Alþýðublaðið - 03.01.1964, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 03.01.1964, Blaðsíða 2
Rlisijorui: uylfi GrönQai ,ao.j og tseneaiKi úrðndal. - Fréttastjórl: jtrnl Gunnarsson Rltstj omarf ulltrúl Elður GuSnason. Siœar 14900-14903. Auglýslngasíml 14906 Aðsetur: Alþýðuhuslð vlð llverflsgötu, ReykJavík. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. - Askriftargjald %r. 80.00. — t lausasölu kr. 4.00 elntakið. - ÚtgefandL' Alþýðuflokkurinn. SÖGUSKILNINGUR l ÞESSA DAGA er deilt um sögulegan skilning á atburðum, ;sem gerðust á fyrsta tug aldarinnar og greint er frá í nýútkom.tnni bók- Hefur Tíminn meðal annars gengið hart fram í skrifum, þar sem reynt er að vernda réttan skilnmg stjómmálasög- ; unn ar. Sömu daga og Tíminn tekst þetta verkefni á hendur, birtir hann áramótagrem eftir formann .Framsóknarflokksins, Eystéin Jónsson, þar sem enn eúkx sinni er útlitstuð alröng mynd af sögu síðustu .15—20 ára. Er hér um að ræða þjóðsögu, sem fram sóknarmenn hafa breitt út sjáKum sér til stuðn- ings, en sagan er jafn skaðleg og öll önnur sögu- : fölsun. Framsóknarsagan er í stuttu máli á þá lund, að fram til 1959 bafi ríkt réttlátt stjórnarfar í land inu (enda framsókn í ríkisstjóm), og hafi þá með , .íslenzkri stefnu verið unnið að aihliiða, réttlátri og ; góðri uppbyggmgu, sem gert hafi almúgamenn i landinu bjargálna. Eftir 1959 hafi tekið ivið vond stjórn, samdráttur og misrétti og allt gert fyrir auðmannastéttina, en ekkert fyrir hiina almennu íslendinga. Því betur sem þessi þjóðsaga Eysteins er skoð- ■uð, því augljósara verður hve fráleit hún er. Aldrei hefur iverið lánað eins mikið fé til íbúðabygginga eða verkamannabústaðakerfi styrkt eins vel og síð ■ustu ár. Samt segir Eysteinn, að nú fái menn ekki að eignast íbúðir, en sé sagt að búa í leiguíbúðum penmgaman-na. Aldrei hefu'r verið flutt til lands- ins eins mikið af fiskibátum og síðustu ár. Hverj- ir eig£’ þessa báta? Það -eru e-kkl stórfélög eða auð- íhringar, heldur dugmiklir sjómenn og útivegs-menn um land allt, sem njóta -mikillar -aðstoðar til -að geta eignzt skipin. Samkvæmt þjóðsögu Eysteinis á -slíkt þó -efkki að hafa komið fyrir síðan 1959. Einn þáttur þjóðsögunnar er sá, að stjómar- flokkam'lr -hafi fjandskapazt við almannasamtök eins og verkalýðs- og samvinnuhreyf ingamar. Ekki þótti iverkalýðsfél-ögu-m Ey-steinn v-erða sérlega vin isamlegur, þegar hann var ráðherra, og lítill er •hlutur framsóknar í þeim átökum, sem h-afa átt sér stað í vetur. Um samvinnuhreyfinguna er það að segja, aið hún hefur fengið banka frá núverandi stjórnarflok-kum og fjárfesting hennar í by-g-ging um og iðnaði hefur -sjaldan eða aldrei verið meiri en nú. Aukning almannatrygginga, húsnæðislán, verfeamannabústaðir, stuðningur við -atvinnuvegi og margvísleg uppbygging bera vott um, að þjóð- saga Eysteins er hrein fjarstæða, sem á ekkert skylt vilð veruleikann. Hún er .rangtuikun á sann- leikanum til að fegra málstað Framsóknarflokks- íns. ÁRAMOTIN URÐU MORGUM ánæsrjuleg og öðrum ekki. Ég varð ckki var við mikil læti á gamlárs- kvöld, enda inni hjá sjálfum mér og ekki í umferðinni. En á nýárs- dagsmorgun vaknaði ég við hvin í lögreglubQum og sá þá þjóta um göturnar og þeir virtust flýta sér óskaplega báðar ieiðir, stund- um tómir og stuudum fullir og stundum eltu þá sjúkrabifreiðar — og mér fannst sem öll þessi læti boðuiffu már á nýársdags- morgun einhvers konar ótíðindi. ÉG SAGBI við konu mína: „Það er víst ekki gott ástand á sumum heimilum í borginni á þessum morgni.“ — Ég var dálítið mædd- ur út af þessum ólátum, en hún svaraði: „Ekki vera svartsýnn. Það er áreiðanlega ánægja og ham- ingja á miklu fleiri heimilum." Og ég féllst á þetta. Útvarpið hafði það eftir Erlingi Pálssyni að allt hefði í raun og veru verið í lagi. Nokkrir brenndust eða slösuðust á annan hátt. Sprengjum var kast að og kínverjar sprengdir. Sextíu fóru í Slysavarðstofuna og fimm þaðan í sjúkrahús- FJÖRUTÍU UNGLINGAR voru teknir fastir — og þar fram eftir götunum. Það „var allt í lagi,“ enda hafði Erlingur séð hann svartan fyrr, því að satt er það, að fyrrum var brjálað ástand á gamlárskvöld þegar kvenfólk var stungið með nálum, bifreiðum velt í Austurstræti og tunnum velt um götur. Þá voru glæpir framdir að ásettu ráði, en allt þetta breyttist þegar brennunum var dreift um borgina. Forsetinn hefði átt að sæma þann mann, sam fann það ráð á sinni tíð, fálkaorðu á nýárs- dag. ÚTVARPSDAGSKRÁIN var góð á gamlárskvöld, en annáll ársins í flutningi formanns íslenzkra svartsýnismanna, var hámarkið í þeim þætti, liárfínn húmor og fluttur af mikilli list. Ég vil sér- Allt í lagi á gamlárskvöld. Hvinur í lögreglubílum á nýársmorgni. ic Ánægjulegur þáttur í útvarpinu. ir Ungt fólk talar um bókmenntir. piiiiiiimiiiiiimiiimiiiiimmiiiitiiimiitiimiimtiitmmimiiiiiiimmmiitiiimiiimimimitmiiiiiiiiiiiiiiiii»(rffiiH staklega þakka fyrir þann hluta þáttarins. — En einn þáttur, sem ég hlústaði á, gerði mér glatt í sinni og jók mér bjartsýni. Það var bókmenntaþáttur á sunnudag- inn 29. Vilhjálmur Þ- Glslason spurði níu nemendur í Mennta- skóla og Verzlunarskóla um það, hvað þeir hefðu lesið um jólin. Allir höfðu þeir valið sér til lest urs bækur, sem tvimælalaust eru meðal þess bezta, sem völ hefur verið á á bókamarkaðinum. OG ÞAÐ VAR EKKI eingöngu það sem þetta unga fólk liafði val- l ________________________________ ið sér til lesturs á jólum, sem. vakti ánægju mína heldur erindin sem það flutti um bækurnar. Það var heiðríkja yfir þessum erindum þess, og ég verð að segja það, að ég efast um, að bókmenntafræð- ingar og ritdómarar, sem hæst ber í bókmenntaheiminum, hefðu gert betri grcin fyrir efnisvalinu en þetta unga fólk. ÞETTA VAR ÁNÆGJULEGT Það eykur trú manns á framtíðina á afl og andlegan styrk þess fólks sem á að taka við öllum okkar störfum á næstu áratugum. Ég þakka sannarlega fyrir mig. Vinnutími BÆKUR... Framh. af bls 7 niðurstöðu eins og afgreiðslu lians á járnbrautarmálinu, sem hlýtur að teljast sleggjudómur, en þvílíkir smámunir skipta litlu, þegar annars vegar er verk þannlg unnið, að heita má stórviðburður. Velþóknun Hagalíns á Benedikt Sveinssyni dylst vissulega hvergi, en hún verður aldrei að öfgum, myndin er í senn dregin af festu og varfærni og stækkar að rétt- um rökum, unz hún lætur lesand- ann undrast og hrífast. Ég efa ekki, að Benedikt eigi þessi eftir- mæli skilið, en einmitt þess vegna er afrek Hagalíns frægur sigur. Ritgerðin mætti verða ærið íhug- unarefni þeim kristjánum og sig- urðum, sem hæða með oflofi ágæta menn og unna ímynduðum eða raunverulegum andstæðingum aldrei sannmælis. Séra Jón Guðnason hefði þurft á stöku stað að leiðrétta. augljós pennaglöp og útskýra nánar örfá atriði lesendum til aukins fróð- leiks, en hvað um það: Betri bók verður naumast til mcð skærum. Og fögur er liún af hendi Bók- fellsútgáfunnar og Odda — sann- kölluð prýði sérhverjum skáp að lestri loknum. Ilelgi Sæmundsson. Framh. af 5. síða meirihluti hefur trúað fyrir um- boði sínu. Sameinumst um að gera þeim, sem örðugast eiga, lífið léttara, og búa þjóðinni allri hagsæld og frið í okkar ástkæra ! en erfíða landi- | Fyrr í ávarpi sínu minntist Bjarni Ólafs Thors og óskaði hon- íum góðs bata. Hann nefndi frið- ' vænlegri horfur heimsmála og vaxandi vinfengi íslendinga við allar þjóðir. Taldi hann von um, að eina deilumáli okkar við frænd þjóðirnar á Norðurlöndum, hand- ritamálinu, mundi endanlega ljúka á hinu nýja ári. Þá kom ráðherrann að efna- hagsmálum og vitnaði í hinn mikla hagfræðing Keynea: „Lát- um okkur ekki ofmeta þýðingu efnahagsvandans né vegna ætl- aðrár nauðsynjar hans fórna öðr- um efnum., sem hafa meira og var anlegra gildi.“ Bjarni kvaðst raun ar ekki muna það ár, þegar efna- hagsmálin ekki vöfðust mest fyrir þjóðinni. Of snemma ^'ramhald at SLYS.... leikir haldnir á amk. fjórum stöð- um, en alit fór friðsamlega fram, og er ekki vitað til þess, að nein slys liafi orðið á gamlárskvöld og nýársnótt, enda rólegt kvöld hjá lögreglunni. Einni stærstu brenn- unni var valinn - taður í grennd við klappirnar ofan Helgamagrastræti en svo illa tókst til, að strákar, sem ekki höfðu haft neinn veg og vanda að undirbúningi hennar, — tóku sig til og kveiktu í henni degi of snemma, svo að hún brann svo að segja upp. Urðu þetta hin mestu vonbrigði þeim drengjum, sem að brennunni stóðu, en á gaml árskvöld brugðu þeir skjótt við og hlóðu annan köst, sem þeir kveiktu í á tilætluðum tíma. maí. 53 fórust með báti sem sökb á La Plata, i Argentínu í júlí- 49 fórust með ferju í Kóreu i októ- ber. Um áramótin hvarf spánskt skip á leið frá Boston til Ciruna með 36 mönnum. NÁMASLYS: 29 fórust í náma slysinu í Langede, en 49 höfðu ver ið taldir af. Stærsta námaslysið á. árinu varð á japönsku eyjunni Kyushu í nóvember en þar fórust við gassprengingu í námu nálægt Búdapest. JÁRBRAUTASLYS: Stærsta járnbrautaslys varð í Japan í nóv- ember um svipað leyti og náma- slysið. Þrjár lestir rákust á suð- vestur af Tokyo og 164 fórust. Af öðrum stórum járnbrautaslysum. má nefna járnbrautaárekstur í Bi- har, í Indlandi í janúar cn þar fór- ust 42, og járnbrautaslys í Ui uguay í ágúst þar sem 40 fórust- AF ÝMSUM slysum má nefna: Klausturskóli í Equador hrundi í febrúar, yfir 100 skólastúikur biðu bana. Moska í Mið-Indlandi hrundi í ágúst, 110 fórust. Ferju hvolfdi í sama mánuði í Okinawa, í Japan 100 fórust. UMSÓKNIR Framhald af 16. síðu. tekningalaust upp á lán að upphæð 150 þúsund krónur. Sé reiknað með 400 umsóknum, sem vart murl ofreiknað, hcfur í desember mán- uði einum verið sótt um lán hjá næðismálastjórninni, að upphæð ■30 milljónir króna- Framhald af 1. síðu slysið var þegar kafbáturinn „Thr csher“ sökk undan austurströnd Bandaríkjanna í apríl, 129 fórust. 195 fórust í bát sem sökk á Níl í Ensk knattspyrna Frijmh. af 11. síðu ! Huddersfield 3 - Newcastel 0 j Lcyton 0 - Grimsby 0 j Plymouth 1 - Southampton 1 Portsmouth 3 - Bury 3 Preston 4 - Cardiff 0 > Rotherham 1 - Northampton 0 Scunthorpe 2 - Manch. City 4 Sunderland 2 - -Leeds 0 Swindon 2 - Norwich 2 Efstu liðin: Lceds 25 14 2 42-19-37 Sunderland 26 15 6 5 45-28 37 Preston 25-14 8 3 52-33 35 Charlton 25-14 5 6 52-44 33 2 3. janúar 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.