19. júní - 01.05.1919, Page 10
vaxin jurt með afarstórum hjartalaga blöð-
um. Ræktaður í görðum. Brúkaður nýr.
13. Sortulyng. (Arctostaphylus. Uva ursi).
Jarðlægur allstór runni með þykkum, sigræn-
um og skinnkendum blöðum. Vex í mólendi
og innanum skógkjarr. Safnist í júnímánuði.
14. Túnsúra. (Rumex acetosa). Blöðin eru
notuð ný alt sumarið.
15. Fjallagrös. (Cetraria islandica).
16. Heimulasnjóli (Rumex domética). Stöng-
ullinn uppréttur, sívalur, stinnur og verður
trénaður með aldrinum. Blöðin mjög stór.
Blómslcipunin stór og blómmörg. Vex í þur-
lendi, heima við garða og bæi.
Nokkrar útlendar litunarplöntnr.
1. Rótin af krapplöntunni. Heimkynni: Suð-
urevrópu, Austurlönd. Inniheldur rauð litun-
arefni: Alazariu, Purpuriu.
2. Fernambuk. (Trjátegund). Heimkynni
Brasilia. Inniheldur rautt litarefni.
3. Cochenille. Skjaldlús, sem lifir á ýmsum
»Cactus«plöntum. Heimkynni: Mexiko, Algier.
Inniheldur rautt litarefni: Carnum.
4. Brúnspónn. Viðartegund frá Mið-Ame-
ríku.
5. Galœble. Hnattmyndað æxli, sem kemur
10