Alþýðublaðið - 30.06.1963, Síða 2
RLTOIiiglgtÐJfi
gMatjórir: Gijll J. Asirx>rssor (áfe) o» isenedlkt Gröndal.—AOstoOarxltstJön
SOSrgrin GuCmundsspn - Fréttastjóii: Slgvaldl Hjálmarsson. — Gimar:
HWW — 14 30J — 14 903. Auglýsingaslml: 14 906 — ASsetur: AlþýOuhúsiö
- Fren-smiCja AlþýOublaCstns, Hverfisgötu 8-10 - Askriftargjaid kr. 65.00
í mánuök. t l«.aaaölu kr. 4 00 eint. Gtgefandi: AlþýBuflokkurina
Óhreinar línur
, ÍSLENDINGAR eru tortryggnir gagnvart
I sterku yfirvaldi, enda hefur þjóðin langa og slaema
reynslu í þeim efnum. Áratug eftir áratug hafa
, (kjósendur notað atkvæðisrétt sinn þannig, að þeir
j hafa eflt fjóra og stundum fleiri flokka, en neitað
j að fá ndkkrum einum flokki hreinah meirihluta.
j Þessi staðreynd hefur leitt til sérstakra stjóm-
í arhátta, sem em orðnir föst hefð hér á landi. Það
j eru samsteypustjórnir, þar sem tveir eða fleiri
j flokkar semja um lausn mála. Flokkarnir hafa
j þannig stjórnað eftir stefnu málamiðlunar, þar
j sem allir fá eitthvað fram, en enginn alla sína
j stefnu.
Þetta ástand hefur stundum leitt til þess, að
! óbreyttum kjósendum finnst stjórnmálin ruglings-
í Heg og munur á flokkum minni en hann raunveru-
{ lega er. Ekki bætir það úr skák, þegar blöð flokk-
j anna auka ruglinginn með hinum furðulegustu
I fullyröingum. Má nefna sem dæmi 30 ára tilraunir
j kcxmmúnista til að telja fólki trú um, að þeir séu
j aðeins róttækir jafnaðarmenn, þótt þeir séu auð-
í vitað hreinir kommúnistar, eins og „Leið íslands
j til sósíalismans” sannar, ef vel er lesið. Litlu betra
er það, þegar Morgunblaðið reynir að telja lesend-
: um trú um, að Framsóknarmenn séu í rauninni
! sósíaiistar, sem ætli að koma á sósíalisma með
í íkommúnistum! Hvort tveggja er þetta stórhættu-
j Jegur misskilningur.
j Núverandi ríkisstjórn ber það með sér, að tveir
! ólíkir flokkar standa að henni. Á ýmsum sviðum
rmá sjá merki hins gamla Sjálfstæðisflokks í gerð-
um hennar, en annað ber ótvíræð merki jafnaðar-
! manna. Af hinu síðarnefnda má nefna almanna-
tryggingar, verkamannabústaði, áætlunarbúskap,
sterkan ríkis-seðlabanka, verðlagseftirlit og fleira.
Allt þetta mundi heyra undir það, sem Morgun-
blaðið nú kallar „stjórnlyndi” og telur sig vera
j andstætt.
Frajmsóknarmenn hafa verið á molr^flestu
þessu, enda eru þeir í eðli sínu íhaldssamur flokk-
I ur. Þeír vilja gjarna hafa höft til að geta skammt-
| að fólki gæði lífsins og gert menn háða sér. En
> slík höft eru ekki ríkisafskipti eins og jafnaðar-
i rnenn hugsa sér þau. Þar eru seðlabanki, áætlunar-
búskapur og tryggingar befri dæmi. Framsóknar-
menn eru tækifærissinnaðir og í sumum málum
stefnulausír, svo að þeir eiga létt með að vinna
með 'kommúnistum og gera það oft. Auk þess
I hafa hreinir kommúnistar smogið inn í Framsókn-
arflokkinn og hafa þar áhrif, en það er einnig ann-
að mál. Framsóknarmenn eru ekki hættulegir af
því að þeir séu sósíalistar — heldur af því að þeir
skilja ekki kommúnismann og geta fallið fyrir
honum, exns og íhaldssamir bændaflokkar hafa
stundum gert annars staðar.
AUGLÝS
G
frá Happdrætti Alþýðublaðsins
Happdrætti Alþýðublaðsins vill hér með minna á, að aííir þeir, sem fara í
sumarfrí á næstunni og eiga miða í HAB, gleymi ekki að endurnýja fyrir
ágústdráttinn.
Skrifstofa dappdrættisins er opin venjulegan skrifstofutíma og er að Hverf-
ísgötu 4, Reykjavík. Sími 17458.
Hðppadrætti AlþýÖublaðsins
Steypuvinna...
Framhald.af 1. síffu.
sér grein fyrir því aff svo stöddu
bæði kæmu til hækkanir ýmsar og
svo hitt, að enn væri ekki endan
lega frá því gengið hve mikið yrði
borið í innréttingar o.s.frv.
Til þess að menn átti sig betur
á stærð hússins má geta þess, að
hæð þess, þar sem það er hæst frá
gólfi upp í hvelfingu, er 19 metrar
þ.e.a.s. inn í því gæti rúmazt 6
hæða hús. Húsið er 45 sinnum 50
metrar að flatarmáli, en salurinn
verður þó ekki alveg svo stór aSS
innanmáli.
Við höfum hlerað, að Steypustöff
in, sem sjá mun um steypuna í hús
ið, hafi gert margar prufur a£
steypu fyrir þetta verk, og tn.a.
prófað þær í mótum með sarna
halla og er á þakinu.
Miss Claíral Háralitur
og „Loving Care'
allir litir
HÁRLAKKSGRÍMUR
Grennið yður meðan þér
sofið með
BOWMAN
grenningar-
aðferðinni. 1
Mælt með a£ læknum.
tízku
skólii
Laugaveg 133. Sími 20743
Kynnið yður hin eftirsóttu hand-
og andlitssnyrtingarnámskeið og
einnig hin vinsælu tveggja mán-
aða námskeið. — Upplýsingar
daglega eftir kl. 1 e. h.
Sími 20-743.
Beztu fáanlegu snyrtivörur höf-
um við jafnan fyrirliggjandi.
Sérfræðingur leiðbeinir yður
um val á hinu rétta.
2 30. júní 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ