Alþýðublaðið - 23.11.1963, Blaðsíða 5
Ræðan, sem aldrei var flutt
WWMMMIWMMMWWWWWMiMWWWWiWWMilMIIWMiWMiMMWWMMWWWWmiW)
DALLAS, Texas 23. nóv. ntb-rt. t ræðunni ætlaði ICennedy að
Kennedy forseti féll fyrir hendi
launmorðingja, áður en hann hafði
komið á framfæri síðustu aðvör-
un sinni tjl bandarísku þjóðarinn-
ar, — að nú á tímum gæti frelsið
glatast án þess að skoti sé hleypt
af.
í ræðunni, sem forsetinn átti að
halda um hádegið í gær í Dallas,
sagði, að nú á dögum væri allt
eins hægt að glata frelsinu
fyrir tilstilli atkvæðaseðla eins og
byssukúlna.
verja aðstoð Bandaríkjanna við
önnur lönd, og var því haldið fram 1
í ræðunni, að sú aðstoð gegndi úr-
slitahlutverki í baráttunni fyrir
því, að það fólk, sem býr í skugga-
kommúnismans geti varðveitt sjálf
stæðd sitt.
Ræðu sinni ætlaði forsetinn að
ljúka með svohljóðandi tilvitnun
í Biblíuna úr 127. sálmi: „Ef Drott-
in verndar eigi borgina, vakir
vörðurinn til ónýtis.“
STUTT EN GLÆSILEG ÆVI
Framhaid af 3. síðu.
anna sem forusturíkis í alþjóða
málum og athafnir hans á því
sviði voru bæði margbrotnar
og báru vott um gerhygli. —
Hann vann einlæglega að því
að bæta sambúð austurs og
vesturs, en það var járnhnefi
í silkihanzkanum, cins og sást
í Kúbumálinu. Hann vildi draga
úr spennunni í Berlín, hann
vildi, að Laos yrði hlutlaust og
óháð ríki, og hann barðist fyr-
ir raunhæfu banni gegn kjarn-
IMMMMMMWMMMMMMMMM
FORELDRARNIR
FENGU FRÉTTINA
ÚR ÚTVARPI
Haynis Port, Mass. 22. nóv.
NTB-AFP. Foreldrar Kenn-
edys forseta heyrðu fréttina
um andlát sonarins frá
manni, sem vann í garði
Jieirra. Maðurinn hafði
Iieyrt fréttina í transitorút-
varpstæki.
Kennedy hafði ætlað að
dveljast hjá foreldrum sínum
á fimmtudag í næstu viku
— Thanksgiving Day.
Frú Rose Kennedy held-
ur sennilega til Dallas, þar
sem sonurinn var myrtur.
Joseph Kennedy er sjúkur.
HMMWMMM%MMMMMMMM
orkuvopnatilraunum. Kennedy
barðist fyrir því, að Bandarík-
in sendu sveitir vel þjálfaðra
manna til vanþróuðu rikjanna
til að veita þeim stuðning við
uppbyggipgu atvinnulífs og
menningar og studdi nýfrjálsu
ríkin í Asíu og Afríku af heil-
um hug og lagði fram framfara-
áætlun. sem miðar að auknum
félacslegum og efnahagslegum
framförum í Suður-Ameríku.
T innanrík’smálum var ekki
síður við erfiðleika að et.ia fvr-
ir Kennedy, en eins og í utan-
ríkismálunum einkenndist
stefna hans í þeim af festu og
öryggi. í forsetatíð sinni lagði
liann fram fiöldamörg frum-
vörp, sem miðuðu að umbótum
í innanríkismálum. Hann hafði
mik'nn áhuga á að Ieysa úr
vandamálum verkalýðshreyfing
arinnar og uppræta ýmis spill-
ingaröfl innan hennar. Kenn-
edy barðist fvrir lækkun skatta
— {•'úiVabvggingum og sjúkra-
hjálp fyrir gamalmenni. Og nú
upn á síðkastið lét hann ekkcrt
tækifæri ónotað til að koma á
bæítri löggíöf um borgararétt-
indi með hliðsjón af kynbátta-
vandamálunum í Bandaríkjun-
um.
Kennedy skrifaði þrjár bæk-
ur. Fyrir eina beirra, „Profil-
es in Courage” hlaut hann Pu-
litzer-verðlaunin 1956. Hinar 2
eru „M'hy England slept” og
„Then Strategy of Peace.“
John F. Kennedy var kvænt-
ur Jacoueline Bouvier, dóttur
bankastjóra í New York. Börn
þeirra eru tvö.
Hinn nýi Bandaríkjaforseti
LYNDON BAINES JOHNSON,
36. forseti Bandarikjanna,
fæddist nálægt Johnson City
í Texas árið 1907. Faðir hans
var um 24 ára skeið þingmað-
ur á fylkisþingi Texas. John-
son kennarapróf árið
1930 og stundaði kennslustörf
í tvö ár í Houston. Áhugi hans
á stjórnmálum gerði þó fljót-
lega vart við sig, og hann
gerðist ritari Richard Kleberg,
þingmanns i fulltrúadeildinni,
jafnframt því sem hann stund-
aði lagaám við Georgetown
University í Washington D.C.
Johnson var kjörinn þing-
maður í fulltrúadeild Banda-
rikjaþings í aukakosningum
1937, en beið hins vegar ósig-
ur í kosningum til öldunga-
deildarinnar 1941. Árið 1948
var hann kiörinn öldungadeild-
arþingmaður með 87 atkvæða
meirihluta. Er Japanir gerðu
árás sína á Pearl Harbor 1941,
varð Johnson yfirmaður í flot-
anum og starfaði á Kyrrahafi,
þar til Roosevelt forseti bann-
aði þingmönnum að vera í
hernum.
Johnson er sagður hafa Iært
mest af pólitískri færni sinni
af hinum aldna og nýlátna
deinókrataforingja, Sam Ray-
burn frá Texas, en þeir voru
ár"m saman alls ráðandi í
flokki demókrata þar í ríki.
Það var talið eðlilegt, að
Johnson kæmi til greina sem
frambióðandi demókrata viff
forsetakosningarnar 1960, en
hins vegar var talið mjög ólík-j
legt, aff hann mundi láta sér
næg.ia annað sæti. Þaff var því
talið mikið afrek af hinum ný-
látna forseta. John F. Kenn-
edy, að geta fengið hinn vold-
uga Texasbúa til aff taka að 'sér ,
að vera í framboði sem vara- í
forseti.
Lvndon B. Johnson cr ís-
lendingum að góðu kunnur frá
því aff liann kom hingað í heim
sókn á sl. sumri ásamt konu
sinni Ladv Bird og dóttur
sinni Lynda Bird. Þau hjón
eiga aðra dóttur, Lnev Baines,
sem er 16 ára aff aldri.
MMMM»%%MMWWMWWMWMMMMMWMMMW
sem er 16 ara aff aldri. ;
»%%%%%%%%MM%M%%M%%%%%%%%%%%%%%%%%%M%%%%%%WO
! J
l '
>
í
! í-
►
:i
S
UMMÆLI ÍSLENZKRA
STJÓRN MÁL ALEIÐTOG A
Alþýðublaðið ræddi i gærkveldi
við Emil Jónsson, félagsmálaráð-
herra, en hann gegnir nú einnig
störfum utanríkisráðlierra í fjar-
veru Guðmundar í. Guðmundsson-
ar.
Um lát Kennedys sagði Emil'-
„Ég tel þetta vera einn hryggi-
legasta atburð, sem átt hefur sér
stað á undanförnum árum, eða
Washington, 22. nóv. NTB-AFP.
Utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, Dean Rusk, var á leið til
Tokyo í flugvél, þegar honum barst
fréttin um lát Kennedys. Hann
hætti strax við ferðina og hraðaði
sér til Bandaríkianna.
Rusk var á leið frá Honolulu, þar
sem hann sat heTmálaráffstefnu,
en þar var meffal annars rætt um
ástandið í Suður-Víetnam. í Tok-
yo átti Rusk að ræða við háttsetta
bandaríska stjórnmálamenn.
Harmur um heim alBan
Framh. af 3 .siðu
Einar Gerhardsen forsætisráð-
Iierra Noregs gaf eftirfarandi yfir-
lýsingu í viðtali við fréttamann
NTB-fréttastofimnar:
„Þetta cru slæmar fréttir og
mikið áfall fyrir þá sem skilja hve
miklu við sjáum á bak við dauða
Kennedys forseta. Við vorum ör-
ugg um hann í þeirri háu stöðu
sem hann gegndi. Við tókum tillit
tól hans og trúðum á hann. Við
trúðum á vilja hans til réttlætis og
friðar og hæfileika hans til að
jafna mótsetningarnar í heimin-
um. Norska þjóðin vill á þessari
stundu láta í ljósi sína innilegustu
samúð með forsetafrúnni og börn-
um hennar, sem og allri banda-
rísku þjóðinni."
, De Gaulle forseti FrakklandSi
sagði að Kennedy hafi dáið eins og
hermaður í eldlínunni, meðan hann
var að skyldustörfum fyrir þjóð
sína. Fyrir hönd írönsku þjóðar-
innar, sem alltaf hefur staðið í
vináttusambandi við Bandaríkja-
menn heiðra ég fordæmi hans og
minningu.
Leiðtogi brezka Verkamanna-
flokksins, Harold Wilson, sagði að
Kennedy hafi verið góður vinur
Stóra-Bretlands, mikill stjórnmála
maður og baráttumaður fyrir friði
og jafnrétti kynþáttanna í Banda-
ríkjunum.
Churchill, fyrrverandi forsætis-
ráðherra Bretlands, sagði að Banda
ríkjamenn hefðu misst mikinn leið
toga og gáfaðan og styrkan mann.
Tjónið fyrir Bandaríkin og allan
heiminn verður ekki metið. Þeir
Attlee og Eden fyrrum forsætis-
ráðherrar létu orð falla á sömu
lund.
í fréttum frá Moskvu segir að
hópur soveskra stúdenta hafi stað
ið fyrtir samúðarhópgöngu utan
við bandaríska sendiráðið þar í
borg. „Hann var annar Lincoln,
sagði einn stúdentinn skjálfandi
röddu. Um 100 manns söfuðust
saman fyrir utan sendiráðið, eum-
ir höfðu heyrt fréttina um Moskvu
útvarpið en aðrir höfðu hlustað á
útsendingu Voice of America.
Pravda, málgagn sovétstjórnar-
innar, fór klukkustund seinna i
pressuna en venjulega í kvöld, 'til
að fá sem nákvæmastar fréttir af
morðinu.
áratugum. Kennedy var einn helzti
forsvarsmaður lýðræðis og mann-
réttinda í heiminum. Honum var
vel ágengt í baráttp sinni fyrir
jafnrétti manna af öllum kynstofn-
um. Hann sýndi hug sinn í verki
með því að hjálpa og styðja þær
þjóðir, sem skemmra eru á veg
komnar. Allra sorglegast finnst
mér þó að hugsa til þess, að það
skuli ef til Viill hafa verið þessi
jafnréttis og frelsishugsjón hans,
sem varð honum að aldurtila."
Bjarni Benediktsson, forsætis-
ráðherra, minntist Kennedys,
Bandaríkjaforseta í síðari frétta-
tíma Ríkisútvarpsins í gærkveldi
og sagði:
Mér varð vissulega orða vant,
þegar ég heyrði hina hryllilegu og
hörmulegu fregn um morð Kenne-
dys Bandaríkjaforseta, glæsimenn
is í blóma lífsins, æðsta manns
mesta stórveldis lieims og leiðtoga
allra frjálsra þjóða. Ég tek mér
því í munn orð Matthíasar Joc-
humssonar, sem mælti óviðbúinn
þegar honum barst andlátsfrcgn
merkismanns:
Aldrei er svo bjart
yfir öðlingsmanni
að eigi geti syrt
eins snöggiega og nú,
og aldrei er svo svart
yfir sorgarranni,
að eig,i geti birt
fyrir eilífa trú.
Allir vita, að trú Kennedys hafði
næstum því kostað hann forseta-
dæmið. Til þess var hann samt
kjörinn og hefur gegnt því með
þeim ágætum, sem lengi munu í
minni höfð. Morð hans sýry:r, að
öllum líkaði ekki jafnvel við hann.
En þó mun hann hljóta mesta
frægð af því, sem sennilega hefur
kostað hann lífið, baráttunni fyrir
jafnrétti svartra manna og hvítra.
í alþjóðamálum reyndist Kennedy
trúr þeim orðum, sem hann mælti,
er hann tók við embætti, að menn
ættu aldrei að semja af hræðslu
| en heldur ekki að vera liræddir viG
að semja. Kennedy var í senn
mikill baráttumaður og mikill.
mannasættir. Þess vegna er hans
nú saknað um alla heimsbyggðin&.
á íslandi ekki síður en annars •
staðar. íslendingar sameinast um
að votta konu hans og fjölskyldu,
hinum nýja forseta og allri Bandn-
ríkja-bjóð,:nni innilega samuð.
Eysteinn Jónsson, formaður
Framsóknarflokksins, sagði, er
blaðið ræddi Við hann í gærkveldí:
„Þetta er sviplegra áfall, en hægf;
er að lýsa með orðum. í mínun.i
augum var Kennedy forseti rétt-
ur niaður á réttum stað, og engm
tilviljun að málefni heimsins virt-
ust snúast til betri vegar nú um
sinn. Við verðum að vona að svo
giftusamlega takizt til að, unniP
verði áfram í lians anda. Minnjg
hans mun geymast og verða mörg-
um leiðarljós."
M%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%»»%«
ÞRÍR FORSETAR
ÁÐUR MYRTIR
Washington, 22. nóv. NTB-K.
Auk Kennedys hafa þrír
Bandaríkjaforsetar látið lífið
í tilræðum.
Abraham Lincoln vwr skoé-
inn hinn 14. apríl 1865 í
Washington og lézt degi síff-
ar.
James A. Garfield var
skotinn hinn 2. júlí 1881 í
Washington og lézt 19. sept.
saina ár,
William McKinley var
skotinn í Buffalo, New York
ríki hinn 6. september 1901
og lézt hinn 14. september.
IMHHHH%%t%W(WM%UMMtl
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 23. nóv. 1963 §