Alþýðublaðið - 16.06.1964, Qupperneq 16
Stærsti stúdentahópur
frá Menntaskólanum
Séð yfir s'údentahópiun, er
allir höfðu sett upp hvltu
kollana. I miðið er Kristinn
Ármannsson, rektor. Að baki
Jionum sést fáni M,ennta-
skólans í Reykijavík.
(Mynd: JV.)
itWIMHMHMtMtlMHMilMn
Ekkert
kastað
Keykjavík, 15. júní. — GO.
í DAG hefur enginn bátur kastað
á síldarmiðunum vegna veöurs. —
Margir bátar eru á landieið með
slatta, mest 600 mál (Sæþór ÓF)
og niður í 100 mál. Margir bát-
anna fara. nú á Austf jarðaliafnir
og einnig vestur um til Siglufjarð-
ar. Nokkuð mörg skip bíða lönd-
unar á Kaufarhöfn, en bræðsla
gengur þar af fullum krafti.
í yfirliti Fiskifélags íslands yfir
síldveiðarnar segir, að heildarafl-
inn hafi þann 13. júní s.l. verið
orðinn 154.262 mál og tunnur. Á
sama tíma í fyrra var heildar-
magn á land komið 56.731 mál og
tunnur.
Nú yfir helgina fengu 35 skip
rúm 24.000 mál og var þeim land-
að víðsvegar á hafnir norðan og
austan.
Reykjavík, 15. júní. — GG.
MENNTASKÓLANUM í Reykja-
vík var sagt upp í dag við liátíð-
lega athöín, er vegna þrengsla í
skólahúsinu varð að fara fram í
Háskólabíói. Koma raunar í ljós,’
er athöfnin liófst, að jafnvel hið
stóra samkomuhús rúmaði ekki
MMMVmMtMIHMMMVWWW
Sprengja þeir
sjónvarps-
stöðina?
NOKKURT háreisti er um
sjónvarpsstöðina í Keflavík
þessa daga, og standa þeir
sömu fyrir því og Keflavík-
urgöngu, sem er framundan.
Er ekki laust við, að þeir
muni vera að reyna að vekja
athygli á göngunni og blása
baráttuþreki í væntanlegt
göngufólk, sem mun vera
hvatningar þurfandi.
Ávarpi því til bandaríska
sendilierrans, sem blaðið hef
ur skýrt frá, hefur verið svar
aö. Höfðu margir listamenn
úr ýmsum áttum skrifaö und
ir áskorun um, að ekki væri
sjónvarpað 17. júní. Penfield
sendiherra hefur svarað því
til, að þetta sé mál þeirrar
Frh. á 14. síðu.
(WWWWWWWWWHW
alla þá í sæti, er liana sóttu. í
ræðu sinni gat rektor skólans,
Kristinn Ármannsson, þess, að er
hann tók við rektorsembætti fyrir
rúmum sjö árum, hefðu nemendur
skólans verið 450 aö tölu, en voril
í upphafi nýliðins skólaárs rúm-
lega tvisvar sinnum fleiri eða 903.
Allur þorri þessa stóra nemenda-
Iióps er úr Reykjavík, Hafnarfirði
og Kópavogi, aðeins 54 annars
staðar að af landinu. Hlutfall milli
pilta og stúlkna var þrír á móti
tveimur, 598 piltar og 305 stúlkur.
AIIs starfaði skólinn í 39 bekkjar
deildum í vetur, 21 fyrir hádegi,
en 18 eftir hádegi. 10 bekkjardeild
um var kennt í húsinu Þrúðvang-
ur við Laufásveg, sem skólinn hef
ur á leigu. Rektor gat þess, að von
ir stæðu til, að nýja viðbótarbygg
ingin ofan við ganila skólann yrði
tekin í notkun næsta haust. Enn
mundi þó verða að notast við Þrúð
vang um sinn, þar eð fyrsti áfangi
hins nýja menntaskóla við Litlu-
hlíð yrði ekki tilbúinn fyrr en
haustið 1965. „Leikfimisliús og
samkomusalur við Lækjargötu
verður að bíða eitthvað, því að nýr
skóli er nú mest aðkallandi", sagði
Kristinn Ármannsson.
211 nýstúdentar voru brottskráð
ir frá skólanum í dag, 199 innan
skóla og 12 utan, 112 úr máladeild
og 99 úr stærðfræðideild. Fimm
nýstúdentar hlutu ágætiseinkunn,
93 fengu I. eink., 97 hlutu II. eink.
og 16 hlutu III. einkunn,- Efstur
í stúdentsprófi og jafnframt yfir
alian skólann varð Jakob Yngva-
son með ág. 9,62, Sven Þ. Sigurðs-
son, ág. 9,49, Tómas Tómas-
son, ág. 9,22, Þorvaldur Ólafs-
son, ág. 9,20. og Þorsteinn Þor-
steinsson, ág. 9,07, allir úr stærð-
fræðideild, í máladeild urðu efst-
ir Sigurður Pétursson, I. einkunn
8,90, Brynjólfur Bjarkan, I. eink.
8,75, Gylfi Knudsen, I. eink. 8,66
og Stefán E. Baldursson, I. eink-
unn 8,57.
Við millibekkjapróf fengu þrír
nemendur ágætiseinkunn og varð
efst Borghildur Einarsdóttir með
ág. 9,28, Þorkell Guðbrandsson
fékk ág. 9,20 og Sigrún Helgadótt-
ir ág. 9,09. 638 gengu undir árs-
próf milli bekkja og stóðust 576
þeirra.
17. júní hátíð
í Mosfellssveit
Við skólauppsögn í dag voru
mættir fulltrúar eldri stúdentsár-
ganga. Séra Sigurbjörn Ástvaldur
Gíslason ávarpaði samkomuna, en
hann er einn fimm núlifandi stú-
denta, sem útskrifuðust á fyrri
öld. Sveinn Sigurðsson ritstjóri,
flutti ávarp og gjöf frá fimmtíu
ára stúdentum, Torfi Hjartason,
skattstjóri, talaði fyrir hönd fjöru
tíu ára stúdenta og færði gjöf í
Bræðrasjóð, fyrir 25 ára stúdenta
talaði Jóhannes Bjarnason, verk-
fræðingur, og gáfu þeir skólanum
mikið og gott handbókasafn. Loks
Frh. á 14. síðu.
Reykjavík, 15. júní. — RL.
í ÁR verða í fyrsta sinn hátíða-
höld í Mosfellssveit í tilefni 17.
j^.ií. Iiátíðahöldin, hefjast með
skrúðgöngu frá Ullarnesi kl. 13,30
en lúðrasveit drengja, undir stjórn
Birgis Sveinssonar, kennara, leik
ur fyrir göngunni, en gengið verð
ur að barnaskólanum að Varmá.
Kl. 14, verður útiguðsþjónusta
við skólann og prédikar sóknar-
presturinn, séra Bjarni Sigurðs-
son, á Mosfelli. Kirkjukór Lága-
fellssóknar syngur, undir stjórn
Hjalta Þórðarsonar á Æsustöðum.
Þá flytur Lárus Haildórsson, skóla
'WWWWWWWWWWWWWtWWWIWWWtW
Málið er í
ranhsókn
Reykjavík, 15. júní.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ skýrði frá
því fyrir helgina, að kært hefði
verið til sakadómaraembættis-
ins vegna þess að vín á tveim
veitingahúsum hefði verið van-
mælt í glös gesta.
Sveinn Sæmundsson, yfir-
maður rannsóknarlögreglunnar,
skýrði blaðinu svo frá í dag, að
hann væri að hefja rannsókn
þessa máls. Ilann staðfesti, að
þau veitingahús, sem um væri
að ræða, væru Klúbburinn og
Röðull, eins og Alþýðublaðiö
liefur áður skýrt frá. Hann taldi
þó, að kæran væri frekar á
hendur veitingaþjónum en veit-
ingaliúsunum, enda væru þeir
þjónar nafngreindir í kærunni,
sem afgreitt hefðu glösin, sem
mælt var úr. Sveinn sagðist
annars ekkert geta fullyrt um
hvernig atvinnusambandi þjóna
og veitingamanna væri háttað
í þessum húsum.
e/wwtwwwwtwwwwwwwwwwwwwwi
stjóri, minni dagsins. Karlakór
Kjósverja syngur undir stjórn
Odds Andréssonar, á Hálsi. Ávarp
Fjallkonunnar flytur Arnfríður
Ólafsdóttir, en að því loknu verð-
ur þjóðsöngurinn sunginn af þátt
takendum.
Síðan mun drengjalúðrasveitin
leika, en þarnæst verður hin nýja
sundlaug sveitarinnar forlega
vígð og flytur Jón M. Guðmunds-
son, oddviti, ávarp í því tilefni,
en Klara Klængsdóttir kennari
mun synda vígslusund. Þar á eft-
ir verður sund fjögurra smá-
sveina. Háð verður boðsunds-
keppni stúlkna, en þar keppa Norð
ursveit og Suðursveit, gegn Mos-
felisdal og Reykjahverfi. Að þessu
boðsundi ioknu mun fara fram
mjög spennandi boðsundskeppni
milli Hreppsnefndar og stjómar
ungmennafélagsins og ekki verð-
ur síður spennandi að sjá róðrar-
keppni á flekum, milli bænda og
iðnaðarmanna.
Eftir þessi atriði kemur kaffi-
hlé og verður veitingasala í Hlé-
garðii en þar mun Chris Linde
frá Danmörku, leika og syngja.
Kl. 17 hefst á íþróttavellinum víða
vangshlaup drengja, síðan nagla
boðhlaup starfsstúlkna Hlégarðs
og Álafoss, þá knattspyrnukapp-
leikur milli kvæntra og ókvæntra.
Kynnir verður Malthías Sveins-
son, -sveitarstjóri. Yfirumsjón á
staðnum mun Eyjólfur Magnússon
kennari annast. Kl. 21 hefst svo
dansíeikur í Hlégarði og munu
íeikarárnir Árni Tryggvason og
Klemens Jónsson flytja skemmti-
þátt, en aðgangur er ókeypis.
i
%