Alþýðublaðið - 21.08.1963, Side 15

Alþýðublaðið - 21.08.1963, Side 15
ÁSTARSAGA Á SJÚKRAHÚSIEFTIR: LUQIJLA ANDREWS — Standing! Yfirhjúkrunar- konan vill fá að tala við þig strax- Ég lagaði kappann á höfðinu á mér, slétti úr svuntunni og barði að dyrum á skrifstofu yfirhjúkr- unarkonunnar. Hún bað mig ekki að koma inn og loka á eftir mér hurðinni. Hún leit í þess stað á svuntuna mína og sagði: — Systir, — ég held, að þév ættuð að fara 'ið skipta um svuntu, ef að þér standið í þeirri trú, að svuntan yðar sé hrein! Ég var skrælþurr í munniu- um. — Já, systir. Ég setti þessa svuntu á mig í morgun, systir. Hún kinkaði kolli, — Þér skul- uð fara strax og skipta, en síðan eigið þér að fara beint til for- stöðukonunnar, — hún var að hringja og vildi fá að tala vi'3 yður. — Já, systir. __Og áður en þér farið, systir, bætti yfirhjúkrunarkonan við, al- varleg í bragði, — vil ég segja yður að mér þykir þetta mjóg leitt. 11. KAFLI __Komið þér inn, systir Stand ing og gjörið þér svo vel og lok- ið á eftir yður hurðinni, sagði forstöðukonan. Það var enginn vafi á því, að Josephine hafði rétt fyrir sér. Jake hafði þagað yfir öllu sam- an, það var næstum ótrúlegt, undursamlegt, en um leið dálítið skelfilegt. En svo varð mér hugs- að til þess, að þetta var í raun- inni ekki svo furðulegt, hann var góður og göfugur maður. Ég var sveitt á höndunum, og þegar ég sneri mér að henni, liélt ég, að ég myndi kikna í hnjálið- unum. Ég fékk nýtt áfall. For- stöðukonan brosti til mín. — Það er ekki á hverjum degi, sem ég tala við y .gstu nemend- ur mína, áður en ég sendi þá á næturvakt, sagði hún. En ég er ekki heldur vön sð standa í slík- urn flutningum rétt fyrir jólin. Yfirhjúkrunarkonan á móttöku- deildinni hefur sagt mér, að þér hafið verið sérlega hjálpsamar við undirbúninginn fyrir sam- kvæmið og mér þykir leitt, að ég þarf að flytja yður á aðra deild í dag. En því miður er ekki um annað að ræða. Ég verð að hafa aðstoðarhjúkrunarkonu á næturvakt í nótt, vegna þess, að það hafa margar fengið jóla- leyfi, — og þvi verð ég að snúa mér til yðar. Ég vona, að þér hafið ekki alltof mikið á móti því að taka að yður næturvakt- ina á Margaretudeildinni, syst- ir Standing. Ég hafði aldrei á ævinni upp- lifað neitt eins yndislegt og þá fagnaðaröldu, sem leið um mig við þessi orð. Ég fékk ekki skip- un á hvítgráum pappírssnepli, — það átti bara að flytja mig á næturvakt! Forstöðukonan skýrði mér ftá öllum málavöxtum. — Systir Sharp hafði fengið inflúenzu, og þar sem það var mikið að gera á deildinni var nauðsynlegt að fá 'aðstoðarhjúkrunarkonu þangað. Þér skuluð fara beint til hádeg- isverðar núna og svo á heima- vistina. Þar verðið þér að taka saman föggur yðar, en ráðskon- an sér fyrir því, að þær verði sendar á vist næturvaktarinnar i kvöld. Þér verðið að vera komn- ar í rúmið fyrir kl. 3, — reynið um fram allt að sofna. Þér eigið erilsama nótt framundan. — Hún kinkaði kólli til merkis um, að samtalinu væri lokið. Mér fannst ég ótrúlega lítil og sek, þegar ég lokaði hurðinni á 28 eftir mér. Forstöðukonan hefði ekki getað verið elskulegri, en hvað hefði hún sagt, ef hún liefði vitað, hvað gerðist í gærkvölúi? Angela var inni í matstofunni, þegar ég kom þangað. Ég settist hjá henni. — Angela, — ég hef . . . byrjaði ég. — Rósa, sagði hún skelfingu lostin. — Er búið að reka þig. — Nei. Er það ekki stórlcost- legt. Ég á að fara á næturvakt. . . . forstöðukonan sagði, að syst ir Sharp .... — Forstöðukonan, — hrópaði Angela upp yfir sig. — Rósa . . . sagði hann frá öllu saman? — Ef þú gætir nú aðeins þag- að og hlustað á, hvað ég ætla að segja, sagði ég róandi, — þá væri þetta allt auðveldara. Nei, hann getur ekki hafa sagt neitt. Það er mikill skortur á vinnu- krafti á Margaret-deildinni og þar sem ég er talin greiðvikin á ég að fara á næturvakt þang- að. Angela var liiminlifandi. — Rósa, — en guðdómlegt. Þú kemst burt úr móttökudeildinni, áður en þú getur gert meira af þér, — og þú hgfur ekkert lengur saman að sælda við þenn an Bill. Skurðlæknarnir koma ekki í námunda við Margaret- deildina, hvað þá meira. Þú þarft ekki annað að sjá en lyflækna næstu þrjá mánuðina. Ertu ekki fegih? Ég hafði af ásettu ráði ekki hugsað um þetta. Ég gerði mér það þó ljóst um leið og forstöðu konan nefndi Margaret-deildina. Ég var viss um, að ég fengi ekki að sjá Jake. — Ertu ekki fegin, spurði Angela aftur. — Þú ættir að vera það, — en þú ert allt ann- að en ánægð á svipinn. — Ég veit það, sagði ég og neyddi mig til að brosa. En auð vitað er ég glöð, ég get bara varla trúað því, að þetta sé satt. Mér finnst að vísu dálítið leiðin- legt að missa af barnaskemmtun inni á aðfangadagskvöldið. Ég var búin að hlakka svo til að sjá herra Spence koma þangað í þotu. Angela sagði, að það kynni að vera mér nokkur huggun, að hún hefði frétt, að það væri svo mik ið að gera í Margaret-deildinni, að mér mundi ekki gefast tími til að hugsa út í það, hvaða dag- ur væri, hvað þá meira. Yfirvald mitt á deildinni hét systir Jones. Hún var lítil og grönn og ákaflega elskuleg. Auk þess var hún ákaflega innundir hjá yfirhjúkrunarkonunni á deildinni, og það var mér mikil hjálp, vegna þess, að yfirhjúkr- unarkonan þarna var alls ekki hrifin af því að fá nema á fyrsta ári á næturvaktina. Hún leyndi því sízt fyrir mér, þegar ég kom á vakt fyrsta kvöldið. Systir Jones reyndi að telja í mig kjarkinn og sagði, að yfir- hjúkrunarkonan væri alls ekki eins slæm og hún sýndist. Hún krefðist að vísu mikils, en jafn framt væri það bót í máli, að maður vissi alltaf, hvar maður hefði hana. Hún notar ekki oft hrósyrði, — en hún er ekki held ur að ausa yfir fólk aðfinnslum nema full ástæða sé til. Næturvaktin var allt annað, en ég var vön við, og allt varð að fara fram á sem hljóðlátast- an hátt. Systir Jones hjálpaði mér fyrst í stað. Við vorum á ferðinni allan tímann. Ég fékk aldrei að setjast niður nema í matartímanum, og þá átti ég að kynna mér skyldustörf mín, sem systir Jones hafði ritað niður Lestu þetta, á meðan þú ert að borða, Standing, sagði hún. Ég skrifaði það niður í morgun, þeg ar ég frétti, að systir Sharp væri veik. Ég gekk út frá frá því, að mér mundi ekki gefast tími til að útskýra þetta munn- lega. Ég skal reyna að segja þér ánar frá hverjum og einum sjúkl ing svona smám saman, — ég skrifaði bara upp helztu atriðin. Klukkan fimm um morguninn, sagði systir Jones, að þú væri tími til kominn að láta hendur standa fram úr ermum. Hún kveikti ljós á deildinni, ég bar inn borgunteið, bar bolla til þeirra, sem voru einfærir um að drekka, hjálpaði systur Jones við að aðstoða þá, sem þörfnuðust hjálpar. Svo þurfti að bera fram vaskafötin, þvo þeim, sem ekki gátu þvegið sér sjálfir o.s.frv. Næst var að taka fram vaska- fötin, tannburstagiösin og þvo og dauðhreinsa þetta allt saman, — búa um rúmin — og svo var skyndilega kominn morgun og daghjúkrunarkonurnar komu á vakt. Jones bað mig að fara og svipta um svuntu. Hún fylgdi mér fram á gang- inn. — Þetta var talsvert erfið nótt, sagði hún, þegar ég settist niður og fór að nudda á mér mjóaleggina. En ég er því fegin, að morguninn var tiltölulega ró- legur. Það er miklum mun auð- veldara fyrir þig að komast inn í starfið, þegar þú þarft ekki að hraða þér um of. Ég gat ekki kreist niður í mér geispann: — Já, systir, ég, — svo fórum við báðar að hlæja. Hláturinn endaði með öðrum geispa. — Ég er líka dálítið þreytt, sagði systir Jones nieð undrunarhreim í röddinni. En samt er það satt, Standing, — þetta var fremur róleg nótt. Það er alltaf mikið að gera á lyflækn ingadeildunum, sjúklingarnir eru oft svo veikir, að þeir þarfnast stöðugrar hjúkrunar. Hér er ekki um að ræða hjúkrun fyrstu dag ana eftir uppskurð, það geta ver ið vikur, jafnvel mánuðir. Þetta gerir starfið mun erfiðara, en um leið veitir það meiri ánægju. Já, ég held, að enginn viti, hvað hjúkrun er, fyrr en hann eða hún hefur unnið á lyflækningadeild. En ún verð ég að gefa yfirhjúkr unarkonunni skýrslu. Þú þarft aftur á móti ekki annað að gera en ganga hringinn í kring á deild inni og aðgæta, hvort ekki er allt í lagi en nú kemur yfirhjúkrun arkonan og biður morgunbænar innar. Deildin var óaðfinnanleg, að því er mér fannst, — þegar yfir hjúkrunarkonan kom tíu mínút- um seinna. Hún stanzaði í dyrun um. — Hvar er aðstoðarhjúkrunar konan, — gelti hún. Ég fór til hennar. — Hér, syst ir. — Lítið þér á þetta. — Hún^ benti inn á deildina. Ég leit þangað, sem hún benti, en sá ekkert athugavert. — Ég — hvað, systir? Það er tómur bolli á náttborð- inu við rúm númer 19 tilkynnti hún með þrumuraust. Viljið þér gjöra svo vel og fjarlægja hann og minnast þess í framtíðinni, að mér er ekki um það gefið, að að stoðarhjúkrunarkonurnar svikist um það, sem þær eiga að gera. — Já, systir. Afsakið, systir. Ég flytti mér að ná í tóma boll- ann. Þegar yfirhjúkrunarkonan sendi okkur af vakt, bað ég Jon- es afsökunar á óaðgæzlu minni. — Ó, láttu það ekki á þig fá, Standing. Þetta var ekkert. Sann leikurinn er sá, að það var sönn- un þess, að dendin var snyrti- leg. Systir Margaret gat ekki fundið að neinu öðru. Hún gleymir aldrei að geta þess, sem henni finnst athugaverð — og einmitt þess vegna kann ég svo vel við mig á deildinni. Það er friðsælt og öruggt að vinna hér. Friðsælt, hugsaði ég með bit- urleika, þegar ég haltraði af stað til morgunverðar. Það er hvergi ems glatt á hjalla á sjúkrahúsi eins og við morgunverðarborð næturvaktarinnar. Kannski er það líkamlega þreyta, sem hef- ur örvandi áhrif á málbeinið — að minnsta kosti er þar jafnan mikið um að vera. Það var ekki fyrr en ég kom í herbergið mitt ó vist næstur hjúkrunarkvennanna, að ég gaf hugsununum lausan tauminn. Ég hugsaði þá ekki til alls þcss, sem ég hafði séð og heyrt um nótt- ina, heldur um Jake, hve mikils virði hann var mér og hve ó- mögulegt mér væri að nálgast hann. Ég velti vöngum yfir þeim fréttum, sem hermdu, að hann væri að fara frá sjúkrahúsinu. Ég vildi fegin fá nánari fréttir af þyí, — en um leið óskaði ég þess, að ég fengi ekkert um það að vita. En ætlaði hann að fara? Og ef hann svo færi, — fengi ég þá aldrei að sjá hann aftur.? — Hvað ég á a'ð gera? Ég er að reita aría eins og bú baðst mig um. ALÞÝÐUBLAOIÐ — 21. ágúst 1963 J.5

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.