Alþýðublaðið - 24.08.1963, Page 7
HIN SlOAN
BOKGARSKÁLDIÐ sér það af
andlitum manna að sumarið er á
förum. Og það má reyndar sjá
það af ýmsu öðru. Þó að enn sé
haustgolan ekki farin að feykja
visnuðum laufum um götur og
verði. Faeo á Laugavegi býður
snotra karlmannafrakka við hlægi
lega lágu verði. Jafnvel bókaorm
unum er séð fyrir sínu. Bókaverzl
un Stefáns Stefánssonar efnir til
útsölu á ódýrum innlendum og
Að lokum sagði Gísli okkur eftir
farandi gamansögu, sem á vel við
andrúmsloft haustsins og kauptíð-
arinnar:
„Ég var á ferð í Danmörku fyr
ir nokkrum árum. Þá kynntist ég
ÉH
Við útsölugluggana er aðgangsharkan fyrir mestu.
Hjónabönd til
fyrirmyndar
BREZKUR þjóðfélagsfræðingur
Oliver McGregor, sem er fyrir-
lesari við ' Bedford College liefur
vakið feikna athygli meðal þjóð-
félagsvísindamanna yfirleitt með
því að halda því fram, að hjúskap
u. rinn sé eitt af því, sem mestum
þroska hafi náð á 20. öldinni.
McGregor, sem er kvæntur
dómara í ungmennadómstóli í
London, og er faðir þriggja barna,
telur, að ekki sé hægt að dæma
hjúskapinn út frá skýrslum um
skilnaði, eyðilögð heimili, afbrot
æskufólks og öðru í svipuðum dúr.
Sannleikurinn sé nefnilega sá, að
skýrslugerð sé nú öll meiri og víð-
tækari en var fyrir einum manns-
aldri, og margt það nú skjalfest
sem oft hefur skeð en sjaldan ver
ið skráð á liðnum tímum.
McGregor segir, að augljós til-
hneiging sé til þess manna á með-
al, að skella skuldinni á hjóna-
bandið, þegar eitthvað fer aflaga
í einkalífi fólks. Menn megi alls
ekki gleyma því að nú á tím. hvíli
hjónabandið á gagnkvæmu trausti
makanna, en í gamla daga hefði
refsivöndurinn alltaf vofað yfir, ef
öðrum makanum varð eitthvað á.
— „Þessari staðreynd megum við
ekki gleyma", segir MeGregor.
„Hjúskapur 20. aldar fólks stend
ur alls ekki föllum fæti“, segir
McGregor. „Þegar við hugsum til
þess, að konur hafa nú öðlazt jafn
ræði á við karlmenn og að börnin
hafa meiri rétt gagnvart foreldr-
um sínum en áður var, þá er það
[beinlínis furðulegt, hvað hjúskaj>
jurinn er yfirleitt traustur á með-
al nútímafólks."
Auknir skilnaðir koma aðallega
til af því að meiri skýrslugerð er
á því sviði nú á tímum en áður
og eins af því að konur eru eig-
inmönnum sínum ekki eins und-
irgefnar og áður að áliti McGreg-
ors. Hann telur, að fyrr á tímum
hafi síður en svo verið færri ó-
hsmingjusöm hjónabönd við lýði,
heldur hafi hitt komið til að þá
var óhægara að binda enda á slík
hjónabönd.
McGregor er ómyrkur í máli
og lætur skoðanir sínar hiklaust
í ljós. Þykir mörgum, bæði lærð-
um og leikum, sem þar sé nýr
„Messías“ fæddur.
Alþjóðafundur
esperantista
Alþjóðamót esperantjjta, sem
haldið var í Sofia í ágústbyrjun
mun hafa verið fjölsóttasta og um
fangsmesta ráðstefna sinnar teg-
undar frá því fyrir síð ari heims-
styrjöldina.
í sambandi við ráðstefnuna fór
fram 33. mót blindra esperantista,
2. listkynning esperantista og 8.
alþjóðlegt barnamót þeirra.
húsasund og fólkið gangi léttklætt
um borgina skynjum við návist
haustsins á næsta leiti. Það liggur
í loftinu eins og það, sem hlýtur
að koma, og þrátt fyrir allt er það
ekki alltaf óvelkominn gestur.
Hauströkkrið er rómantískasta
rökkur i heimi og tær september-
dægri eiga stur.dum fáa sína líka
að fegurð og hreinleik.
Einn fyrsti fyrirboði haustsins
á Islandi eru hinar fjölmörgu út-
sölur í verzlunum sveita, bæja og
borga. Kaupmenn og kaupfélög
keppast við að bjóða vörur sínar
á gjafvirði. Gallaðar vörur og ó-
gallaðar. Gamlar vörur og nýjar.
Vörur af margvíslegum tegund-
um. Vörur frá öllum heimsins
löndum. Selja. Selja. Rýma til fyr
ir því nýjasta nýja, sem ekki er
liægt að selja við gjafvirði.
Það er fróðlegt og skemmtilegt
að ganga um haustmarkaðinn hér
í Rcykjavík þessa dagana og virða
það fyrir sér, sem á boðstólum er.
í Eygló í Austurstræti eru „billeg
ar“ kápur á frúrnar og dæturnar.
Andrés selur herrafötin á útsölu
dönskum bókum til lestrar á rökk
urstundum haustsins.
„Viðskiptin hafa gengið ágæt-
lega að þessu sinni, sagði Gísli
Wíum verzlunarstjóri í Faco á
Laugavegi 37, þegar við hittum
hann að máli og spurðum hann
hvernig útsalan hefði gengið. „Og
ég hygg að fiestar verzlanirnar hafi
sömu sögu að segja. Við erum yf-
irleitt með góðar og ódýrar vörur
á boðstólum og fólk kann vel að
færa sér í nyt hið niðursetta verð“.
- Aðspurður segir Gísli, að þeir
í Faco og í fleiri verzlunum í
Reykjavík lialdi tvær slíkar útsöl
ur á ári. Er önnur í janúar en
hin síðari í ágúst. Sú síðari stend
ur enn yfir.
Það er býsna fróðlegt að heyra
Gísla tala um útsölur. Hann er þar
öllum hnútum kunnugur eins og
góðum verzlunarmanni ber að
vera. Við röbbum um útsölur vítt
og breitt, útsölur í mörgum lönd-
um, því að útsölur eru alþjóðlegt
fyrirbrigði eins og margt fleira í
viðskiptalífinu.
meðal annars útsölum þeirra Dan
arxna, en þær eru sannarlega merki
legt fyrirbæri. Þeir stilla nefni-
lega í sýningargluggana þokkaleg
ustu vörum á lágu verði, en þeg-
ar inn er komið, bregzt sjaldan,
að maður fær alls ekki það, sem
girnilegast virtist á meðan staðið
var fyrir utan. Jakkinn í gluggan-
um reynist of víður. Og buxurnar
eru of þröngar. Sama sagan reyn-
ist um allt annað. Ekkert passar
manni. Slikur útsölumáti er dálít-
ið sérstæður en sem betur fer,
hafa verzlanirnar hér á íslandi
ekki tekið hann til fyrirmyndar".
Og við höldum út úr Faco áfram
niður Laugaveginn. Hvarvetna
biasa við spjöld í gluggum verzlan
anna. Útsala! Útsala! Þeim fjölgar
með degi hverjum. Vörunum, sem
eru á boðstóium fjölgar, pening-
unum, sem kaupmaðurinn stingur
í buddu sína að enduðum löngum
degi fjölgar, ánægðum kaupend-
um fjölgar væntanlega líka. — Já,
það má með sanni segja, að við-
koman í viðskiptaheiminum sé ör
á flestum sviðum.
8.00
12.00
13.00
14.30
14.40
16.30
17.00
18.00
18.55
19.20
20.00
20.50
22.00
22.10
Laugardagur 24. ágúst
Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Tónleikar. — 8,30 Fréttir. —,
8.35 Tónl. — 10.10 Veðurfregnir).
Hádegisútvarp (Tónleikar. — 12.25 Fréttir og tilkynningar).
Óskalög sjúklinga (Kristín Anna Þórarinsdóttir).
Út umferðinni.
Laugardagslögin. — (15.00 Fréttir).
Veðurfregnir.
Fjör í kringum fóninn: Úlfar Sveinbjörnsson kynnir nýjustii
dans- og dægurlögin.
Fréttir. — Þetta vil ég heyra: Frú Svanfríður Hjartardóttir
vel sér hljómplötur.
Söngvar í léttum tón.
Tilkynningar.
Veðurfregnir. — 19.30 Fréttir.
Hljómplöturabb um tvo ágæta ítalska söngvara; Mattia Batt-
istini og Hito Schipa (Guðmundur Jónsson).
Leikrit: „Mánudagur til mæðu“ eftir Alexander Ostrovsky. ÞýfV
andi: Bjarni Benediktsson frá Hofsteigi. Leikstjóri: Baldurvin
Halldórsson. — Leikendur: Valdur Gíslason, Guðbjörg Þor-
bjarnardóttir, Steindór Hjörleifsson, Anna Guðmundsdóttir.
Kristín Anna Þórarinsdóttir, Þorsteinn Ö. Stephensen, Bryn-
jólfur Jóhannesson, Haraldur Björnsson, Borgar Garðarsson og
Árni Tryggvason.
Fréttir og veðurfregnir.
Danslög. — 24.00 Dagskrárlok.
HIN SlÐAN
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 24. ágúst 1963 7
fflöAJHU3Ý4JA — fcdtíi 121136 J'S g