19. júní - 01.05.1919, Qupperneq 17
Nr. 12. Grænt með Kaltarbarn.
500. gr. band, 25 gr. blásteinn, 4—5 kg.
rabarbaraleggir. Blásteinsliturinn eins og nr. 11.
Rabarbaraleggirnir eru þvegnir og brytjað-
ir i smáa bita. Síðan soðnir í 2 klt., þá er
lögurinn síaður frá, og bandið soðið í hon-
um 15—30 minútur.
Nr. 13. ÍJrágrænt með sortulyngri.
500 gr. band, 80 gr. álún, 16 gr. blásteinn,
4—5 kg. sortulyng.
Álúnsliturinn eins og nr. 1.
Nýtt sortulyng er soðið 2—3 klt. Lögur-
inn síaður frá og bandið soðið í honum Va
—1 klt. Bandið er þá tekið upp úr og kælt,
en blásteinninn látinn í löginn og bandið
aftur soðið í honum 5 mínútur.
Nr. 14. (Irænt með mosa og birkilaufl.
500 gr. band, 40 gr. álún, 11 gr. bláolía,
1 kg. þurkað birkilauf, 2 kg. mosi.
Álúnsliturinn eins og nr. 1.
Þegar álúnslögurinn er orðinn hálfkaldur,
er bláolían látin í hann og bandið soðið í
10 mínútur.
Birkilaufið og mosinn eru soðin í 3 klt.,
lögurinn síaður frá og bandið soðið í hon-
um 1—1V* klt.
17