Alþýðublaðið - 01.12.1963, Page 9
Loks var svo handritið tilbúið
og Guðmundur Jakobsson í Ægis-
útgáfunni tók við því eins og um-
samið var, snemma í september
s.l, og nú er bókin að koma út.
Þegar við vorum að ræða um
útlit bókarinnar fannst okkur ó-
fært að skreyta hana ekki með
teikningum, þar sem svo margir
atburðir gefa tilefni til þess- Og
þrátt fyrir að Rikki ætti slatta af
myndum frá þessum órum, þá voru
þær ekki allar af þeim atburðum.
sem bókin greinir frá. Ýmsir teikn
arar komu til greina, en hér á
landi er nýlega seztur að uhgur
spánskur listamaður, Baltasar að
nafni, (með essi), sem mér finnst
teikna sérstaklega skemmtilega,
að öðrum ólöstuðum. Baltasar hef-
ur sjö ára nám að baki og er auk
þess prófessor. Hann var strax til-
: leiðanlegur og gerði 9 teikningar
í bókina, hverja annarri betri og
skemmtilegri. Þó finnst mér ]*íp-
an skemmtilegust. Eymundur í
Litróf gerði myndamótin, af sinni
alkunnu snilld, og þá er nú kom-
inn litur á þetta-
Nú er ekkert eftir annað en sjá
hvort fólk er sammála#!mér í að
þetta séu skemmtilegar sögur.
Hitt er svo annað mól að ég hefi
haft gott af að skrifa þessa bók
Ef ég legg einhverntíma í að skrifa
aðra, veit ég betur hvað ekki má
og hvernig ekki á að skrifa bók.
Það verður að sjálfsögðu því ijós-
ara eftir því sem ég velti þessu
viðfangsefni oftar fyrir mér. Ég
hefi nú þegar, áður en bókin er
fullprentuð, séð ýmislegt sem ég
hefði viljað hafa öðruvísi.
Já, þannig mæltist honum Sig-
urði Hreiðari um tildrögin að
smíði væntanlegrar bókar. Bókin
heitir „Alltaf má fá annað skip“
og er nafnið táknrænt fyrir efnið-
WWWWWHMtWWWWWW
; Teikningar hér á síð j!
! unni eru úr nýju bók- !!
> inni hans Sigurðar ;!
; Hreiðars, en Baltasar !|
! hefur teiknað þær. j j
; Maðurinn sepi er að jj
! ganga fram hjá kirkj- jj
j unni, er aðalsöguhetja j!
j hókarinnar Rikkar Ás j j
j geirsson', en hin mynd j j
j in er af höfundinum. j j
mwwwwwwwwwwwwww
I KAUPMENN 1
I KAUPFÉLÖG I
■ m
Höfum fyrirliggjandi mikið úrval af:
eldhúsáhöldum
plastvörum
íeikföngum
gjafavörum
—-----
PÁLL SÆMUNDSSON
I HEILDVERZLUN
LAUGAVEGI 18 A (5. hæð) SÍMI 14202
I
Snyrfisfofan Margréf
Skólavörðustíg 21. — Sími 17762.
Vegna eftirspurna verða haldin 2ja vikna námskeði ei’
víð nefnum „Frá hvirfli til ilja“ (samskonar og Charm
school top to toe). Kennd verður snyrting fyrir allan líkam-
ann, andlitssnyrting dag- og kvöld make- up.hegðun, leik-
fimi o. fl.
Sérmenntaðir kennarar með fleiri ára starfsreynslu.
Einkatímar ef óskað er.
BAZAR
fteldur kvenfélagið Edda
mánudaginn 2. desember kl. 3 í Félagsheimili
prentara Hverfisgötu 21.
Bazarnefndin.
Ibúð óskast
í Reykjavík — Kópavogi eða Hafnarfirði
sem fyrst.
Upplýsingar í síma 37312 frá kl. 1—6 í dag.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
1. des. 1963 9