Alþýðublaðið - 30.06.1963, Síða 7
Hitti eiginmanninn
leiB til unnustans
a
19 ARA gömul slúlka, Barbara
Burgess, var á leið frá Ástralíu til
Bretlands á skipi. Erindi hennar
var að giftast æskuunnusta sín-
um, Robert Hathorn, en hann beið
henanr í London. En þá kom
skyndilegt babb í bátinn. Um borð
í skipinu rakst Barbara á ungan
Þjóðverja. Werner Schnell hét
hann. Barbara hafði aldrei séð
eins myndariegan mann. Og á svip
stundu gleymdi hún vesalings Ro-
bert.
Þau Barbara og Robert höfðu á
kveðið að halda brúðkaup sitt,
strax eftir að Barbara væri kom-
inn til Englands frá Ástralíu, og
Robert hafði greitt fyrir liana far-
gjaldið il London. Barbara hafði
kynnzt Robert fyrir átta árum er
hún var búsett á Englandi og gekk
þar í skóla. Hún fluttist svo til
Ástralíu ásamt foreldrum sínum,
en hafði í öll þessi átta ár staðið
í þréfaskriftum við Robert.
Á skipinu, sem hét Castel Fel-
ix, varð Barbara yfir sig ástfang-
inn af 20 ára gömlum Þjóðverja,
Wemer Schnell. Þau fóru úr skip
inu í Napólí og eru núna stödd I
Hamborg, þar sem Schnell býr á-
samt foreldrum sínum.
í Hamborg skrifaði Barbara for
eldrum sínum og Robert, unnusta
sínum, og skýrði frá því, að þessi
örlagarika sjóferð hefði alveg
breytt framtíðarfyrirætlunum sín-
um, og nú hyggðist hún ganga að
eiga Schnell í stað Hathorns.
— í fyrstu neitaði móðir mín ein
dregið að gefa mér Ieyfi til að
giftast Werner, segir Barbara. Og
Bob (gælunafn Roberts) hótaði að
lögsækja mig fyrir tryggðarof.
— Svo fóru á milli okkar fleiri
bréf, heldur Barbara áfram. Móðir
mín hvarf frá neitun sinni og Bob
hætti við lögsóknina.
Barbara kveðst vera mjög hrygg
yfir að hafa valdið Robert von-
brigðum, en við því sé ekkert að
gera. Hún kveðst elska Werner
og engan nema Werner.
Robert var afar daufur í dálk-
inn, þegar hann var spurður um
þetta mál á heimili sínu í London.
WWWWWWWWWWM*WiWW
SKAÐLEGT
AÐ SITJA
— ÞAÐ er hættulegt að
sitja mikið kyrr við vinnu,
segir prófessor Poul Bonne-
vie, í grein, sem hann ritar í
„Dansk Ttekninsk Tids-
skrift“. Þetta er sérstaklega
hættulegt fyrir kvenfólk og
veldur fyrirtímafæðingum
og truflunum í móðurlífi.
Með hreyfingunni örvast
blóðrásin og helzt í heil-
brigðu horfi. Það er mjög
mikilvægt, að fólk hafi næga
hreyfingu.
IHMmWmWMWHWHHIW
Hann kvaðst vera afar vonsvikinn.
— Ég var búinn að kaupa hring
ana, sagði hann. Allt var undirbú-
ið af minni hálfu.
Já, svona fór um sjóferð þá.
Werner hreppti Barböru en Bob
sat eftir með sárt ennið.
SMÁTELPUR
ISKIPUM
Hafnargjöldin í Gæfle í Svíþjóö
hafa löngum átt viS þaS vandamál
að stríða, hvernig hægt er að koma
í veg fyrir að unglingstelpur venji
komur sínar um borð í erlend skip
í höfninni.
Fyrir nokkru síðan var (bað tekið
til bragðs, að senda skipherrnnum
á skipum þessum orðsendingar og
biðja þá um að Ijá þessu máli
liðsinni sitt og hindra gestakom-
ur smáteipnanna. Voru bréfin rituð
á sex tungumálum: Sænsku, þýzku,
finnsku og spænsku.
— Árangurinn af þessu hefur
orðið mjög góður, segja lögreglu-
yfirvöldin í bænum. Skipherrarnir
hafa sýnt máli þessu fullan skiln-
ing og látið undirmenn sína vera
án blíðu smámeyjanna.
Einkalíf
Holmes
Leikstjórinn Billy Vilder hefur í
hyggju að gera kvikmynd með
nafninu „Einkalíf Sherlock Holm-
es.” Styðzt hann þar auðvitað við
hina kunnu persónu úr sögum
enska rithöfundarins Sir Athur Con-
an Doyle.
Vilder hyggst fá leikarana Peter
V'Toole til að leika Sherlock holrn-
es.” Styðst hann þar auðvitað við
hlutverk dr. Vatson. Verður þeim
kumpánum vel borgið að allra á-
liti, ef þessir kunnu leikarar taka
þá að sér.
Kvikmyndafélagið, The Mirisch
Company, mun standa að töku kvik
myndarinnar, ef úr henni verður.
Hefur fyrirtækið Sir Nigel Films Ltd.
( London einkarétt á Sherlock Hol-
mes og yeitir The Mirish Company
leyfi til að hagnýta sér hugmynd-
ina.
ÞESSAR þrjár ungmeyjar, sem hér sjást á myndinni, eru
enskar dans- og söngkonur. Nöfn þeirra eru talin frá vinstri:
Diane Couth 17 ára, Linda Lawrenee, 18, og Georgina Allen
19 ára.
8.30 Létt morgunlög. 9.00 Fréttir.
9.10 Morguntónleikar: (10.10 Veðurfregnir).
11.00 Messa í hátíðasal Sjómannaskólans (Prestur: Séra JÓn Þor*
varðsson. Organleikari: Gunnar Sigurgeirsson).
12.15 Hádegisútvarp.
14.00 Miðdegistónleikar: Frá tónlistarhátíðinni í Bergen í vor:
a) Greig: Strengjakvartett í g-moll.
b) M. Bækkedund syngur lög eftir Grieg.
c) Grieg: Píanókonsert í a-moll, op. 16.
15.30 Sunnudagslögin. (16.30) Veðurfregnir).
17.30 Barnatími (Anna Snorradóttir):
Sendibréfum svarað.
b) Nýtt framhaldsleikrit eftir Ingibjörgu jónsdóttur
c) Sjöunda kynning á verkum Jóns Sveinssonar (Nonna).
Haraldur Hannesson talar um Nonna og Steindór Hjörleifssoii
les úr bókinni: Á skipalóni.
18.30 Eitt er landið ægi girt, — gömlu login.
18.55 Tilkynningar. — 19.20 Veðurfregnir. — 19.30 Fréttir.
20.00 Svipast um á Suðurslóðum: Séra Sigurður Einarsson flytui*
lokaerindi sitt frá ísrael.
20.15 Kórsöngur: Karlakórinn Fóstbræður. Söngstjóri: Ragnaí*
Björnsson. Einsöngvarar: Eygló Vikorsdóttir, Erlingur Vig -
fússon, Guðmundur H. Jónsson, Haraldur Kristjánsson, Hjaltí
Guðmundsson og Runólfur Ragbjartsson. Píanó: Carl Billich-
Klaririetta: Gunnar Egilson, flauta: Averill Williams.
Lög eftir Sigfús Ilalldórsson, Jónas Tryggvason, Pál ísólfssoi',,
Palmgren, KieRand, Bergman og Ragnar Björnsson.
21.00 Úr verkum Theódóru Thorodden. — Flytjendur: Baldviib
Halldórsson, Ólöf Nordal, Guðmundur Thoroddsen og Ingí--
björg Stephensen. Ennfremur tónleikar: Lög við texta eftisr
Theodóru Thoroddsen.
22.00 Fréttir og veðurfr. 22.10 Danslög. 23.30 Dagskrárlok.
MÁNUDAGUR 1. JÚLÍ.
.20.00 Erindi: Trúin á tæknina (Hannes J. Magnússon).
21.00 Kanadisk þjóðlög. (Tveir kórar syngja.
21.30 Útvarpssagan: „Alberta og Jakob” efir C. Sandel.
22.35 Frá kammertónleikum í Austurbæjarbíói 27. maí.
HIN SiOAN
ALÞÝÐUBLAQEÐ — 30. júní 1963 ^