Alþýðublaðið - 03.03.1964, Síða 13
Og á
aðelns I dag
V erkfræðingastöður
Verkfræðingastöður eru lausar til umsóknar á Vita-
og hafnarmálaskrifstofunni.
Laun samkvæmt kjarakerfi opinberra starfsmanna.
Umsóknir sendist mér sem gef nánari upplýsingar um
stöðurnar, hið fyrsta.
Vita- og hafnarmálastjórinn,
Aðalsteinn Júlíusson.
SÆMGUR
REST BEZT-koddar
Endumýjum gömiu sængumar
eigum dún- og fiðurheld ver.
Seljum æðardúns- og gæsadúm
sængur — og kodda af ýmsu®
stærðum.
Dún og fiðurhreinsunin
Vatnsstíg 3. Sími 1874*.
Eignizt og lesið bækur, sem máli skipta.
f jallar um dýpstu og imiilegustu samskipti karls og konu þ. á m.
um ástina, kynlífið, frjóvgun, gétnaðarvamir, barnauppeldi, hjóna
lífið og hamingjuna.
Höfundar: Hannes Jónsson, félagsfræðingur; Pétur H. J. Jakobs-
son, forstöðumaður fæðingardeildar Landspítalans; Sigurjón
Björnsson, sálfræðingur; dr. Þórður Eyjólfsson, hæstaréttardóm-
ari; dr. Þórir Kr. Þórðarson, prófessor.
Höfundarnir tryggja gæðin, efnið ánægjuna.
Þessi bók á erindi til allra kynþroska karla og kvenna.
FORUSTUMENN FÉLAGA ATHUGIÐ!
eftir Hannes Jónsson félagsfræðing.
er úmals handbók fyrir alla þá, sem taka vilja ábyrgan þátt í
félagsstarfi og ná árangri í fundarstörfum og mælsku.
Bók þessi cr algjörlega hlutlaus og fjallar um fundarstjórn,
fundarsköp, og allar tegimdir félags- og fundarstarfa. í henni
er líka rökfræðiágrip, fróðlegur kafli um áróður og margar
teikningar af' fyrikomulagi í fundarsal. Ætla má, að bók þessi
geti orðið félagsstjóraum, fastanefndum og áhugasömum félags-
mönnum aö miklu gagni. Ef keypt eru minnst 5 eintök gegn stað-
greiðslu fá félög bókina með afslætti. Einstaklingar, sem eignast
vilja þessa hagnýtu bók, geta pantaö hana beint frá útgefanda
eða fengið hana hjá flestum bóksölum.
Munið, að leikni í félagsstörfum og mælsku getur ráðið miklu
um þjóðfélagslegan frama einstaklingsins og framvindu þjóð-
íélagsmála.
Félagsmálastofnunin
Pósthólf 31 — Reykjavík — Sími 40624.
PÖNTUNARSEÐILL (Póstsent um land allt).
Sendi hér með kr.......til greiðslu eftirtalinni bókapötun,
sem óskast póstlögð strax. (Merkið við það, sem við á).
— Fjölskyldan og hjónabandið. Verð kr. 150,00.
■— Félagsstörf og mælska. Verð kr. 150,00.
Nafn: ...............................................
Heimili:
Framh. af 5. síðu
og aðallega ætluð sem söng-
æfingasalur. Hún er jafnframt
búin sém samkomusalur, með
parket á gólfi, borðum og stól-
um fyrir um 60—70 manns,
skenki, fatahengi og salerni.
Efri hæðin, sem er um 85 fer-
metrar, er búin all tórri setu-
stofu, eldhúsi, fatahengi og sal-
erni. Hljóðfæri eru á báðum
hæðum. Er félagsheimilið allt
h,ð smekklegasta.
Nær allri vinnu við það var
stjórnað af fagmönnum innan
kórsins og kórmenn sjálfir
hafa lagt mikla vinnu í að full
gera það.
í stjórn Karlakórs Reykja-
víkur eru: Ragnar IngólLson,
formaður; Helgi Kristjánsson,
varaformaður; Höskuldur Jóns
son, gjaldkeri; Margeir Jó-
hannsson, ritari og Andreas
Bergmann, meðstjórnandi.
NÝJAR
!•'
Framh. úr opnu
þær sjö árum seinna meðal hinna
innfæddu. Honum tókst að kom-
ast yfir þær og hafði þær með
sér til Parísar, þar sem hann
dvaldist um skeið. Þegar hann
eitt sinn komst í peningaþröng,
reyndi hann að selja þær ásamt
nokkrum öðrum myndum, sem
hann átti í fórum sínum.
Hann fór áraiígurslaust tii
Bernheim og annarra listaverka-
sala í París og til Dorens í Am-
sterdam. Listasafnið í Prag vildi
heldur ekki líta við þessum verk
um Gauguins, þegar Stefanik
snéri heim 1911. Fyrst eftir lát
stjörnufræðingsins höfnuðu
myndimar í listasafninu í Prag
og frá !l951 voru þær varðveitt-
ar í jsvartlistarsafninu þar.
Eitt ber þó að hafa í huga. Tré
skurðarmyndirnar sem Stefanik
átti í fórum sínum voru í mjög
slæmu ásigkomulagi og það varð
að hreinsa þær mjög varfærnis
lega og lagfæra þær ef unnt
átti að verða að taka afþrykk af
þeim. Þetta var ekki reynt fyrr
en 1961. Tilraunin heppnaðist
mjög vel, en þó er fullyrt að ekki
sé hægt að taka afþrykk af mynd
unum Öðru sinni.
Nýlega er komin út í London
á forlagi Paul Hamlyn bók, sem
nefnist „Gauguins Woodcuts",
Þar birtir tékkneski listfræðing-
urinn dr. Libuse Sykorová, fyrsta
sinni hinar nýfundnu tréskurð-
armyndir. Hér er um að ræða
þrjá tréstokka og þar af eru skor
ið beggja megin á þrjá þeirra.
Allar þessar myndir nema tvær
hefur Gauguin gert í annarri
Suðurhafseyjaför sinni.
LÖGT AKSURSKURÐUR
Samkvæmt kröfu bæjarritarans í Kópavogi vegna bæjar-
sjóðs Kópavogs úrskurðast hér með lögtak fyrir ógreidd-
um fasteignagjöldum ársins 1964 til bæjarsjóðs Kópavogs
kaupstaðar, en gjöld .þessi féllu í gjalddaga 15. janúar
1964 samkvæmt 4. gr. laga nr. 69/1962.
Lögtök verða framkvæmd fyrir gjöldum þessum að átta
dögum liðnum frá birtingu úrskurðar þessa, verði eigi
gerð skil fyrir þann tímá.
Bæjarfógetinn í Kópavogi
26. febrúar 1964.
Sigurgeir Jónsson, (sign).
ABalfundur
Aðalfundur Tollvörugeymslunnar h.f.
verður haldinn miðvikudaginn 15. apríl n.k. kl. 8,30 e. h.
Tillögur, sem bera á upp á fundinum, þurfa að berast skrif-
stofu vorri sem fyrst, til þess að hægt sé að geta þeirra
í fundarboði.
Stjórnin.
BÓKARI - GJALDKERI
Staða bókara, sem einnig annist gjaldkerastörf við sýslu-
mannsembættið í Húnavatnssýslu er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi ríkisins.
Umsóknir sendist fyrir 1. apríl n.k. sýslumanni Húnavatns
sýslu, sem einnig veitir nánari upplýsingar.
Skrifstofu Húnavatnssýslu 29./2 1964.
Jón ísbergr.
Hjartkær móðir okkar og tengdamóðir
Jónína Ingibjörg Jónsdóttir
andaðist að heimili sínu, Hringbraut 39 aðfaranótt mánudagsins 2.
þ. m.
Fyrir hönd barna og tengdabarna
Ögmundur Jónsson.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 3. marz 1964 |,3