það.“
Ég stirðnaði upp og starði á
hann.
„Úr því að þér funduð bréfið.
hvers vegna tókuð þér þá Wilbur
ekki?“
„Haldið áfram með yfirlýsing-
una, herra Halliday. Þegar þér lás
uð bréfið, hvað gerðuð þér þá?“
„Ég fór til San Fransisvi og
fann Wilbur. Ég sendi honum
bréf og lét liann hafa heimilis-
fang Rimu og sendi honum líka
þrjátíu dollara fyrir farinu hing-
að niður eftir. Ég fylgdist með
þessu. Hann fór frá San Franc-
iseo daginn sem hún dó. Hann
kom hingað niður eftir og drap
hana.“
Keary teygði fram feitan fingur
og stöðvaði tækið. Síðan opnaði
hann skúffu og tók upp mjög
þykka möppu. Hann opnaði hana
og handfjatlaði innihaldið. Hann
fann pappírsörk og umslag, sem
liann ýtti til mín.
„Þetta bréfið, sem þér skrif-
uðuð?“
Hjarta mitt kipptist við, þegar
ég þekkti prentstafina. Ég leit
upp og starði á Keary.
„Já, hvernig náðuð þér í það?“
„Það fannst á Andersonhótel-
inu í San Francisco," sagði
Keary. Wilbur fékk það aldrei."
Ég fann blóðið skyndilega stíga
mér til liöfuðs.
„Fékk hann það aldrei? Auð-
vitað fékk hann það! Og hann
fór eftir því! Hvað eruð þér að
segja?“
„Hann fékk það aldrei," sagði
Keary. „Þetta bréf kom að
morgni hins sautjánda. Wilbur
var handtekinn, er hann var að
koma heim á hótelið að kvöldi
hins sextánda. Hann var hand-
tekinn fyrir að bera á sér eitur-
lyf, og hann var sendur til að
afplána það, sem eftir var af dóm
inum. Hann er núna í fangelsi."
Hann tók upp blýantinn og byrj
aði að slá lionum í borðið aftur.
„Þegar ég fann bréfið frá Clare
Sims, þar sem þessi Marshall
kvensnift var vöruð við því, að
Wilbur væri á hælunum á henni,
hafði ég samband við hótelið í
Friseo. Mér var sagt, að Wilbur
hefði verið handtekinn. Næsta
morgun fékk lögreglan í hendur
bréf yðar. Mér var síðan sent
það. Við gerðum ekkert í því, þar
eð Wilbur gat ekki aðeins hafa
drepið hana, heldur fékk bréfið
aldrei.“
Ég sat þarna, starði á hann og
gat ekki trúað honum.
„El’ liann drap hana ekki, hver
gerði það þá?“ sagði ég hásum
rómi.
Keary var leiður á svip.
„Það virðist vera erfitt að sann
færa yður. Ég sagði yður það
strax hver drap hana — Jinx
Mandon. Ég sagði yður að við
vissum nóg um hann til að setja
hann í gasklefann og þangað fer
hann. Hann fór á bak við Rimu
Marshall. Hánn hitti þessa söng-
kpnu, Pauline Terry, sem var í
Santa Barba, og hann varð ást-
fanginn af henni. Rima komst að
því og liótaði að segja lögregl-
unni frá honum, ef hann hætti
ekki við þessa stúlku. Hann var
um það bil að fara, þegar þér
hringduð. Það gaf honum afsök-
unina fyrir því að fara, en hún
var ekki alveg á því. Hún réðist
að honum með hníf. Það urðu
átök. Hann gekk berserksgang
og drap hana. Það er hans saga.
Við höfum hnífinn. Við höfum
blóðug föt hans og við höfum
játningu hans.“
Ég hélt áfram að stara á hann,
of niðurbrotinn til að segja nokk
uð. Ég hafði gefið mig honum á
vald til einskis.
Það varð löng þögn og Keary
liélt áfram að slá blýantinum í
borðið, síðan sagði hann: „Virð-
ist svo sem þér hafið talað yður
inn í dálítið erfiða aðstöðu, ekki
satt?“
„Já. Ég var viss um, að Wilbuir
hefði drepið hana og það værl
ég, sem bæri ábyrgðina. Ég gat
ekki látið Mandon þjást.“
Keary spólaði bandið til baka.
„Jæja? Hvers vegna skylduð
þér hafa áhyggjur af annarri eins
rottu?"
Hann tók spóluna af og lagði
hana á borðið.
„Það vill svo til, að þannig lít
ég á rnálið," sagði ég lágt.
„Jæja, það er hugsanlegt, að
þér sleppið við ákæru um morð
__ Hvað segirðu um þennan búning, pabbi, hann kostar 50 <
NÝKOMIÐ
í T A L S K A R
kven næ/on regnkápur
NÝIR LITIR
Vegna tollalækkana er verðið aðeins kr.
621,00.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 26. maí 1963 |,S '