Alþýðublaðið - 02.04.1964, Side 4
*MMWWWWWW*WW»WMMWWMMMMM4MWW%WW»Wm»WWWW%»t%%%W*»%»WM» »T"> ' —™,
•s m "---H-* ',M',-' *í
ILUR UM K
00 KIRKJUBYGGINGAR
Rcykjavík, 1. aprlí. — EG.-
MIKLAR umræSur urðu á Al-
þíngi í dag um þingsályk unar-
íillögu, sem Halldór E. Sigurðs
son (F) mæiti fyrir. Tillagan
fjallar um tekjustofna handa
kirkjunni og aðstoð ríkisins við
kirkjubyggingar.' Fyrsti flutn-
ingsm. tillögunnar var Kris.-
ján Torlacius (F), en hann á
nú ekki lengur sæti á þingi.
Margir kvöddu sér hfjóðs til
aö ræða tillöguna. Einar Ol-
geirsson lagði fram breyting-
artillögu á þö lund, að fundnir
yröu tekjustofnar tii að afla
fjár til bygginga barnaheim-
ila, heimila fyrir var.gefin börn
og barnaskóla, sem margir
væru nú .ví eða þrísetnir, ef
svo í Ijós kæmi við rannsókn,
að kirkjur væru líka tvísetn-
ar mætti einnig veita fé til
kirkjubygginga.
Halldór E .Sigurðsson (F)
mælti íyrir tillögunni. Benti
liann á að kirkjan væri elzta
stofnun landsins og færi því
vel á að sýna lienni viðeigandi
sóma. Nú væru hér á landi um
280 kirkjur. 236 ættu söfnuð-
irnir sjátfir, bændakirkjur
væru 26 og 18 væru eign
ríkisins. Lagði hann áherzlu á
að ríkið yrði að styðja kirkju-
toyggingar meir og betur en til
þessa hefði verið gert.
Einar Olgeirsson (K) taldi
ríkið hafa séð mjög sæmilega
fyrir evangeliska lútherska
söfnuðinum á íslandi. Þegar
svona tillögur kæmu fram
þyrfti að athuga vel hvaða á-
byrgðartilfinningu menn hefðu
lil að leysa þann vanda sem nú
væri við að etja. Varpaði hann
fram þeirri spumingu hvort
ekki ætti ýmislegt að ganga
fyrir kirkjubyggingum. Glæsi-
leiki hins ytra ætti ekki að
vera aðalatriði. Frá sjónarmiði
trúarlífs væri æskilegast að
söfuðurnir leggðu fram sem
mest af mörkum sjá’fir. Hér á
landi væri nú gífurleg þörf
sjúkrahúsa, tvöfalt fleiri barna
skóla þyrfti en nú væri, þa
vantaði mjög barnaheimili og
hæli fyrir vangefin böm. Spurði
Einar síðan hvort Jesú frá
Nasaret hefði talið mikilvæg-
ara að byggja kirkjur eða
hjálpa börnunum. Þá kvaðst Ein
ar vilja leiðrétta það að kirkj-
an væri elzta stofnun þjóðar-
innar, það væri Alþingi. Lagði
Einar síðan fram breytingar-
til’ögu þess efnis, að fundnir
yrðu tekjustofnar til bygging-
ar bamaskóla, barnaheimila og
hæla fyrir vangefin börn, en
ef í ljós kæmi við rannsókn að
kirkjur væm tvísetnar eins og
barnaskólarnir skyldi og fé var
Lán fil fisk-
vlnnslustöðva
Halldór E. Sigurðsson (F)
bar fram fyrirspurn í samein-
uðu þingi í dag til fjármála-
ráðherra um skiptingu og láns
kjör þess hluta enska fram-
kvæmdalánsins, sem farið hefði
til fisksverkunarstöðva.
Gunnar Thoroddsen (S) fjár-
málaráðlierra skýrði frá því, að
á árinu 1033 hefðu fiskverkun-
arstöðvar fengið 21 milljón kr.
Skiptist sú upphæð þannig að
til frystihúsanna hefðu farið
16,5 milljónir, til niðursuðu-
iðnaðar 2,8 milljónir, til síldar
söltunarstöðva 1,2 milljónir, til
saltfiskverkunarstöðva 0,5 mi.l
jóni'r. Lais iráðh. síðan lista
yfir þær fiskverkunarstöðvar,
sem lán liefðu fengið. Um láns-
kjörin sagði ráðherrann, að lán
in væru til tíu ára með 7,5%
vöxtum og færu endurgreiðsl-
ur fram tvisvar á ári. Við lán-
töku liefðu lántakendur greitt
1,5% í lántökugjald.
ið til kirkjubygginga.
Halldór E. Sigurðsson (F)
sagði nú Einar hafa hlaupið
til, flutt breyungartillögu um
óskylt efni, liefði því tdlagan
orðið til nokkurs annars ltvaðst
hann ekki ætla í neinaj kapp-
ræður við Einar, og ekki æt a
að deila við hann um trúarskoð-
anir. Benti hann á að kirkjan
liefði átt hér stóre.gnir í jörð-
um og ætti því raunverulega
kröfurétt á ríkið. Kallaði þá
Einar fram í, hvort hann ætti
við kaþólsku kirkjuna, en svar
aði Halldór því engu. Halldór
sagði ennfremur, að ríkið ætti
að styðja allt það sem Einar
Olgeirsson hefði talið upp, og
kirkjuna líka.
Einar O’geirsson (K) sagðist
hafa flutt á þingi fj'rr í vetur
frumvarp til laga um aðs.oð
ríkis n* við barnaheimili, væri
því ekki rétt, að tillaga Hall-
dórs hefði orðið til að ýta við
sér í þc-sum efnum. Sagði Ein-
ar síðan, að um miðbik 16.
aldar hefði kaþólska kirkjan
hér á landi verið svipt miklum
jarðeignum, sem konungur
hefði fengið, spurði hann hvort
Halldór ætti við þessar jarðir,
og fyrir hvers hönd hann gerði
kröfu á hendur ríkinu?
Björn Pálssón (F) kvaðst ekki
ætla að deila um trúmál eða
barnaheimili. Sagði hann það
ekki trygga sannkristni, að
byggja g æsilegar kirkjur.
Benti hann síðan á, að sínum
dómi þyrfti kirkjumálaráð-
herra, að endurskipuleggja
kirkjubyggingar og kennimanna
kerfið. Það gæfi auga leið að
vegna bættra samgangna væri
óþarfi að liafa eins mai’gar
kirkjur nú og verið hefði fyrir
fimmtíu árum. Hann sagði, að
ar væri nú að hruni komnar og
að þessum málum þyrfti að
vinna í framtíðinni með skyn-
semi og góðri skipulagningu.
Halldór Kristjánsson (F) frá
Kirkjubóli, kvaddi sér hljóðs
og sagði að á þessum tímum
væri þjóðfélaginu það hag-
kvæmt að styðja kirkjuna.
Sagði Halldór að kommúnistar
væru sífellt að hampa ka-
þólkska biskupnum Jóni Ara-
syni, sem frelsishetju, ekki
hefði verið um slíkt rætt í
’ sambandi við kaþólskan biskup
í Ungverjalandi, er mjög hefði
komið við sögu í fréttum fyrir
nokkrum árum.
Gunnar Gíslason (S), sagði,
að í fyrra hefði Þjóðviljinn
talið Einar einn helzta forsvars
mann Krists á íslandi, hefðu
þau ummæli verið viðhöfð í
.sambdndi við sölu kristfjár-
jarðar er til umræðu var á Al-
þingi. Trúlega hefði Einari
mislíkað þes<íi ummæli blaðs-
ins, því síðan hefði hann aldrei
sett sig úr færi með að ráð-
ast á kirkjuna. Lík’ega væri
þó Einar sömu skoðunar og frú
Furtseva, að kristindómur og
kommúnismi ættu ekki sam-
leið. Benti hann síðan á að
byggipg kirkna hefði aldrei
staðið í vegi fyrir að byggð
væru sjúkrahús eða barnaheim
ili heldur þvert á móti rutt
brautina fyrir slíkum fram-
kvæmdum.
Einar Olgeirsson (K) sagði,
að þessi ummæli Þjóðviljans
hefðu aðeins verið skemmtilegt
grin, en engu að síður kvaðst
hann telja sér heiður að því
að vera kenndur við slíkt. Ein
ar sagðist líta á Jesú frá Naza
ret, sem byltingarmann, er boð
að hefði boðskap, sem hefði
verið í algjörri andstöðu við
ríkjandi þjóðskipulag, er hann
var uppi.
Er Einar hafði lokið máli
sínu var umræðu frestað og
málið tekið út af dagskrá.
VARAWriMENN
TAKA SAm
Tveir varþingmenn hafa nú
tekið sæti á Alþingi. ‘Óskar
Jónsson (F) sem áður hefur
setið á þingi í vetur kemur
nú í stað Björns Fr. Bjömsson-
ar, sem hverfur heim í hérað
vegna embætfisanna.
Þá hefur Ásgeir Pétursson,
(S) sýslumaður tekið sæti S»g-
urðar Ágústssonar, en Sigurð-
ur slasaðist í bílslysi nú um
Jláskana. Ásgeir hefup e’^’-i
áður setið á þingi og undirrit-
aði hann því eiðstaf að stjórn-
arskránni.
Bifreiðar
f ramh. at 1. sfðn
í skýrslunni kémur ýmislegt at-
hyglisvert fram, sem of langt yrði
að fara út í hér, en geta má
þess, að einn Alfa Romeo er til í
landinu, ennfremur einn af hverri
þessara eldgömlu tegunda: Er-
skina, Essex, Graham Page, Hup-
mobile, Marmon, Marquette o. fl.
Ennfremur má geta þess, að einn
Porche bíll er til, einn Sunbeam,
einn Volvo jeppi og fleira er til f
einu eintaki.
Aukningin á vörubílaeigninni
liefur orðið tiltölulega miklu
minni, en þó hefúr hún aukizt úr
4685 bílum 1954 í 6476 1963. Hins
vegar hefur fjölgun þeirra bif-
reiða ekki verið eins jöfn og fólks-
bifreiðanna. Þeim fjölgaði t. d. um
12 árið 1957-58, eða 0.2%, en ura
156 (2.8%) árið 1958-59, um 223
(3.9%) 1959-60, um 169 (2.9%)
1960-61, um 80 (1.3%) 1961-1962
og um 201 (3.2%) 1962-63.
Af vörubifreiðum eru 107 teg-
undir (104 árið áður) og eru flest-
ir þeirra af Chevrolet-gerð eða
1394 (21.5%), þá Ford 1211
(18,7%), Dodge 460, Bedford 375,
Volvo 375, Mercedes-Benz 309,
Austin 292, Volkswagen 248, GMC
189, International 183, en næstu
tíu gerðir eru: Fordson, Skoda,
Scania-Vabis, Opel, Renault, Ger-
ant, Reo Studebaker, Henschel,
Studebaker og Fargo.
Loks má geta þess, að af lang-
ferðavögnum, þ. e. fólksflutninga-
bílum með fleiri en 8 sætum, eru
fæstir af Mercedes-Benz gerð eða
96, þá koma Volvo 65, Ford 55,
Dodge 48, Scania-Vabis 27, Chev-
rolet 25, Land Rover 22, Reo 10, In
ternational 9 og Bedford 8.
I
a%iW%M4l%Ma%%%%%M%MWWftMW%Wt%i*M%aW%MW%%%%%%%W%M»IMifW4»4WM%%%%%1%%%M%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%mmww
Trabant
~ Framh. af 1 síðu
kaup öll að ganga til baka vegna
þess að tollayfirvöld liér neita að
samþykkja innflutning á þeim.
Það gera þau á þeim forsendum
að i stað afturrúðanna er felld stál
plata í gluggann og þétt með gúm-
kanti. Þannig hafa bílarnir veriS
fluttir til hinna Norðurlandanna
athugasemdalaust. Nú segja tolla-
yfirvöldin að svo auðvelt sé að
taka stálplötuna úr og setja rúðu
í staðinn, að menn myndu e. t. v.
ekki standast freistinguna. Hins
ber að geta að bílarnir yrðu tryggi
lega auðkenndir sem sendiferða-
bílar og því auðvelt fyrir yfirvöld-
in að fylgjast með, ef breytt yrði.
Svo starfar bifreiðaeftirlit í land
inu, þar sem allir bílar eru skráð-
ir og verða að koma til skoðunar
árlega.
CIRKUS
ABARETT
1
í Háskólabíói 3. - 10. apríl
j \ Heimsfræg skemmtiatriði frá þekktustu fjölleikahúsmn heimsins t. d. The ED Sullivan
L/ Show. N.Y., Cirkus Schmnann, Tivoli, Cirkus Moreno, Lorry o. fl.
Stórkostlegasta og fjölbreyffasia skemmtun ársieis!
Forsala aðgöngumiða í Háskóiabíói og hjá Lárusi Blöndal, Skólavörðustíg og í Vesturivieri, er bafin.
, Munið að sýningar CIRKUS — KABARETTSINS standa aðeins eina viku.
Lúðraslveit Reytkjavík-ur.
4 2. apríl 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ