Alþýðublaðið - 03.03.1964, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 03.03.1964, Qupperneq 7
K3ÍLAR öldunga æíti að tajca úr umferð áður en hrumleiki þeirra verður öðrum að tjóni. Ekki að lóta sömu reglur gilda um gamla bíla og nýja, eins og nú er gert. Auðvitað er nóg að koma með nýjan bíl til skoðunar einu sinni á ári, fyrstu fjögur til fimm árin, en eftir það ætti skoðun að fara fram tvisvar ef ekki þrisvar á ári. Flestir reyna að sleppa sem .billegast’ í gegn um skoðunina og tjasla saman eftir beztu getu -því sem bilað er, áður en farið er með bílinn í skoðun. Sleppi hann í gegn er síðan allt látið sitja á hakanum og danka þar til að skoðun kemur aftur eftir eitt ár. Bifreiðaeftirlitsmenn hafa oft sætt harðri gagnrýni fyrir störf sín, og skal ekki lagður dómur á réttmæti þeirra ásakana liér, en víst er þó, að ýmsir úrslcurðir þeirra virðast á stundum harla einkennilegir og tilviljunum háð- ir. Kunna þar nokkru um að valda slæm .starfsskilyrði. Ekki væri úr vegi að athuga hvað Danir segja um þau vanda- mál scm gömlu bílarnir skapa. í Danmörku eru nú 60 þúsund bílar, sem framleiddír voru fyrir stríð. Allir eru þessir bílar eldri en 25 ára. Þeir eru flestir taldir lífshættulégir og ætti fyrir löngu að vera húið að selja þá i brota- járn, að því er Politiken segir. Meðalaldur danskra bíla er 14 ár (vafalaust mun lægri hér á landi) en með tilliti til öryggis og sparn-. aðar ætti meðalaldurinn að vera 10 ár. Það eru bætt lífskjör, sem valda Því að svona mikið af gömlum bilum er enn í umferð í Danmörku þótt undarlegt sé. Stöðugt bætast nýir bíleigendur við í tekjulægri stéttunum, eftir því sem almenn velmegun vex og laun hækka. — Þeir, scm minnst efnin hafa eiga að sjálfsögðu fæstra kosta völ, og eignast því oft á tíðum elztu og verstu bílana. Sálfræðjngum Qg bílasölum ber fullkomlega saman um, að menn, sem eru að kaupa notaðan bíl í fyrsta skipti, hegði sér yfirleitú allir eins: Þeir eru utan við sig af ánægju, og einstaklega bjart- sýnir á lífið og tilveruna. Þeir gæta sín ekki á brellum bílasala og sjá ekki galla á bílnum sem þi> ættu að blasa við augum. Danir segja, að tíu ára gamall bíll geti ekki veríð meira en 12 þús. króna virði, en hægt sé aðT fá 24-36 þús. krónur fyrir hann, éf skipti eiga sér stað. Mjög ei- mikið um það, sem ekki þekkist hér á íslandi ennþá, að bilasalar taka gamlan bíl upp í verð nýs. í Politiken er lögð áherzla á, aS nauðsyn beri til að setja strang- ari skoðunarreglur og fjölga skoðimarmönnum, ef ekki eigi illa að fara. Að skaðlausu mætti íslenzka bifreiðaeftirlitið og ganga nokkru harðar fram í að taka hættulega bílskrjóða úr umferð, sem aðeinu stofna lífi vegfarenda í hættu, ea eru einskis virði, þegar á allfc er litið. (Ekill. * #> Vann Monte fí Carlo-keppnina. Þróunin stefnir nú í þá átt, að æ fleiri bílar verði búnir sjálf- skiptingu, að því er BMC segir. ■Eftirspurn eftir sjálfskiptum bíl- um vex stöðugt, bersýnilega af þeirri ástæðu, að umferð í flest- 'Um borgum fer nú hraðvaxandi og menn verða langþreyttir á því í umferðarflækjum að vera , alltaf með annan fótinn á kúplingunni og aðra hendina á girstönginni. Þá stefnir þróunin og í þá átt, að búa 4 manna bíla sjálfskipting- um, en ekki er ýkja langt siðan að einu sjólfskiptu bílarnir voru stórir amerískir íólksbílar vonju- lega fyrir sex farþega. I fyrra var það Saab, sem fyrstur kom að marki í Monte Carlo kappakstrin- ^ um, en í ár var það Morris Cooper. Hvað er þessum 2 bílum sameiginlegt? Jú, þeir eru báðir með framhjóla- drifi. J ár voru Saab bílar í þriðja og fimmta sæti ;og Morris Cooper í 7. sæti. . Myndia er af sigurvegaran um í Monte Carlo, en hann Sheitir Paddy Mopkirk. Har.n thefur oft áður tekið þátt í þessari keppni og oft verið meðal þeirra fyrstu, en al- drei þó sigurvegari fyrr en njú. Hopkirk er þrítugur að aldri og rekur ökuskóla og mótorstillingaverkstæði, — auk þess, sem hann leggur stund á nám. í verkfræði. Það væri svo sem nógu fróð- legt að vita, hver væri meðalaldur bíla á íslandi um þessar mund- ir, og væntanlega verður hægt að reikna það út, þegar bifreiða- skýrsla Vegamálastjórnarinnar kemur út innan skamms. Hér er vafalaust mikið af bíl- um, sem fyrir löngu ætti að vera búið að höggva i brotajárn, en enn eru í umferð og skapa þar hættur og eru slysavaldar. Þessa bíla á fimmtíu árum í ár eru liðin 50 ár síðan fyrsti Dodge bíllinn var framleiddur. Síðan árið 1914 hafa alls verið framleiddir 9,5 milljón Dodge- fólksbílar (og 3,2 milljónir Dodge vörubílar) eða samtals 12,7 millj- ónir bíla. Það voru bræður, Horace og Jolin Dodge, sem stofnuðu verk- smiðjuna árið 1914 og þá um haustið var fyrsti bíllinn fram- leiddur. Þessi bíll var hinn frægi Dodge 4 Touring, sem varð gríð- ar vinsæll í Bandaríkjunum og 79 MILLJÓN BÍLAR Á Vesturlöndum voru á síðast- liðnu ári framleiddir næstum 19 milljónir bíla síðastliðið ár, þar af tæplega helmingur, eða 9 086- 000 í Bandaríkjunum. Nákvæmlega var talan 18970- 000 og eru þá taldir bæði fólks- bílar og vörubílar, er þetta rúm- lega einni milljón meira en árið áður. Mest var framleiðsluaukaiingin hjá bílaverksmiðjum í Evrópu, og er þar hlutur V-Þýzlcalands stærst ur, en þar voru framleiddir 2,- 673 300 bílar. Bretar eru nú í 3. sæti á eftir Bandaríkjunum og Vestur-Þjóðverjum hvað bílafram leiðslu snertir. SIMCA verksmiðjurnar frönsku voru meðal þeirra, sem settu fram leiðslumet á síðastliðnu ári, en þá framleiddu verksmiðjurnar alls 273.617 bíla. Útflutningurinn jókst mjög, fluttir voru út samtals 126180 bílar, eða 41,2% af fram- leiðslunni, og er það mun meira en árið áður. Vinsælasti bi'Uinn frá Simca verksmiðjunum og sá sem mest var flutt út af var Simca 1000. utan þeirra. Þess má geta, að einn af fyrstu bílunum, sem framleidd- ir voru hjá þeim Dodge bræðr- um, var seldur til Noregs, nánar tiltekið til Bergen. Um langt árahil var það svo, að þessir bílar voru framleiddir und- ir merkinu Dodge Brothers (Dod- ge bræður). Nafnið var meira að segja notað áfram eftir að bræð- urnir tveir fórust í bát á Michigan vatni. Þá tóku Graham bræður við stjórn fyrirtækisins og fram- leiddu þeir fyrsta vörubílinn, sem þar var framleiddur. Á þriðja ára- tugnum voru verksmiðjurnar seld ar Chrysler. Tvö til þrjú síðustu árin hafa Dodge verksmiðjurnar sett fjöl- mörg framleiðslumet. Dodge hefur jafnan verið held- ur vinsæll hér á landi, en hefur undanfarin ár, eins og aðrir ame- rískir bílar, orðið að láta nokkuð undan síga fyrir harðri samkeppni Evrópu bíla, en nú virðast banda- rískir bílar aftur njóta hér auk- inna vinsælda og má kannski ckki sízt marka það af bílakaup- um atvinnubílstjóra. DANSKIR BREYTTU MORRIS1000 Morris 1000 Super er einn þeirra bíla, sem hefur verið óbreyttur í útliti í allmörg ár. Nokkrir bílar munu vera til af þessari gerð hér á Jandi, og í Danmörku eru um 25 þús. slíkir bílar. í Berlingske Tidende var fyrir nokkru skrifað um þennan bíl á bílasíðu blaðsins og einkum bent á þrjá galla: Fyrirkomulagið á rúðuþurrkunum, miðstöðina og að ekki skyldi hægt að læsa báð- um dyrum með lykli. Á 1964 mód- elinu hefur verið bætt úr þessum göllum og eru bílasíðuskrifarar Berlings kampakátir yfir að hafa komið þessu í kring. — Ég: veit nú ekki hvað ég á að segja um þig, en bílinn lízt mér ljómandi vel á. ALÞÝÐUBLAÐfÐ — 3. marz 1964 J

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.