Alþýðublaðið - 24.08.1963, Side 11
Frú Edhith Sampson, sem er blökkukona, er borgrardómari í Chicago, cinni stærstu borg Banda-
ríkjanna. Hér taka tvær skátatelþur á móti henni. bún kemur flugleiðis til borgarinnar.
Keppinautur Brookes var, hvít-
I ur maður, mjög þekktur í fylkinu,
því að hann hafði áður gegnt em-
bætti varafylkisstjóra, svo og sak
sóknara fylkisins. Það er einnig
eftirtektarvert, að þessi blökkumað
ui er kjörinn í fylki, þar sem
biökkumenn eru sárafáir eða ekki
tveir af hverjum hundrað íbú-
anna. Brooke hefur komizt svo að
-orði um kosningabaráttuna, að
hann hafi aldrei fundið fyrir því,
að menn litu niður á hann vegna
litarháttar hans.
í Connecticute-fylki var 37 ára
gamall blökkumaður kjörinn rík-
isféhirðir. Heitir hann Gerald A.
Lamb og sigraði annan svertingja,
sem bauð sig fram til sama em-
bættis. (Hér má gjarnan bæta því
við, að þetta er sama embætti og
Valdimar Björnsson gegnir í
Minneapolis-fylki). \
BLAÐAFULLTRÚI —
SENDIHERRAR.
En blökkumenn gegna mörgum
fleiri embættum í Bandaríkjunum,
einnig embættum, sem þeir hafa
verið skipaðir í af forsetanum eða
öðrum. í Washington stjórnar til
dæmis Robert C. Weaver einni
mikilvægustu stjórnarskrifstofu
landsins — Lánastofnun ríkisins
til íbúðabygginga. Aðstoðarblaða
fulltrúi Kennedys forseta er einn
ig blökkumaður, Andrew Hatcher
að nafni.
Blökkumenn hafa einnig verið
teknir til starfa út á við, hjá ut-
anríkisráðuneytinu, og nú fyrir
skemmstu var Carl T. Rowan, fyrr
um aðstoðarráðherra, útnefndur
sendiherra lands síns í Finnlandi.
En hann er ekki einn í slíkri tign
arstöðu úr hópi blökkumanna, því
að tveir aðrir gegna slíkum etöð-
um, þeir Clifford Wharton í Nor-
egi og dr. Mercer Cook í Niger.
Wharton hefur gert utanríkisstarf
semi að ævistarfi sínu, en dr.
Cook er fyrrverandi prófessor í
rómönskum málum og ritliöfund- ■
ur að auki.
BI ÖKKUMENN í
DÓMARASÆTUM.
í hópi lögfræðinga eru margir
biökkumenn vel metnir, c*j einrta
þekktastur þeirra er Thurgood
Marsiiall, sem var um langt skeið
aðallögfræðingur Framfarafélags
blökkumanna í Bandaríkjunum
(National Association for the Ad-
vaneement of Colored People eða
NAACP, eins og samtökin eru
skammstöfuð). Hann var fyrir
nokkru .útnefndur dómari í áfrýj
unarrétti Bandaríkjanna, og gerði
Kennedy forseti það. Annar svert
ingi er einnig dómari í áfrýjunar
réttinum, William H. Hastie. Þá
er og rétt að geta þess, að svert
ingjar eru dómarar í ríkisdómstól
unum (Federal Courts) í Illinoia
og Michigan.
Tveir menn af blökkumanna-
kyni eru aðstoðarráðherrar hjá .
Kennedy. Annar er George L. P.
Weaver, sem er aðstoðarráðherra
í atvinnumálaráðuneytinu og hef
ir alþjóðamál á sinni könnu, en
hinn er Christopher C. Scott, sem
er aðstoðarráðherra póstmála þar
vestra.
FRAMFARIRNAR
ERU MJÖG ÖRAR.
í Michigan-fylki er blökkumað
ur að nafn^ Otis M. Smith dómari
í hæstarétti fylkisins, og verður
ekki komizt lengra á þeirri braut
innan vébanda fylkisins. Tveim ár
um áður en Smith tók við því
starfi, hafði hann verið kjörinn í
annað mikið trúnaðarstarf —
hann var kjörinn aðalendurskoð-
andi fylkisreikninganna.
Konur af kynþætti svertingja
eiga einnig vaxandi gengi að fagna
Framh. á 15. síöu.
AF EÐLILEGUM ástæðum rita
blöð um heim allan mikið um kyn
þáttavandamálið í Bandaríkjun-
um, enda er viðurkennt af leiðtog
um þar í landi, að fátt sé erfið-
ara viðfangs á margan hátt. En
minna er um það ritað, hvernig
viðurkenning á blökkumönnum
fer vaxandi þar í landi, hvernig
hagur þeirra batnar smám saman,
eins og frá er sagt í þessari grein.
Svo er að þakka kosningum og
útnefningum opinberra embættis
manna í þjónustu ríkisins, ein-
stakra fylkja og borgar- og sveit-
arfélaga, að æ fleiri blökkumenn
gegna mikilvægum ábyrgðarstöð-
um í Bandaríkjunum.
Má sjá dæmi þessa nærri hvar
vetna í landinu, allt frá Georgíu-
fylki, sem telst til eindregnustu
„suðurríkjanna“ í kynþáttamál-
um, og til Kaliforníu á vestur-
ströndinni. í kosningum, sem fram
fóru um landið allt í nóvember á
síðasta hausti, var samtals 51
bJökkumaður kjörinn til að gegna
ýmsum trúnaðarstörfum í þágu
hins opinbera. í þessum hópi voru
fimm menn, sem kjörnir voru til
fulltrúadeildar þjóðþingsins.
KJÖRINN Á GEORGÍUÞING.
í hópi þeirra, sem kjörnir voru
á fylkisþingið í Georgíu-fylki, var
svertingi, og var það í fyrsta
skipti, að maður af þeim kyn-
þætti hlaut kosningu á þá sam-
kundu, sem sett var á laggir fyrir
92 árum, og á hann nú sæti í öld
ungadeild þingsins. Þessi maður
er 36 ára gamall lögfræðingur,
Leroy Johnson að nafni og naut
hann stuðnings bæði hvítra kjós-
enda og þeldökkra. Gegn honum
bauð sig fram annar blökkumað-
ur, en þriðji maður hlaut og at-
kvæði, því að hann var svokallað
ur „innritaður" frambjóðandi —
þ. e. kjósendur hafa rétt til að
rita nafn hvaða manns, sem er á
kjörseðilinn til að veita honum at-
kvæði sitt, ef þeir vilja ekki styðja
einhvern upprunalegu frambjóð-
endanna. Þessi þriðji maður sem
náði ekki kosningu, var studdur
af samtökum manna, er vilja að-
skilnað hvítra manna og þel-
dökkra.
FIMMTI ÞJÓÐÞINGS-
MAÐURINN.
Meðal nýrra þjóðþingsmanna,
sem kjörnir voru á síðasta hausti,
var blökkumaðurinn Augustus F.
Hawkins, sem lengi hefur setið á
fylkisþingi Kaliforníu fyrir Los
Angeles. Hann bættist í hóp fjög
urra blökkumanna, sem fyrir voru
á Þjóðþinginu, sumir all-lengi
William Dawson, sem kjörinn er
í Illinois-fylki, hefur setið þeirra
lengst eða frá 1943, en Adam
Clayton Powell, sem er þingmaður
fyrir New York, fylki, hefir setið
litlu skemur, eða frá 1945. Charles
Diggs, sem er þingmaður fyrir
Michigan var upphaflega kjörinn
árið 1954, en yngstur er Robert C.
Nix, sem kjörinn var í Pennsyl-
vaníu í fyrsta sinn haustið 1958.
RÍKISSAKSÓKNARI
RÍKISFÉHIRDIR.
í Massachusetts, heimahögum
Kennedys forseta, þóttu það mikil
tíðindi á stjórnmálasviðinu, þegar
Edward W. Brooke, lögfræðingur
af kynþætti blökkumanna, aðeins
43ja ára gamall, var kjörinn ríkis-
saksóknari. Brooke hefur þá rétt
til að talca sæti fylkisstjóra, ef sá
embættismaður fellur frá og vara
Ifylkisstjórinn einnig.
Blökkumenn eru einnig í sókn hjá flugfélögunum amerísku, eins
og sjá má á bcssari mynd, en hún er tekin, þegar Joan Dorsey, frá
Flagstaff í Arizona, lauk prófi í flugfreyjuskóla American Airlines
í Fort Worth í Texas. Er hún fyrsta blökkustúlkan, sem lýkur prófi
frá slcóla þessum.
ALÞYÐUBLAÐIO — 24. ágúst 1963 ^