Alþýðublaðið - 21.08.1963, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 21.08.1963, Blaðsíða 13
7. þing Sambands ísl. sveitarfélaga fjallar um: ULAGSMÁL. TEKJU- VII. landsþing Sambands ís- lcnzkra sveitarstjórnafélaga verð- ur sett að Hótel Sögu kl. 10 f. h. nk. fimmtudagsmorgun og mun standa fram á laugardag. í sscn- bandinu munu nú vera um 200 sveitafélög, þ.e.a.s. allir kaup- staðir og kaupíún landsins og auk þess allir hrcppar nema um 36 hinir minnsíu, sem enn standa ut- Eimskip fær nýja umboðsmenn II.F. Eimskipafélag íslands hef- ur tilkynnt, að hinn 31. þ. m. muni Thule Ship Agency Inc., í New York, hætta sem aðalumboðsmenn félagsins í Bandaríkjunum, og að fyrirtækið A.L. Burbank & Co., Inc., 130 Wall Strect, New York 5, taki við umboði félagsins í Banda- ríkjunum sem aðalumboðsmenn. Einnig veröur sú breyting gerð, að framvegis verða tveir íslend- ingar starfandi við umboðið: Har- ald Faaberg, sem -áðinn er full- trúi Eimskipaféligsins hjá um- boðinu og Magnús Pétursson, sem ráðinn er starfsmaður hjá A. L. Burbank & Co. LEIÐRÉTTING í grein um listaverk í borginni sem birtist í laugardagsblaðinu var sagt að Byggingarfélag verka- manna hefði látið reisa styttu Héð ins Valdemarsso.ia" er stendur við barnaleikvöllinn við Hringbraut. Þctta er ekki rétt. Það var bygg- ingarfélag alþýðu, sem lét reisa styttu Héðins. Waterford, 20. ágúst. NTB-Reuter. Níu laumufarþegar hafa fundizt um borð í norska flutningaskipinu Johan Wes sel, sem væntanlegt er á morgun til hafnar í Water- ford í Eire, upplýsa tollyfir völd bæjarins. an sambandsins. Slík landsþing eru haldin fjórða hvert ár, næsta ár á eftir reglulegum kosningum. Frá siðasta þingi hafa 54 sveita- félög gengið í sambandið. 12 gest- ir frá svcitarstjórnarsamböndum ; Norðurlanda munu sitja þingið, og ault þess tveir sveitastjórnarmenn frá Færeyjum. Sex erindi verða flutt á þinginu: 1. Ríkisskattstjóri, Sigurbjörn Þorbjörnsson, mun tala um „Fram kvæmd tekjustofnalaganna”, 2. Dr. Tómas Helgason yfirlæknir á Kleppi, mun ræða „Ráðstafanir sveitarfélaga vegna geðsjúklinga.” 3. Skipulagsstjóri ríkisins, Zóp- honías Pálsson, talar um „Frum- varp til nýrra skipulagslaga.” 4. Stefán Gunnlaugsson, framkv.- stjóri Gatnagerðarinnar s.f. ræðir | um „Varanlega gatnagerð, fjáröfl- ; un og framkvæmd,” 5. Pétur Pét- | ursson, forstjóri Innkaupastofnun- ar ríkisins, ræðir um ,,Vöruinn- kaup ríkisstofnana og sveitarfé- laga,” — og 6. Jónas Guðmunds- son, formaður sambandsins talar um „Stofnun sveitafélagabanka.” Á þinginu verða svo ræddar margar tillögur og ályktanir, sem fyrir liggja og fram verða born- ar, reikningar sambandsins og skýrsla stjórnarinnar. Af þeim málum, sem fyrir þing- inu liggja, ér skipulagsmálið senni lega stórfelldast, en það er hins vegar fremur stutt á veg komið. Mesta hitamálið má búast við, að verði tekjustofnslögin, en búast má líka við að mjög almennur á- hugi sé á gatnagerð. EINS ogr við skýrðum frá fyrir skömmu roru nýlega liðin 100 ár frá fæjðingu bflaköngsins Ilenry Ford Hér sjáum við nákvæma eftirlíkingu af fyrsta bílnum, sem Henry Ford smíð- aði. Eftirlíkinguna smíðuðu lærlingar í Fordverksmiðjunum í Dagenham í Englandi. Sá sem situr þarna við stýrið er frægur kappakstursmaöur, Graham Hill og er hann sennilega vanur heldur hraðskreiðari farartækjum. ICECAN tekinn Kaupum 6 stóra fiski- I notkun báta af A-þjóðverjum KLUKKAN 14,00 í gær (mánu- leyti um bcint radíósamband, þeg daginn 19. ágúst) var hinn nýi sæ- sími ICECAN, sem liggur um Grænland til Nýfundnalands, tek- inn í notkun fyrir almenn talsíma- og skeytaviðskipti við Ameríku. — Eins og kunnugt er, var þessi sæ- sími lagður í lok síðasta árs og þá farið að nota hann fyrir ör- yggisfjarskipti alþjóðaflugþjón- ustúnnar, en hann bilaði stuttu síðar, hvað eftir annað, meðal ann ars vegna óvenju stórra ísjaka við Grænland. Var því frestað að taka hann í notkun fyrir almenn síma- viðskipti þar til nú, er viðgerðum er lokið. Undanfarið hefur síma- sambandið við Ameríku því fariff fram um Bretland og aff nokkru ar um skeyti var aff ræða, Ráðstafanir hafa verið gerðar til þess að tryggja sæsímann f grennd við Grænland, meðal ann ars með löngum borholum í gegn um fjall þar, sem sæsíminn er leiddur í gegnum niður í mikið dýpi, og frekari framkvæmdir í ■ sama skyni verða gerðar síðar. Næsta viðskiptastöðin vestan hafs verður í Montreal 1 Kanada og er hún rekin af Canadian Ov- •erseas Telecommunication Corp- oration, sem ásamt Mikla Norræna Ritsímafélaginu er eigandi að sæ- símanum. Þar verður samteng- ing fyrir viðskipti við aðra staði í Ameríku. I Reykjavík, 19. ágúst 1963. FYRIR skömmu síðan, eða um þaö bil mánuði, gerðu íslendingar samning við Austur-Þýzkaland um smíffi á sex stórum fiskibátum fyr- ir 30 milljónir íslenzkra króna. í ráði mun vera að gera fleiri slíka samninga. Er það fyrirtækiff Desa h.f. sem annast þessa samninga fyrir íslenzka útgerffarmenn. Viðskipti íslendinga Viff Au.- Þjóðverja hafa aukizt nokkuff á þessu ári og er taliff líklegt, að aukning verffi einnig á næsta ári. Hafa Au.-Þjóffverjar í huga að kaupa iðnaðarvörur héffan, — og koma þá m. a. til grcina vélar frá Héðni. Þá hefur verið rætt um kaup á ostavörum héðan og ýmsu fleira. Hingaff til hafa Au.-Þjóffverjar affallega keypt fiskflök og síld, — saltaða og frysta. íslendingar hafa keypt af þeim tilbúinn áburff, pappír, dagblaða og skrifpapþir, sykur og vefnaðarvöru. Leitaað „Cockney Maríu“ Eng’mn gaf sig fram Atvinnuleysisskráning fór fram fyrir nokkru, — og gaf sig enginn fram. Sam- kvæmt lögum fer þcssi skráning fram fjórum sinn- um á ári, og var. þetta 3. skráningin. Enginn gaf sig frarn í tveim fyrri skráning- unum. NTB-Reuter. Leynilögreglumenn þeir, sem fást við aff rannsaka hið furðu- lega járnbrautarrán í Bretlandi í fyrri viku, könnuðu í dag far- þegalista þeirra aðila, sem flytja menn til útlanda. Eru leynilög- reglumennirnir aff leita aff hinni svokölluffu „Cockney Maríu,” kon unni, sem ásamt hávöxnum og spengilegum manni keypti svart- an sportbíl daginn eftir aff rán- iff var framiff. Telur lögreglan að þau kunni aff hafa yfirgefið Bretland flug- leiffis eftir aff hafa skilið hinn eftirlýsta bíl eftir mannlausan fyrir þrem dögum. Bíllinn var rannsakaður nákvæmlega í dag, m. a. meff tilliti til fingrafara. ,,Cockney María” sem fengiff hefur viffurnefniff vegna Lundúna mállýzkunnar, sem hún talar, keypti bílinn og greiddi hann út í hönd meff 120 þús. kr. í bila- sölu í útjaðri Lundúna. í Buckinghamshire notaði lög- reglan í dag sporhunda í óhemju lega nákvæmri leit á búgarðin- um, sem ræningjarnir dvöldust á fyrstu dagana eftir ránið. Eig- andi búgarðsins hefur tilkynnt, aff hann muni siðar opna búgarff- inn fyrir almcnningi og selja aff- gang fyrir tvo og sex. Búgarður- inn er affeins 32 km. frá ráns- staðnum. Fingrafarasérfræffingar voru líka í dag önnum kafnir í hjól- hýsi einu nálægt Dorking fyrir sunnan London, ekki langt frá þeim staff, þar sem maður og kona fundu í fyrri viku rúmar þrjár milljónir í skógi einum. Þá halda Lundúnablöðin því fram, að í dag hafi sú deild lög- rcglunnar í London, sem fæst við viðskipta- og fjármál, veriff kölluð í máliff. Á deild þessi aff hjálpa til viff aff finna upplýs- ingar um kaupsýslumann nokk- urn. Blaðiff Evening News heldur því fram, aff lögreglan viti enn ekki nafn ,,heilans” á bak viff ránið, en sé á höttunum eftir 4 þekktum mönnum úr undirheim- um Lundúna. Almenningúr hef- ur enn mikinn áhuga á þeim, ca. 30 milljónum króna, sem lofaff hefur veriff í fundarlaun, og hef- ur lögreglan fengiö mikiff af fyrirspurnum. Þrjú íslenzk fyrirtæki sýna / Leipzig KAUPSTEFNAN í Leipzig verff- ur haldin dagana 1. til 8. septem- ber næstk. Á sýningunni verffa aff- allega neyzluvörur og ýmsar vörur Iéttiðnaðarins. Um 6500 framleiff- endur frá 50 löndum taka þátt í sýningunni, en vörunum verffur skipt í 30 flokka. Þrír aðilar frá íslandi munu hafa þarna sameiginlega deild. — Hafa þau leigt rúmgott sýningar- svæðið. Hefur Skarphéðinn Jó- hannsson, arkitekt séð um fyrir- komulag þess. Er framhlið svæðis- ins skreytt stórum ljósmyndum frá íslenzku atvinnulífi og landslagi. Hvert fyrirtæki hefur þarna við- ræðuherbergi, en milli þeirra er opið svæði þar sem veittar eúu upplýsingar um íslenzka útflutn- ingsframleiöslu og gestum veitt móttaka. Öll senda fyrirtækin full- trúa á sýninguna. Er búizt við miklum fjölda kaup- sýslumanna á sýninguna, a.m.k. frá 80 löndum. Héðan munu nokkrir fara, en um 40 fóru í fyrra. Ferða- skrifstofurnar hér veita allar upp- lýsingar um ferðir, en kaupstefnu skírteini er hægt að fá hjá um- boðsmönnum sýningarinnar hér, Kaupstefnunni. ALÞÝÐUBLA0IÐ — 21. ágúst 1963 13

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.