Alþýðublaðið - 21.08.1963, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 21.08.1963, Qupperneq 5
 iííiííiíiííií MIKILL þokubakki lagrðist yfir Keykjavík um fjögur- Ieytið í gærdag. Var þoku- veggurinn mjög þykkur og huldi algerlega útsýn til hafs. Yfir bænum leystist þokan rétt strax upp en • lá við ströndina og skammt inn á landið. Blaðið aflaði sér upplýs- inga á Veðurstofunni um þetta fyrirbæri, og skýrði Páll Bergþórsson veðurfræð- ingur svo frá, að í dag hefðu Iegið þokubakkar til hafsins og síðan borizt að landi með hafgolunni. Rakt loft er hér yfir, og er það kólnar, myndast þokan. — Landið er það hlýrra, að þok an greiðist þar sundur. Þetta fyrirbæri er óal- gengt á svona björtum og hlýjum dögum. Ljósmyndari blaðsins fór upp á þak háhýsisins við Austurbrún 2 og tók þessa mynd af þokubakkanum. FLOIINN ER UNDAN GERPI W Framhald af 1. síðu. ar torfur, en á þfessu svæði var fjöldi norskra reknetabáta, sem fengu góðan afla. Síldin sem veið- ist út af Gerpi er yfirleitt mjög góð og fer hún öll í salt, eða eft ir því sem stöðvarnar hafa undan. Um síldveiðarnar hér við Suð urland er það að frétta, að afli var heldur tregur í gær og voru bátarnir með um 500 tunnur. Ekki er lengur tekið á móti síld í Vestmannaeyjum, og stafar það af manneklu og eins er verið að lesta þar síldarmjöl í fiskiskip. Eins og kunnugt er hafa fiski- fræðingar okkar talið, að >arna væri um rányrkju að ræða, og síð ur mælt með því að þessar veið- ar héldu áfram. Eskifirði í gær. Hér er saltað af fullum krafti en mannekla háir nokkuð, í sölt unarstöðinni Auðbjörgu hefur ver ið saltað í 11.700 tunnur. Tvær nýjar söltunarstöðvar erú hér1, en þær voru nokkuð síðbúnar. Hjá annarri þeirra, Öskju heíur verið saltað í 3500 tunnur_ en hinni, sem heitir Framnes í 3000 tunnur. Verksmiðjan hefur nú tekið á móti 34 þús. málum, en hún var stækkuð,. eins og kunnugt er, og varð fyrir b^agðið seinna tilbúin. Vinnslan hefur gengið vel. Þá hefur verið fryst hér í 3800 tunrx ur. — Arnór. Toppfundur ósennilegur Washington, 20. ágúst. NTB-Reuter. Kennedy forseti USA Iýsti yfir því í kvöld, að það væri mjög ósennilegt, að hann mundi hitta forsætisráöherr ana Krústjov og Macmillán viö setningu Allsherjar- þings SÞ í New York í næsta mánuði. Kom forsetinn með þessa yfirlýsingu á blaöa- mannafundi sínum, þar sem hann sagði, að ekki lægi fyr- ir nein áætlun um fund þeirra þriggja í sambandi viö þaö, að tilraunabanns- samningurinn væri IagÖur fram lijá SÞ. Hann bætti við að það gæti farið svo, aö hann sjálfur ávarpaði alls- herjarþingið, en ekkert væri útkljáð í því máli. ff jr Areksfur... Framhald af 1. síðu. stór steypubifreiö á miklum hraða og ók aftan á lögreglu- bifreiðina. Við það kastaðist hún yfir og út af götunni og lenti á nýrri Skodabifreið, sem þarna átti leið upp. — Skodinn nær gereyðilagðist, en hann var rétt nýkominn til landsins, og lögreglubif- reiðin skemmdist einnig mik ið'. Bifreiðarstjóri Skodans slasaðist eitthvað og var flutt ur í Slysavarðstofuna. Fjórði bíllinn, sem lenti í þessum árekstri, var vörubifreið, er hafnaði aftan á steypubíln- um. Aftur á móti sá ekki á steypubílnum, nema hvað framstuðarinn bognaði örlít- ið. Mun þetta vera einn harð asti árekstur, sem orðið hef- ur hér í Reykjavík um lang an tíma. Efri myndin er af Skodanum til vinstri og lög- reglubílnum til hægri. Hinn stórl steypubíll sést á neðri myndinni. Lárias Jéliasirses son forsefi Hæstaréffar FRÁ því segir í síðasta Lögbirtir.gablaði, að Lárus Jóhannesson, hæstaréttar- dómari, hafi verið kjörinn forseti Ilæstaréttar tímabilið 1. september 1963 til 1. september 1964. Varaforseti sama tímabil hefur verið kjörinn dr. Þórður Eyjólfs- son hæstaréttardómari. /j Árás á Kúbu IIAVANA 20.8 (NTB-Reuter). Gagnbyltingarsinnaðir hermenn, vopnað'ir vélbyssum og Bazooka- byssum, lentu hjá bæniun Santa Lucia á norðurströnd Kúbu á mánudag og gerðu tilraun til að' sprengja brennisteinsverksmiðju í( loft upp segir Kúbustjórn í yfir- lýsingu í dag. Hermennirnir komu á tveim litl um bátum. Her stjórnarinnar neyddi þá til að flýja í öðrum bátnum, en hinn varð eftir á ströndinni. Segir stjórnin, að mennirnir hafi komizt út í „Móð urskip“ sem legið hafi fyrir utan Santa Lucia. Enginn lézt í árás- inni segir í tilkynningu stjórnar- innar, sem kveðst telja Banda- ríkjastjórn ábyrga fyrir árásinni sem var hin þriðja á þrem dögum. VÉLA 75% MEIRII Útlit er fyirir, að alls verðil fluttar inn um 70Q hjóladráttarvél- ar í ár eða um 300 fleiri en ár- íega hafa verið' fluttar inn und- anfarin ár. Er ein aðalástæðan fyrir hinum stóraukna innflutningi dráttarvéla sú, að tollar á þessum landbúnaðartækjum voru lækkað' ir sl. vor. Hefur tollalækkunin auðveldaö bændum mjög að end- urnýja þessi þörfu 1‘andbúnaoar- tæki sín. . Á tímabilinu janúar-júní þessa árg hafa verið fluttar inn alls 378 hjóladráttarvélar, að verðmæti 27 millj. kr. en á sama tímabili í fyrra 257 véíar fyrir 13.5 millj. I (á verðmæti hvers árs.) í júní sl. vóru fluttar inn 175 hjóladráttár- vélar fyrir alls 12.4 millj. kr. en í júní 1962 voru aðeins fluttar inn 72 dráttarvélar fyrir 3.6 millj kr. Ekki liggja enn fyrir tölur um júlí-innflutninginn. Á tímabilinu 1942-1962 munu hafa verið fluttar inn nokkuð yfir 6 þús. dráttarvélar. Á tímabilinu 1951-1960 nam þessi innflutning- ur 4130 dráttarvélum eða til jafn aðar 413 á ári. Hjóladráttarvélar eru stærsti liðurinn í fjárfestingu bænda I vélum og tækjum. Á tímabilinu. 1951-1960 nemur fjárfesting i hjóiadráttarv'élum til jafnaðai' 30,8 millj. á ári (á verðlagi 1960) En fjárfesting í jeppum nemur á sama tímabili 10.4 millj. og £ öðrum v.I'um og tækjuyn 15.2; millj. kr. á ári. Alls nemur fjár-- festing á þessum landbúnaðarvél - um og tækjum því 56.4 millj. á ári á þessum 10 árum 1951-1960. 1961 nam fjárfesting í vélum og tækj- um til landbúnaðar 37,9 millj. og' 1962 um 38 millj. og er þá miðacS við verðlag 1960 bæði árin. ÞJÓFAR Framhald af 1. síðu. felli hafa verið kærð tU rann- sóknarlögreglunnar. Það má sannarlega kalla bíræfni af manni eða mönnum að fara þangið inn í íbúðir og geta búist við heimilismönnum á hverri stundu. Ef komið væri að þeim, myndu þeir ugglaust segja, að þeir hefðu villst og biðja afsökun ar. En lesandi góður, ef þú rekst á ókunnugan mann í íbúð þinni, log hann svarar slíku tU, þá gættu Isnarlega að peningabuddunni. > KODACHROME III 15 DtN KODACHROMi X 19 Dllfi EKTACHROME ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 21. ágúst 1963 $

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.