Alþýðublaðið - 13.06.1964, Side 1
A
MIKLAR BYGGINGAFRAM-
KVÆMDIR I HAGRENNINU
• \ '
Reykjavík, 11. júní — HP
MIKLAR byggingaframkvæmd-
ir feaFu fyrirhugaSar í sumar í
Kópavogi, Garðalireppi og Sel-
tjarnarnesi. í Kópavogi munu nú
vera um 700 íbúðarhús í byggingu
auk allmargra iðnaðarhúsa og op
inberra bygginga. í Garðahreppi
verður sennilega unnið að bygg-
ingu 200—240 húsa á árinu auk
annarra bygginga, og 80—100 í-
búða í Seltjarnarneshreppi.
í Kópavogi munu nú vera í smíð
um rösklega 700 íbúðir á hinum
ýmsu byggingarstigum, en líklegt
má telia, að hafin verði bygging,
um 150 íbúða þar í ár. í vor var
ekki úthlutað nema litlu af lóðum
í Kópavogi, milli 10—20, en £
fyrra var úthlutað mörgum lóð-
um, sem nú eru orðnar byggingar
hæfar, auk þess sem margir erfða
festusamningar hafa runnið út og
lóðir losnað við það. Auk íbúðar
húsabygginga cr nú unnið við þrjú
skólahús í Kópavogi. Það eru ný
bygging Digranesskóla á Digra-
neshálsi, sem byriað var á í fyrra,
en liluti af skólahúsinu er nú
(Framhald á 13. síSu).
-w
Byggingarvöruverzlun KEA í ljósum logum. (Mynd: Sigmar Sævaldsson).
MIKIÐ TJÓN I ELDS
VOÐA Á AKUREYRI
Akureyri, 12. júni. >,
KLUKKAN 18.15 í kvöld kom
upp eldur í bygrgingarvöruverzlun
KEA hér á Akureyri og urðu mikl
ar skemmdir. Húsið varð alelda á
örskammri stundu, en gott veður
var, logn og blíða, og gekk slökkvi
starfið greiðlega. Hafði tekizt að,
slökkva cldinn um klukkan hálf
níu í kvöld.
Byggingarvöruverzlun KEA er
nýlegt, tveggja hæða hús. Er bygg
inarvöruverzlunin til húsa á
neðri hæðinni, en varahlutaverzl-
un uppi. Einnar hæðar viðbygging
er norður af þessu húsi og þar er
Yfirlýsingar frá
Rej’kjavík, 12. júní. —
Alþýðublaðinu bárust i gær yf-
irlýsingar frá tveimur veitinga-
húsum, Klúbbnum og Röðli og
fara þær hér á eftir ásamt atliuga
semd blaðsins.
Vegna forsíðugreinar í Alþýðu-
blaðinu miðvikudaginn 12. júní
1964 viljum vér undirritaðir
starfsmenn Klúbbsins h.f. lýsa því
yfir, að oss er ekki kunnugt um,
að mæling hafi nýlega átt sér
stað á vínmælum veitingahússins
af hálíu löggildingarstofu voga og
mælitækja.
Jafnframt viljum vér taka fram,
að öll mælitæki sem.oss er kunn-
ugt um að notuð eru í veitinga-
húsinu og hafa verið notuð eru
af sömu stærðum og gert er ráð
fyrir í reglugerðum. Þykir oss
því um ómaklega árás að ræða af
hendi greinarhöfundar gegn
Framh. á bls. 4.
timburgeymsla. I þessu húsi kom
eldurinn upp. Húsið var alelda
á svipstundu og stóðu eldtungur
út um gluggana, er slökkviliðið
kom á vettvang. Viðbygging gjör
eyðilagðist, en sjálft húsið tókst
að verja, nema hvað skilrúmið
brann og þakið sviðnaði og
skemmdist af vatni og reyk.
Slökkvistarfið gekk mjög vel
onda veður hið bezta.. Eftir rúm
lega tveggja stunda slökkvistarf
liafði tekizt að ráða niðurlögum
eldsins.
Ekki er enn fullrannsakað hver
upptök eldsins voru, en talið lík
legt að kviknað hafi í hitalími.
Snjór teppir
vegi eystra
1 EKIÐ Á
TVÖ LÖMB
Reykjavík, 11. júhí. — GG.
EKIÐ var á tvö lömb á vegin-
um skammt fyrir austan Þjórs-
árbrú í gærkvöldi. Var annað
þeirra dautt, er að var komið, en
hitt að drepast. Maður á ljósum
Volkswagenbíl kom heim í Þjórs-
ártún og tilkynnti óhapp þetta.
Rannsóknarlögreglan í Reykja-
vik óskar nú eftir að hafa sam-
band við þcnnan mann.
Reykjavík, 12. júní. — HKG.
53 mm. úrkoma mældist á Dala
tanga frá miðvikudagsmorgni til
fimmtudagsmorguns nú í vikunni.
Úrkoman var mest aðfaranótt
fimmtudagsins, mældist 41 mm.
Þá snjóaði talsvert á hálendinu
eystra, fjallvegir teptust, svo að
snjóýta varð að ryðja veginn.
Arnþór Jenson, fréttaritari
blaðsins á Eskifirði, greindi frá
Reykjavík, 12. júní. — GO.
Fáir bátar hafa tilkynnt komu
sina til Raufarhafnar með síld
síðasta sólarhring. Síðan klukkan
4 sl. nótt hafa einungis sex bátar
meldað: Vigri með 1300 mál, Hall
dór Jónsson 1000, Staðafell 800,
Sigrún 1150, Ásbjörn 1300 og Jón
á Stapa 750. Þessir bátar munu
koma eftir um það bil sólarhring
að landi, en veiðisvæðið er nú 170
til 180 mílur NA af Langanesi.
Tveir bátar bíða löndunar: Helga
Björg, með 400 mál og Hamravík
með 900. Nú er gott veður á
Raufarhöfn, að vísu er suðaustan
gola upp við landið, en rjómalogn
á miðnnum.
því í símaviðtali í dag, að krapa-
hríð hefði verið á Eskifirði að-
fararnótt fimmtudagsins og hefði
orðið hvítt alveg niður að sjó. —■
Oddsskarð hefði teppzt í nokkrar
klukkustundir, en ýta hefði brátfc
verið send á vettvang til að ryðja
veginn.
Arnþór sagði, að mönnum hefði
ekki litizt á blikuna, þegar hríð-
in kom, og hefðu margir óttazt,
að norðangarrinn ætlaði að setj-
ast að. Svo varð þó ekki.
í gær var sæmilegasta veður
á Eskifirði, en ekki hlýtt, að þvx
er fréttaritari sagði.
MMMMtMMMMMWtWMHWI
Bænda
spjald-
skrá
Reykjavík, 12. júní. — EG.
Á fundi Stéttarsambauds
bænda, sem nýlega er lokiff,
var meðal annars samþykkt
tillaga um að fela stjórn
sambandsins að gera spjald-
skrá yfir alla bændur á land-
inu. Skal hún vera þannig
gerð, að auðvelt sé að vinna
úr henni alhliða upplýsing-
ar varðandi landbúnaðinn og
afkomu bænda. Þá skal enn-
fremur greint milli þeirra,
sem hafa landbúnað að aðal-
atvinnu og hinna sem hafa
megintekjur sínar annars-
staðar frá.
í tillögunni segir ennfrem-
ur, að reynt skuii með þess-
um hætti að sjá hvaða ' ú-
stærð gefur bezta rekstrar-
afkomu.
■ mmwmmiMMtMtMwwiti
\