Alþýðublaðið - 02.04.1964, Side 5
i
Nýlega fór fyrsti hópur flugvélstjóra frá Loftleiðum áleiðis til Montreal í Canada, þar sein hann
Jjjálfun í meðferð hinna nýju CL-44 flugvéla Loftleiða. — Þeir eru talið frá vinstri: Gerhard
Aðalmundur Maguússon, Jón H. Júlíusson, Halldór Guðmundsson, Alfreð Ólsen, ítagnar ÞorkeLsson
Sigurður Ingólfsson.
Fallegur staour
í Mývatnssveit
eftir Jónas Jónsson frá Hriflu
Á KÁLFASTRÖND í Mývatns-
sveit er mikil náttúrufegurð. Guð-
mundur Friðjónsson ságði um alda
mótin, að á kiettum þeirrar jarð-
ar vildi hann reisa þann háskóia,
sem menn dreymdu þá um, en
ekki var korninn.
Þegar Héðinn Valdimarsson var
ungur verkamannaleiðtogi í Reykja
vík, varð hann hrifinn af þess-
ari jörð og keypti dálítinn hluta
af býlinu og það nokkuð af því
fegursta. Þar eru hamrar og gjár,
grasi vaxnir liöfðar og hin feg-
ursti gróður. Á þessum hluta Kálfa
strandar byggði Héðinn hið snotr-
asta sumarhús, og þangað kom
hann ofc á sumrin með fjölskyldu
Kinni, meðan dagar entust. Síðan
hefur ekkja hans, frú Guðrún Páls
dóttir, varðveitt þessa eign með
m.ikilli nákvæmni og umliyggju.
Hún hélt áfram þeirri venju, sem
Héðinn hafði upp tekið þegar
hann keypti landið, að hafa þar
garðyrkjumann við fegrun stað-
arins mikinn hluta sumars. Er nú
svo komið, að þetta býli er orðið
aðdáunarefni flestra smekkgóðra
"htia.
> f
w
I
l9j& í síitiz ,
1
2
re^ 1
i manna, sem koma til Mývatnssveit
ar. Ferðamenn koma oft fyrst í
Slútnes, þá í Dimmuborgir og
heimsækja síðan Héðinshöfða, það
: an liggur leið.n út úr byggðinni að
; De.tifossi og Ásbyrgi.
I Nú er svo komið, að nýbýlið á
j Héðinshöfða er sökum náttúru-
! fegurðar og aðgerðar eigendanna
1 með trjárækt og náttúruverndun
orðið einn af þeim stöðum á ís-
l landi, sem hrífa einna mest hugi
! gesta og ferðamanna, sem þangað
koma. Núverandi eigandi, frú Guð
' rún Pálsdótdr, he dur þar heimili
I að sumarlagi og tekur á þeim tíma
þátt í félagslífi þingeyskra og mý-
j vetnskra kvenna, enda stendur hún
vel fyrir sínu búi á þessu fagra ný-
, býli.
Nú vildi svo til í fyrra eða hitti
fyrra, að mannfélaginu yfirsást
s.órlega í skiptum við eigendur
þessarar merku jarðar. Rafmagn
var lagt á marga bæi í Mývatns-
sveit, þar á meðal sveitaheimili
Kálfastrandar. E.ganda Höfða var
boðið að fá rafmagn til sinna
þarfa. Bændaheimilin í sveitinni
hafa greitt 20 þúsund krónur í
heimtaugagjald, en af því að Höfði
var ialinn sumarhús en ekki til
framleiðslu sveitanna, var eigand-
anum gert að greiða 80 þúsund
krónur fyrir heimtaugina. Það var
vitað, að Héðinn Valdimarsson var
efnaður maður, þegar hann féll
frá, en sú staðreynd breytir engu
um þetta mál. Hér átti ekki við
að leggja á þetta heimili einhvers
konar stóreignarskatt. Frú Guð-
rún Pálsdóttir mun ekki hafa kært
þet a ójafnræði og ekki geri ég
það fyrir hennar hönd, heldur af
því, að hér er augljóst ranglæti að
ræða og fremur heimskulega
framkomu.
Við íslendingar eigum fagurt
land, höldum ré.tilega fram kost-
um þess og gerum auk þess margt
til að fegra landið. Mannfélagið
eyðir til þess miklu fé. Tökum
Austurvöll í miðri Reykjavík. Með
langri tilraunastarfsemi tókst
kunnáttumönnum loks fyrir einu
eða tveimur misserum að gera
Austurvöll svo vel úr garði um
öl viðráðanleg fegurðareinkenni,
að borgarbúar viðurkenna það
sjálfir og sjá ekk; eftir því, þó að
þeir hafi orðið að eyða einni eða
tveim múljónum af skattpening-
um sínum til að fegra borgina með
þessu móti. Sama má segja hér í
Reykjavík um iilkostnað við garð
hjá Templaraheimilinu gamla og
hinn stóra skemmtigarð, sem er
fegraður árlega með miklum til-
kostnaði. Þessi framlög eru gerð
af góðum hug og framsýni. Þar
eru launaðir menn að verki
Nú vil ég leyfa mér að skjóta
þessú máli til hinna hæstu yfir-
valda landsins, í sijórn rafmagns-
mála og framkvæmda til að breyta
aðstöðu ferðamanna hér á landi.
Ég fullyrði, að Héðinshöfði sé orð
inn í augum heimamanna og gesta,
sem þangað koma, eftirsóknar-
vert náttúrufyrirbæri. Kemur þar
jafnt til grema hin upprunalega
og breytilega náttúrufegurð stað
arins og aðhlynning eigenda og
kunnáttumanna sem þar hafa unn
ið. í því efni er ekkert fordæmi
um árangur í görðum annarra ein
stakra manna hér á landi, sem eru
jafnframc látnir vera opnir ferða
mönnum innlendum og erlendum
án endurgjalds. Það er vitað, að
ríkið eyð,r nú miklu fé árlega til
að opna landið og fegurð þess fyr-
ir skemmtiferðamönnum. Þesri til
kostnaður þykir sjálfsagður og ó-
hjákvæmanlegur en einstakir
menn leggja á þeim vettvangi frem
Frh. á 10. síðu.
I FLÓTTAMANNAVANDA-
I MÁL í PAKISTAN
[ Af vandamálum þeim, sem ind inn hékk á hári, beindust einn
vcrska stjómin á við að etja um ig gegn stjórninni, sem hafði
þessar mundir, er flóttamanna-
straumurinn frá Austur-Pakist-
an mest aðkallandi. Vandræði
þessi hófust þegar hárlokkur,
= sem sagður er hafa tilheyrt
= spámanninum Múhameð, hvarf
i um stundarsakir í höfuðborg
í Kasmír, Srínagar, um áramót
I in. Mál þetta leiddi til mikilla
Í mótmælaaðgerða af hálfu Mú-
| hameðstrúarmanna, sem eru i
| yfirgnæfandi meirihluta í Kas-
Í mír, en þó kom ekki til ofbeld-
= . isverka svo teljandi sé. Hins
i vegar brauzt andúðin á Ind-
Í verjum í Austur-Pakistan
1 (Austur-Bengal) fram á yfir-
| borðið og hin fjölmennu þjóð-
| arbrot, sem þar búa, voru beitt
i ofbeldi.
í indverska fylkinu Vestur-
I Bengal, einkum í milljónaborg-
= inni Kalkútta, var þessu svar-
I að með árásum á Múhameðstrú-
| armenn. Óeirðirnar scóðu að-
1 eins í nokkra daga, enda skarst
I indverska lögreglan í leikinn
= með harðri hendi og ró og
Í spekt ríkti í nokkra mánuði unz
i til árekstra kom á nýjan leik
Í um miðjan síðasta mánuð í
i stálbæjunum Jomshedpur og
| Rourkela.
I *** FLÓTTAMENN
[ í Austur-Pakistan hafa of-
I sóknir ha’.dið áfram gegn þjóð
= arbrotunum. Flóttamenn hafa
I streymt til Indlands og hafa
= þeir skilið eftir allar eigur sín
| ar og hugsað um það eitt að
'j bjarga lífinu.
Flóttamennirnir eru ekki
= Hindúar einvörðungu. Töluverð
I ur hluti hinna 125 þúsund
= flóttamanna, sem komu þrjár
i fyrstu vikurnar í marz, eru
I kristnir. Indversku stjórninni
i ber skyldn til að aðstoða þá,
! en það er einnig miklum vand-
[ kvæðum bundið.
[ Enn fer víðs fjarri, að öll-
[ um flóttamönnunum frá 1947
I — þegar Indlandsskaga var
| skiþt í Indland og Pakistan og
= milljónir flúðu í báðar áttir —
= hafi verið komið fyrir. Mjög erf
i itt er að útvega fólki þessu jarð
= næði, sem mikill skortur er á
= í Indlandi, og sömu sögu er að
Í segja um atvinnumöguleika og
i peninga — ekki sízt vegna þess
= að fyrir eru á Indlandi milljón-
i ir atvinnulausra manna og ann
| arra, sem ekki hafa næga at-
Í vinnu.
í *** IIEIÐARLEG
5 KASMÍRSTJÓRN?
[ í Kasmír sjálfu, þar sem hin-
| ir hörmulegu atburðir hófust,
= hafa á meðan orðið stjórnar-
I skipti, og cr það í annað skipti
[ á tæpu ári að ný stjórn tekur
1 við völdum í fylkinu. Mótmæla
i aðgerðirnar, þegar dei’t var
| um spámannsins hár og friður-
74;iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiíiiiiiiiiiii>iiii>iii *i,,,miii m
orðið mjög óvinsæl vegna dug-
leysis og spillingar.
Indverska sambandsstjórnin
varð að skerast í leikinn. Lal
Bahdur Shastri, ráðherxa án
ráðuneytis, sem hefur nánast
starfað sem forsæúsráðherra
síðan Nehru veiktist í janúar,
taldi stjórnurflokkinn (,,Kas-
mírska þjóðarþingið") á að
skipa nýjan stjórnarleiðtoga,
G. M. Sadiq.
Sadiq hefur orð fyrir að vera
heiðarlegur, og vonir þær, sem
við hann eru bundnar, eru á
þá lund,. að öfugt við fyrirrenn-
ara sína, Bakshi Ghulam Mo-
hammed og Shamsuddin, muni
hann að minnsta kosti stjórna
hinu hrjáða fylki heiðarlega. í
pólitísku tilliti er hann talinn
SLanda talsvert langt til vinstri
í flokknum.
Hann lét það verða sitt fyrsta
verk að leita eítir nánari stjórn
arskrárlegum tengslum við ind
verska sambandsríkið, þar eð
það mundi gera kleift að út-
vega hæfa indverska embættis-
menn til þess að gera duglitla
stjórn Kasmírs atkvæðameiri.
Á meðan þessu fer fram situr
hetja Kasmírska þjóðarþings-
ins og upphaflegur leiðtogi þess
Sheikh Abdullah, ennþá í fang
elsi, en málaferlunum gegn
honum þokar áleiðis. Það
var hann sem fyrstur átti hug-
myndina að stofnun sjálfstæðs
ríkis í Kasmír, sem hvorki
stæði i tengslum við Pakistan
né Indland, en bæði ríkin
skyldu ábyrgjást sjálfstæði
þess. Síðan þetta var skrifað
hefur honum verið sleppt
.*** SOVÉZKUR
STUÐNINGUR.
Þótt innanríkisvandræði Kas
mírs virðist leyst um stundar-
sakir að minnsta kosti sér Pak-
istan um, að Indverjar sofi ekki
á verðinum. Forsætisráðherra
Kína, Chou En-lai, var nýlega
heiðursgestur Pakistanstjórliar
og hann og Ayub forseti stað-
festu á áberandi hátt einingu
sína og vináttu. Þetta er Ind-
vevjum mikið áhyggjuefni ,
enda eiga þeir í landamæra-
deilum bæði við Kína og Pak-
istan, og éf þessi ríki gripu til
samhæfðra hernaðaraðgerða
gæti það haft hinar hörmuleg
ustu af'eiðingar fyrir öryggi
Indlands.
Indverjar sjá sér til skap-
raunar, að þeir njóta nú hvorki
samúðar Bandaríkjamanna né
Brcta í Kasmír-deilunni, þrátt
fyrir augljós vinahót Pakistana
í garð Kínverja. Ræða brezka
fulltrúans í Kasmír-umræðum
Öryggisráðsins í febrúar vakti
gremju flestra menntaðra
manna á Indlandi, og ræða
bandaríska fulltrúans vakti
næstuin því eins mikla gremju.
í Kasmírdeilunni hafa Rússar
reynzt eini áreiðanlegi stuðn-
ingsmaður Indverja á vettvangi
SÞ, og Indverjar fella sig ekki
við þessa staðreynd. í sam-
ræmi við þessa afstöðu sína
hafa Rússar viðurkennt Kas-
Framh. á 10 síðn
IIIUIUIIIIIIIIIIMIMMMIMIMIIIIIIIIIIIIIMIIIM *••*••*• llllll
>r
I
I
ii
i:
«
I
Mll'**,
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 2. apríl 1964 ^