Alþýðublaðið - 02.04.1964, Qupperneq 3
Hefur hægri
reisn
' Rio de Janelro, 1. apríl I
(NTB - AFP)
ORÐRÓMUR gekk urn það í Rio
de Janeiro í kvöld að1 Goulart
landsstjóri hefði gefizt upp fyrir
uppreisnarmönnunum og lagt nið-
ur völd. Var því einnig haldið
fram, að hann hefði yfirgefið
landið með flugvél opr væri ókunn
ugt um ákvörðunarstað hennar. í
för með honum áttu að vera nokkr-
ir ráðherrar, en því var einnig
haldið fram að kona hans væri far
in til Spánar ásamt tveim börnum
þeirra hjóna. Ekki hefur tekizt að
fá orðróminn staðfestan.
Uppreisnarhersveitum tókst fyrr
í kvöld að ná á sitt vald bardaga-
laust, virkinu Copacabana, sem
liggur við mynni Rio de Janeiro-
flóans. Ekki benda líkur til þess að
hersveitir ríkisstjórnarinnar hafi
veitt neina mótsnyrnu. Fréttir hafa
hins vegar borizt um vopnuð átök
milli stjórnarhersins og uppreisn-
arhersveita í Aifonso Arinas í fylk
inu Minais Gerais en ekki er vit- .
að livort þau hafa kostað manns
iíf. Fréttaritarar í Rio de Janeiro
telja að ríkisstjórnin og fylkis-
stjórar þeir, er fyrir uppreisninni
standa, hafi álíka mikinn lier að
baki sér.
Sao Paulo er herstjórnarstöð
hinnar hægrisinnuðu uppreisnar
gegn forsetanum Joao Gaulart. Út-
varpsstöðvar bar léku hertónlist í
allan dag og útvörpuðu áskorunum
til manna um að beir gengju í lið
með uppreisnarmönnum. Því er
lialdið fram að 105. fótgönguliðs-
herfylkið og Sampai-liersveitin,
en þær voru sendar frá Rio til
Petropolis til að berja niður upp-
reisnina, hafi gengið í lið með upp
reisnarmönnum. Þó sögðu tals-
menn stjórnarinnar í Rio, að frétt
þessi væri ekki rétt. Á sama tíma
sögðu útvarpsstöðvar í Rio og höf-
uðborginni Brasilíu, að uppreisn-
in væri óðs manns æði og skjótt
myndi röð og regla komast á. —
Verkalýðshr eyf ingin
forsetann, lýsti yfir allsherjarverk j
falli og var það framkvæmt a.
m. k. í Rio de Janeiro. Dómsmála-
ráðherrann Jurema lætur útvarpa
látlaust áskorunum um að menn
styðji stjórnina.
Komið er nú í ljós, að forsetinn
hefur yfirgefið höll sína, og var
ekki vitað seint í kvöld livar hann
er niðurkominn. Útvarpsstöð í
hafnarborginni Recife liefur skýrt
frá því að stjórnarherinn sé geng-
inn í lið með uppreisnarmönnum
og hafi umkringt bústað jafnaðar
mannsins Manuel Arrais sem er
fylkisstjóri í Pernambuco.
Ekki hrifnir
í Sao Paulo og kveðst hann hafa
í sínu liði sjö fylkisstjóra og fylki
þeirra. Er þar um að ræða fylkin
Matto Grosso, Parana, Santa Ca-
terina, Rio Grande do Sul, Gioas,
Minas Gerais og Sao Paulo. —
Landsstjómin í Gunabara-fylki, en
þar er Rio de Janeiro, hefur látið |
vígbúa höll sína, en hún er um i
það bil 200 metrum frá höll Gou-
lart forseta. Hin stutta fjarlægð
milli þeirra er sögð dæmigjörð
fyrir ástandið í landinu í dag, því
að svo stutt sé milli friðar og borg-
arastyrjaldar.
Síðustu fréttir frá Brasilíu
hermdu í gærkvöldi að de Barros
hefði skýrt frá því að tveir af fjór-
um herjum landsins væru í liði
uppreisnarmanna. Þá nytu upp-
reisnarmenn stuðnings innan sjó-
hersins og ennfremur hefðu þeir
60% flughersins með sér. Útvarp-
ið í Rio sagði hins vegar í kvöld,
að uppreisninni væri ekki aðeins
beint gegn forsetanum heldur líka
. ríkisstjórninni í heild. Væri mark-
! miðið að kveða niður framfara-
stefnu stjórnarinnar og vaéri
þetta síðasta örvæntingarfulla til-
raunin til að steypa lýðræðinu í
landinu. — Útvarpið las einnig
upp áskoranir frá verkalýðsfélög-
um um allt landið er lýstu hollustu
við ríkisstjórnina. Alþýðusamband
Brasilíu, sem kommúnistar stjóma,
hefur hert á áskorun sinni um alls
herjarverkfall í landinu.
Framhald af 16. síðu.
lengi og hann vildi. Þeir gætu þá
lokað, sem ekki nenna að standa
í þessu, en allir hefðu sömu að
stöðu, ef þeir mættu ákveða sjálf
ir, hve lengi þeir hafa opið.
— Hvernig verður skipulagið í
heild á virkum dögum?
— Það er vist ætlunin að skipta
bænum niður i hverfi, og síðan á
hver og einn matvörubúðareigandi
að hafa rétt til að hafa sína búð,
eina í hverfinu, opna fram til kl.
10 einhvern ákveðinn tíma, en þá
tekur önnur við og síðan koll af
kolli, en mér er ekkl alveg Ijóst,
hvernig þessi hverfaskipting og
öll framkvæmd hennar á að verða.
Það verður áreiðanlega erfitt að
koma öllu heim og saman.
.— Hvemig verður um helgar?
— Mér skilst, að þá verði bara
opið til kl. 1 á laugardögum og síð-
an hvergi á sunnudögum, nema í
söluturnum, sem ekki mega selja
nema mjög fáa vöruflokka, eins og
blöð, sælgæti, gosdrykki og tóbak,
en þeir mega líka vera opnir til
kl. 23.30 á virkum dögum og um
helgar, eins og verið hefur. En það
verður færra hægt að fá þar en
áður, svo að ég get ekki séð, að í
þessu felist bætt þjónusta við
neytendur.
— Verður þú með turn?
— Já, ég er nýbúinn að láta inn
rétta hér afhýsi, eins og þið sjáið,
en það hefur ekki kostað svo lítið
að láta gera þær innréttingar til
þess að geta selt út um lúgu.
— Og ert þú búinn að sækja um
leyfi til að taka þátt í verzluninni
samkvæmt skiptifyrirkomulaginu?
— Já, það var það skársta úr því
sem komið er.
þeir, sem til okkar hafa leitað, að
fá síma? Spyr sá, sem ekki veit.
Ég efast um, að fólk sætti sig við
þetta. Og hvaða áhrif hefur það -á
umferðina og umferðaröryggið, ef
biðraðir myndast framan við higu-
opið langt út á götu? Og hvar á
fólk að fleygja ruslinu? Hvar eru
körfurnar?
Síðast heimsóttum við Viggó M.
Sigurðsson í Hliðakjöri.
— Hvemig lízt þér á að eiga að
fara að loka?
— Mjög illa — frá mínum bæj-
ardyrum séð. Við vitum, að þessi
kvöldþjónusta hefur valdið mikl-
um deilum upp á síðkastið, og und
irrótin er misrétti, sem leiddi af
sér óánægju og öfund. Stór hluti
matvörukaupmanna vildi ekki una
þessu og heimtaði einhverjar
breytingar. Vegna þess ofurkapps,
sem þeir lögðu á að fá þessum
breytingum framgengt, hafa þeir
ekki gætt þess, sem skyldi, í hverju
þær ættu að vera fólgnar.
— Hvaða lausn teldir þú hugs-
anlega?
— Ein helztu rök formanns
kaupmannasamtakanna í málflutn
ingi hans voru þau, að gataverzl-
unin væri blettur á bæjarfélag-
inu. Mín skoðun liefur lengi ver-
ið sú, að hægt væri að bæta úr
þessu með því að leyfa öllum að
liafa opið til kl. 23.30, en hækka
verðið eftir venjulegan verzlunar-
tíma um nokkur prósent, kannski
10, til að varna því, að fólk vendi
sig á að verzla að óþörfu eftir
venjulegan verzlunartíma, sem
lýkur kl. 6.
Krústjov hæðir
byltingastagl
Fyrr í dag var sagt að byltingin
hefði allt til þess farið friðsam-
lega fram, hefði ekki einu ein-
asta skoti verið hleypt af, en hins
vegar stóðu hersveitir uppreisnar
manna og stjórnarhersins alvopn-
aðar andspænis liver annarri. For-
ystu fyrir uppreisnarmönnum lief-
ur Adliemar de Barros fylkisstjóri
Budapest 1. apríl (NTB-AFP).
NIKITA Krústjov, forsætisráð-
herra Sovétríkjanna, sem þessa
dagana cr í opinberri heimsókn í
Ungverjalandi, sagði í dag, að
verkamennirnir liefðu sannarlega
, klórað sér í höfðinu af undrun, ef
' Þeir hefðu heyrt Lenin sáluga
nota við þá sömu orö og orðatil-
tæki og kínverskir kommúnistar
nota í dag. — Er þetta í fyrsta
sinni í hinni opinberu heimsókn
að Krústjov víkur að ágreiningi
Kínverja og Rússa. Gerir hann
það í framhaldi af hinni ofsa-
fengnu árás Kínverja á hann á
mánudaginn.
Krústjov flutti ræðu sína á
fundi 5 þús. verkamanna í ljósa-
peruverksmiðju í Búdapest. Forð-
aðist ráðherrann að minnast á
Kína eða Kínverja en vísaði til
manna er kalla sig marx-leninista.
„Fyrir þessum mönnum er aðeins
eitt eftirsóknarvert og það er bylt
ingin. En livers konar bylting er
það sem við tölum um? Hvernig
hefðum við getað beðið verka-
mennina og bændurna að steypa
ríkisstjórn auðvaldsseggjanna og
eignamannanna, ef við hefðum
elcki lofað þeim einhverju meiru
en byltingunni einni saman?”
sagði Krústjov, sém margsinnis
varð að gera hlé á ræðu sinni
vegna fagnaðarláta. „Slík bylting
myndi hafa litla þýðingu fyrir
framtíðina”, sagði hann ennfrem-
ur. „Ef fólkið getur ekki fengið
óskir sínar uppfylltar eftir að arð
ránsstéttinni hefur verið steypt
af stóli, þá hefur það erfiðað til
lítils. Hið þýðingarmesta er að út-
vega meiri mat, meiri kjötkássu,
fleiri skóla, betri íbúðir og meiri
ballettdans. Hve miklu meir eykur
þetta ekki á gildi mannlifsins? —
Þessir lilutir eru þess virði að fyr-
ir þeim sé barizt og fyrir þá lifað”,
sagði Krústjov.
Hopferð
Framhald af síðu 16.
nokkru framlenging af tveggja
vikna ferðinni og verður farið til
Vancouver og nokkrum dögum
eytt á Kyrraliafsströndinni og m.a.
komið til Seattle og Salt Lake City.
Þátttaka í þessari fei'ð kostar
28.700 krónur og er matur ekki
innifalinn.
Næst héldum við niður eftir
Snorrabraut og liittum einn af
eigendum Örnólfs, Sigurjón Sig-
urðsson.
— Hvemig lítur þetta út?
— Það er ekki fullráðið enn,
hvort lokað verður hjá okkur í
kvöld eða ekki , af því að regl-
urnar um hverfaskiptinguna eru
ekki fullmótaðar.
Ætli það verði ekki bara opið?
— Er það á valdi kaupmanna-
samtakanna?
— Og borgarstjórnar.
— Hvenær færðu að vita fyrir
vist, hvenær þú átt að loka?
— Ég fæ upplýsingar hjá full-
trúa lögreglustjóra á morgun. —
Hann var ekki við í dag.
— Hver heldurðu, að tilgangur-
inn sé með reglugerðinni?
— Hún er beinlínis samin í þeim
i tilgangi að gera fólki erfiðara fyr-
ir um að ná í nauðsynjavörur. Það
er það, sem verið er að gera. Og
mér þykir það satt að segja mjög
óeðlilegt. Aftur á móti er verið að
létta undir með þeim, sem selja
tóbak og aðrar nautnavörur.
— Hvernig finnst þér, að regl-
urnar ættu að vera?
— Þær ættu að vera þannig, að
leyfilegt væri að opna sölubúðir kl.
6 á morgnana og loka þeim t. d.
kl. 23.30 á kvöldin. Og svo ætti
það að vera á valdi hvers og eins,
hve lengi hann vill hafa opið.
— Hafið þið í liyggju að grípa til
einhverra gagnráðstafana?
— Það er fólksins að fá þessu
breytt, og það á enn eftir að segja
sitt álit á þessu. Og það er margt
að athuga í því sambandi. Til dæm
is veit ég ekki til, að það sé leyfi-
legt að neyta gosdrykkja á gang-
stéttinni. Og hvar eiga nú allir
—, Hvað viltu segja um aðstöðu
neytenda?
— Hún stórversnar. Hér í þessu
hverfi eru t. d. verzlanirnar Krón-
an, Sunnubúðin og verzlun Árna
Pálssonar. Eftir að reelugerðin
gengur í gildi verður ekki nema
ein beirra opin í einu einhvern á-
kveðinn tíma. Leið neytandans
lengist að heiman og í búðina,
liann þarf sifellt að vera að leita
sér upplýsinga um það og helzt
læra utan að, hvaða búð er opin
þessa stundina og hvaða búð hina,
auk þess, sem þetta nýja fyrir-
komulag verður sennilega dýrara
og kemur fram í hækkuðu vöru-
verði.
— Hefur því ekki verið haldið
fram, að ekki væri hægt að hafa
allar búðirnar opnar í einu vegna
þess, að þá yrði of litið verzlað í
hverjum stað, og þær bæru sig
ekki?
— Jú, en ef við tökum dæmí
héðan úr hlíðunum, þá liafa kvöld
sölurnar vcrið 6 á móti 7 matvöru-
búðum alls, svo að hér hefði ekki
nema ein þurft að bætast við. Þó
ber ekki á öðru en þessar 6 hafi
borið sig. Og svona er það víðar.
— Hvað hafið þið liugsað ykkur
að gera?
— Við getum iítið gert. Auðvit-
að getum við tekið okkur saman,
bað er allstór hópur, sem hefur
fullan hug á því, og vera má, að
af bví verði, — og skrifað borgar-
ráði og boðið upp á að veita allir
þessa þjónustu til kl. 22 í staðinn
fyrir að taka upp skiptifyrirkomu-
lagið.
— Segðu okkur að lokum: verð-
ur opið hjá þér í kvöld?
— Nei. ég er búinn að tala við
lögreglustjóra. og hann segir, að
mér beri að loka.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 2. apríl 1964 3