Alþýðublaðið - 28.09.1963, Page 3

Alþýðublaðið - 28.09.1963, Page 3
DONESAR BUAST Albanir hðllmælð R STYRJÖLD Moskvusamningnutri Djakarta, 27. september. (NTB-Reuter). Indónesíustjórn hefur sent svéitir sérþjálfaðra hermanna til indónesísku Borneó. Hermennirnir eiga að gera við flugvelli og byggja fleiri flugvelli nálægt landamær- um Saravak, sem nú er hluti af Malaysíu-sambandinu. Frá þessu var skýrt í Djakarta í dag. Indónesíska fréttastofan Ant- ara sagði, að þegar flugvellirnir væru komnir í gott lag, væri hægt að taka á móti meiri umferð her- flugvéla og annarra flugvéla. Indónesíski hershöfðinginn Mustid, sagði, að indónesískir her- menn hefðu aldrei farið yfir landa mæri Indónesíu á Borneó og engir árekstrar hefðu átt sér stað. Hershöfðinginn sagði, að her- sveitir Indónesa, sem starfa á veg- um SÞ í Kongó, yrðu kvaddar heim þegar starfi þeirra í þágu SÞ lyki hinn 1. nóvember. Forsætisráðherra Japans, Haya- to Ikeda, mun vera fús til þess að miðla málum í deilu Malaysíu og Indónesíu. Hann hefur rætt við Sukarno forseta, að því er tilkynnt var. Seinna átti hann viðræður við sehdiherra Bretlands og Banda- ríkjanna. Sagt er, að samræður er við Sukarno hafi snúizt um efna- hagsmál en ekki Malaysíu. Við leikana á fundi æðstu manna í Malaysíu, Filippseyja og Indónesíu í því skyni að draga úr spennunni í sambúð ríkjanna, að því er á- reiðanlegar heimildir herma. Tunku Abdul Rahman, forsætis- ráðherra Malaysíu, sagði á blaða- mannafundi í Singapore í dag, að hann væri fús til að taka þátt í sendiherrana ræddi hann um mögu wmmmmmwmmmwmmwd 8íræ//ð rán í bankabil London, 27. sept. NTB-AFP. Átta bófar gerðu í dag bíræfið rán í bankabifreið á veginum nálægt Swanley í Kent og komust undan með gullstengur að verðmæti um 90 þúsund pund ((tæpar 11 millj. ísl. kr.). Ránið var greinilega mjög vel skipulagt og tók aðeins nokkrar sekúndur. Bófarnir lokuðu veginum með vöru- bifreið og Landroverbifreið. Þeir yfirbuguðu bílstjórann og samstarfsmennina í banka bílnum og hurfu af staðnum í vörubifreið, sem hafði ver- ið lagt skammt frá. Einn mannanna í banka- bílnum var sleginn niður og hefur verið fluttur á sjúkra- Iiús. Hinum tókst að skrifa upp númerið á vörubílnum, sem ræningjarnir hurfu í. Hafin er umfangsmikil leit i Swanley-héraði. Allir vegir í nágrenninu hafa verið lok- aðir síðan stuttu eftir að rán- ið var gert. slíkum fundi, ef hann gæti treyst því, að Indónesar og Filippseying- ar væru fúsir til að virða alla fyrri samninga um Malaysíu-samband- ið. — En til hvers er að ræða um frið, þegar Indónesar búa sig undir styrjöld, það er tilgangslaust að koma á fundi æðstu manna á sama tíma og Indónesar senda her til landamæra Saravak, sagði hann. Hann sagði enn fremur, að að- gerðir Indónesa gegn Malaysíu, m. a. rof á öllum viðskiptasambönd- um, skaðaði Malaysíu, en Indónes- i íu ennþá meira. ! Efnahagsþvinganir nægja ekki til þess að knésetja Malaysíu eða fá okkur til þess að biðja Indó- nesíu griða, sagði hann. New York, 27. september. (NTB-Reuter). Utanríkisráðherra Albaníu, Be- j har Shtylla, líkti í dag samningn-1 um um takraarkað tilraunabann við Múnchen-samninginn 1938. Hann lýsti því yfir, að samning- urinn væri gryfja, sem gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir mann- kynið. í ræðu sem utanríkisráðherrann hélt á Allsherjarþingi SÞ i New York gerði hann harða hríð að Bandaríkjamönnum og Rússum. I Ræða hans vakti nokkra athygli jvegna stuðnings Albaníu við kín- i verska alþýðulýðveldið. Formenn ! sendinefnda austrænu ríkjanna voru ekki viðstaddir þegar Shtyl- la gekk upp í ræðustólinn. I Tilraunabannssamningurinn getur aðeins styrkt hættulegar tálvonir og veikt baráttu hinna ýmsu ríkja gegn heimsveldis- stefnunni, sagði hann. Tilraunasamningurinn gerir hin friðelskandi ríki háð náð eða ónáð heimsveldissinna. Annað hvort verður að banna öll kjarn- orkuvopn eða að öðrum kosti má ekki fela forsjá friðarins nokkr- um heimsveldum og allra sízt Bandaríkjunum, sagði hann. — Tilraunabannssamningurinn hefur leyst úr læðingi allsherjar rógsherferð, sem beint er gegn kínverska alþýðulýðveldinu. En þetta mun ekki hafa áhrif á frið- arstefnu Peking-stjórnarinnar, sagði hann. Formaður bandarísku SÞ-sendi- nefndarinnar, Adlai Stevenson, sagði, að með því að hlusta á Framh. á 14. síðu Hvernig Valacbi var kysstur „dauðakossi' Eftirmenn Bosch ff ekki verkfæri“ SANTO DOMINGO, 27. sept. (NTB-Reuter). Formaður hinnar nýju stjórnar þriggja manna I Dóminikanska- lýðveldinu, de los Santos, sagði í dag, að hin nýja stjórn væri ekki verkfæri herafla landsins. Hann kvað stjórnina afleiðing að vilja þjóðarinnar vegna óstjórnar fyrri rikisstjórnar. Nýja stjórnin var mynduð i gær eftir byltinguna á miðvikudag, er varð til þess, að Juan Bosch for- seti neyddist til þess að segja af De los Santos lýsti því jafn- framt yfir, að nýja stjórnin mundi hraða uppbyggingu efnahagslifs landsins og hún mundi standa við allar alþjóðlegar skuldbindingar. Stjórnmálaflokkamir sex, sem hafa skipað þrímenningana til þess að stjórna landinu til bráða- birgða, hafa enn ekki náð sam- komulagi um stjórn á breiðari grundvelli. Þeir héldu langan fund um málið í kvöld. Nýja stjórnin hefur ekki tekið ákvörðun um örlög Juan Bo6chs. Hann er hafður í haldi í forseta- höllinni í Santo Domingo ásamt varaforsetanum og ráðherrum fyrrverandi stjómar. Útgöngubann, sem strax var fyrirskipað, er enn í gildi og enn er neyðarástand í Dóminikanska lýðveldinu. í Washington var skýrt frá þvi að nýja stjórnin hefði ekki beðið um opinbera viðurkenningu. — Bandaríkin hafa slitið stjórnmála- sambandi við lýðveldið til bráða- birgða. Gaf sig fram Framh. af 16. síðu Þess má geta að Sigurbjörn hef ur að undanförnu verið all um- svifamikill í veii'ngahúsamálum höfuðstaðarins. Han ntók fy'rlr skömmu við rekstri Glaumbæjar og mun liafa keypt allt innbú I staðarins af Ragnari Þórðarsyni. | Þá keypti hann fyrjr 'skömmu fuglabúið Álfsnes. Hann rak áð- 1 ur Vetrargarðinn. Washington, 27. september. (NTB-Reuter). Joseph Valachi, morðinginn, sem um eins árs skeið hefur veitt bandarískum yfirvöldum nákvæm- ar upplýslngar um hina ógnvekj- andi glæpastarfsemi Mafia-glæpa- félagsins, sagði í dag öldungadeild arnefnd hvernig „yfirmaður yfir- mannsins” í undirheimunum hefði gefði gefið honum „dauðakoss- inn” í fangelsinu. • Valachi, sextugur Bandaríkja- maður af ítölskum ættum, var und- ir vernd lögreglu, þegar hann gaf rannsóknarnefnd þeirri, sem rann- sakar skipulag glæpa í Bandaríkj- unum, skýringar sínar. Valachi lýsti m. a. Vito Geno- vese, þekktum manni úr undir- heimunum, sem er fremstur í flokki Cosa Nostra-glæpafélagsins, en það er ein grein Mafíunnar. Hann lýsti vandlega, en á nokk- uð torskilinn hátt, þar sem hann notaði óspart slanguryrði, hvernig hann var dæmdur til dauða, þegar Genovese hafði frétt um nokkuð, sem Valachi hafði gert, er hann var að inna verk af höndum, sem honum hafði verið falið. Genovese situr nú í fangelsi, m. a. ákærður fyrir eiturlyfjasölu. — Valachi sat í fangelsi, þegar hann drap einn meðfanga sinn og var því næst dæmdur f ævilangt fang- elsi. Áður hafði hann fengið 15 og 20 ára fangelsi, vegna þess, að hann hafði verið viðriðinn eitur- lyfjasólu. Valachi sagði nefndinni, að hann hefði orðið meðlimur Cosa Nostra 1930. Nafn glæpafélagsins þýðir „Hlutur okkar” eða „Fjöl- skylda okkar”, sagði hann. Samtökunum stjórnar hópur 10 til 12 manna, sem hver um sig stjórnar ákveðinni „fjölskyldu” eða deild. Þeir hafa sér við hlið næstráðendur. síðan koma nokkrir „lautinantar” og neðst í mann- virðingarstiganum eru venjulegir meðlimir eða „hermenn”. Valachi var í hópi þeirra síðastnefndu. Hinn lágt setti, rauðhærði glæpamaður, sonur foreldra, sem fluttust frá Napoli. Hann gekk um hríð í skóla, en fékk menntun sína eins og hann sjálfur segir í Sing Sing. Valachi, sem var klæddur grá- um fötum og talaði ruddalega, —. gerði öldungadeildarþingmennina orðlausa og skemmti þeim og á- ; heyrendum með sérkennilegum slanguryrðum og lýsingum á Cosa Nostra. Hann kvaðst vera sammála Jóhn j McClellan öldungadeildarþing- i manni um það, að hann hefði að- I eins unnið eitt heiðarlegt starf um ! ævina. EBE tekur þátt í fiskiráðstefnunni RÁÐHERRANEFND Efnahags- bandalags Evrópu hefur þegið boð WiMMMMMWMMMMMVMW Metsala á Denn- ingsskýrslunni London, 27. sept. (NTB-Reuter). Til þessa hafa selzt 105 þús. eintök af skýrslu Denn- ings lávarðar, að sögn bóka- verzlunar stjórnarinnar í dag. Eftirspurnin er enn mik- il og ný upplög í prentun. John Profumo, fyrrum hermálaráðherra, og kona hans hafa neitað að láta i Ijós álit sitt á skýrslunni. Astor lávarður, sem minnst er á í skýrslunni, sagði í dag, að engu væri við skýrsluna að bæta. Hann kvaðst vilja fara að ráðleggingu Denn- ings lávarðar þess efnis, að segja ekkert frekar um mál- ið. MMMMMMMMMMMMMMMV Breta um að taka þátt f fiskimála« ráðstefnu í London í desember. En ekki rikir samkomulag meðal ríkjanna sex í bandalaginu umt dagskrá ráðstefnunnar. Frakkar vilja m . a. ekki samningaviðræð- ur um fiskiverzlun meðan ekkl hefur náðst samkomulag um stefnu EBE í fiskimálum. Eftir viðræður ráðherranefndar- innar var sagt, að EBE teldi að á ráðstefnunni skyldi rætt á almenn- um grundvelli um vandamálin án þess að þátttökuþjóðirnar gæfu bindandi loforð um verzlun með fisk eða útfærzlu fiskveiðilög- sögu. í Að sögn varaformanns ráðherra- nefndarinnar, Sicco Mansholt, mun nefndin leggja fram fyrstu tillögu sína um sameiginlega fiskimála- stefnu á fyrsta fjórðungi næsta árs. Að sögn formælanda nokkurs er ætlunin, að hin sameiginlega stefna verði tilbúin fyrir árslok 1964, þannig, að þá verðl hægt að efna til nýrra Lundúna-ráð- stefnu. í ALÞÝÐUBLAÐID — 28. sept. 1963 3 i

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.