Lögrétta - 01.07.1934, Qupperneq 8
111
LÖGRJETTA
112
hinum einkennilegu skinnfötum sínum. Og
Grænlendingarnir ljetu sjerekkert bregðavið
flugheimsóknina, einn þeirra var meira að
segja svo snar, að koma brjefi á Lindberg
og harmaði þið mikið seinna, að hann hefði
ekki líka sent með honum gæs, sem hann
ætlaði að gefa vini sínum. Frú Lindberg þyk-
ir Julianehaab skemtilegastur af grænlensku
bæjunum. Flugið yfir Grænlandsjökul var
tignarlegt og fagurt og landið all tígulegt
að sjá þegar skilið var við það og haldið út
á hafið — „aftur til menningarinnar — á
íslandi“. Svo heitir kaflinn um dvölina hjer
og er stuttur.
„Klukkan 15,27 eftir Greenwichtíma þann
15. ágúst fórum við frá Grænlandi áleiðis til
íslands .... eftir svo sem þriggja stunda
ílug hofðum við landsýn af Islandi og lent-
um í Reykjavík kl. 20,44.
Munurinn á Grænlandi og íslandi var
miklu meiri en ætla mætti eftir tæplega
fimm stunda flug. Þetta háa og fjöllótta land
var á að sjá eins og allir fjallatindar hefðu
verið jafnaðir með sög. Stór hamrabelti
steyptust þverhnýpt niður að brimströnd-
inni, sem var iðgræn og í henni stöku díl-
ai', það voru lítil bændabýli. Reykjavík var
furðulega stói- á að sjá, þar sem hún breiddi
úr sjer fyrir neðan okkur. Raðir af ný-
tísku húsum, góðar götur, steinsteypu- og
bárujámshús, bílar, hafnarkvíjar fullar af
skipum — allt bar þess vott, að við vorum
aftur komin í menninguna.
Jeg fór frá Grænlandi með þeirri tilfinn-
ingu, að það væri landið, tröllaukið og ótam-
ið — sem rjeði lífinu, og að maðurinn væri
aðeins minnaháttar atriði, sem hefði sam-
ið sig að þessu erfiða lífi. Jeg fór frá ts-
landi með þeirri tilfinningu, að fólkið þar
væri hið tröllaukna fólk, sem hefði sigrað
landið. Það hafði ræktað hið moldarþunna,
grýtta land, það fæst við búpeningsrækt í
hraunhlíðunum, og hafði jafnvel sumstað-
ar þvingað hinar heitu uppsprettur til
)>ess að hita íbúðarhús sín og gróðurhús.
Þeir háðu þing; á Þingvöllum frá árinu
930. Vissulega höfðu þeir komið á athygl-
isverðri menningu í fögru en fremur
hrjóstrugu landi.
Við fengum færi á því að sjá meira af
landinu er við flugum yfir það þegar við
fórum: tindahvít eldfjöllin með storknuð-
um hraunstraumum, sem gerðu hlíðarnar
dökkar ofan í dalina, vogskorna ströndina,
þverhnýpta firðina, sem skárust langt inn
í hjarta landsins. t einum af þessum fjörð-
um á austurströndinni lentum við og vorum
nætursakir í fiskiþorpinu Eskifirði. En 23.
ágúst fórum við frá íslandi til Færeyja.
Þessar fögru klettaeyjar eru alræmdar
fyrir ill veður“.
Þannig er löndum og borgum lýst hverju
á fætur öðru. T. d. er sagt allmikið frá
Kússlandsdvölinni, en þau hjónin voru í
Rússlandi í viku og var forkunnarvel telc-
ið. Leningrad virðist fyrst í stað vera
mesta glæsiborg, með trjágöngum, turn-
vm, höllum og görðum. En þegar að er
gáð, ber borgin þess glöggan svip, að feg-
urðin er að fölna. Málningin er að falla af
húsunum, steinarnir fara úr lagi, strætin
óhrein eða óhirt, rjett eins og stórflóð hefði
íarið yfir borgina og' enginn hirt um að
hreinsa hana á eftir. Á götunum var krökt
af. fólki, alt var það illa til fara, alt svip-
að, alt á sömu leið. En listadýrgripir frá
zartímunum og hallirnar dýrlegri en í æf-
intýrum ... En Moskva er undursamleg úr
loftinu, furðulegt sambland gamals og nýs,
og breiðist yfir ógnarstórt svæði. Jafnvel
fljótt á litið sjest í Moskva framtak og
fjör, sem ekki verður vart við í Leningrad,
Þrátt fyrir nývirkin í Leningrad er borgin
þessháttar borg, að hún lifir á fornri
frægð, er í hröi’nandi elli. En Moskva hef-
ur, þrátt fyrir skuggahliðar sínar, yfir
sjer ótvíræðan anda æskunnar. — Fólkið
var að vísu ekki glaðlegt eða hamingju-
samt á svipinn, en áhugasamt, hugsaði
sýnilega um verk sitt. Leikhúsin og söfnin
voru altaf troðfull. Áhuginn á listaverkurn
var fremur þjóðfjelagslegur en fagur-
fræðilegur. En áhuginn var raunverulegur.
Svona er lýst landi af landi og altaf ber
eitthvað nýtt fyrir augun, en mest er þó
lýst flugferðinni og flugstjórninni sjálfri.
Þau hjónin komu aftur heim 19. desembev.
„Þegar við beygðum inn yfir landið, segír
frúin að lokum, reyndi jeg að rifja upp og
halda föstum myndum ferðalagsins, velti