Alþýðublaðið - 07.07.1964, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 07.07.1964, Blaðsíða 8
iiiapiiliiiipMi -j :;ííS: : :g:-:xx<í:-:§w ;I|:11|p1i;|í WwmSMmmá ■■■ ' 'lv iiíííiiiiSíífií ........................................................................... iminmmmii........................................................................ iiiiiiiiiiimmiiu imiimirtiiiiiHiiiimiiuuiuiiiiiii ’iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiifiiiim NAUTASTEIK OG JÓRVÍKURBÖÐINGAR ENSKAR húsmæður fá orð fyrir að vera mjög vanafastar í heimilishaldi og 'fara ná- kvæmlega eftir vissum reglum. Eg þekki fjölskyldu í Crof- ton Avenue í Orpigton, sem er fyrir utan London. Húsið er byggt úr rauðum múrsteini og hefur marga reykliáfa. Hugs- ið ykkur tugi af nákvæmlega eins húsum, með jafnstórum görðum umhverfis. Þannig lít- ur Crofton Avenue út. Húsmóðirin hin 33 ára Mar- grét yfirgaf éinkaritarastarf sitt í London, án mikillar storg ar til að gerast húsmóðir í Crofton Orpington. Hún seg- ist sjaldan fara til London í verzlunarerindum. Hér hef ég allt, sem ég þarfnast, segir hún. Á High Street eru þrjár stórverzlanir, þar fæst allt milli himins og jarðar. Svo er Dolcis skóverzlun og barna- fötin kaupi ég hjá Lloyds. Frú Tveir saladréttir Salat ætti að vera sem oft- ast á borðum þar sem það er bæði hollt og ljúffengt. í salöt er hægt að nota allar græn- metistegundir sem til eru í það skiptið. Hér koma tvær uppskrjftir sem þið ættuð að prófa. BLANDAÐ SALAT. 1 salathöfuð, % agúrka, 300 gr. kaldar kartöflur, 4 tómat- ar, 1 laukur. Lögur hrærður úr 4 matsk. olivenolíu, 1 mat- skeið ediki, salti, pipar og V2 teskeið timian. Skerið salatið í ræmur og blandið niðurskorinni gúrku, kartöflum og tómötum saman við, ásamt laukhringjunum. — Hrærið löginn saman og hellið yfir. Látið salatið standa ca. Vz tíma, áður en það er bor- ið fram. Ashford hefur mikið að gera. Hún þarf að hugsa um Mark litla sem er aðeins sex vikna gamall. Helen fjögra ára í köfl- óttum kjól, slaufuskóm og í hvítum hálfsokkum, spyr um fleira en tíu mömmur geta svarað, og enginn veit hverju hin hálfs annars árs Kristófer getur fundið upp á, ef af hon- um er litið. Það er erfitt að fá húshjálp í Orpington. Lík- lega vegna þess, að það er of langt frá London. En Margrét hefur verið svo heppin að fá duglega stúlku fjóra tíma í viku til hjálpar. Allt sem Margrét hefur not fyrir til heimilisins er keyrt heim. Ekki aðeins mjólkin og fiskurinn sem fjölskyldan borð ar á hverjum föstudegi, vegna þess að húsbóndinn er kaþ- ólskur, heldur líka kjöt, græn- meti og aðrar matvörur. Húsið er mjög fallegt, en íbúðin er köld vegna ónógrar upphitunar Aðeins 3% af enskum fjölskyld um hafa ofnhita í hú«um sínum 97% þar á meðal Ashford fjöl skyldan halda sig eingöngu við arin og kolafötu. Þröskuldar og tvöfalt gler í gluggum þekk- ist ekki. Aftur á móti er gegn- umtrekkurinn algengt fyrir- brigði. Mér hefur aldrei orðið eins kalt og þegar ég heimsótti Ash- ford fjölskylduna. Við sátuni fyrir framan arininn og drukk- um sjóðheitt te, til að hlýja1 okkur. Að enskum sið standa sófinn og hægindastóllinn fyr- ir framan arininn. í stofunni er líka píanó og bókaskápur, þar sem Greifinn af Monte Cristo státar við hlið bóka um blóm og garðrækt. En sakni maður blómanna í gluggakistunni, er í staðinn hægt að horfa á gólfteppið, sem er grátt með ljósrauðu og grænu rósamynztri. Stofan gegnir þrem hlut- verkum. Hún er gestastofa, borðstofa og leikherbergi. —■ í einu horninu stendur sjónvarp- ið, í öðru h'tið borð með á- vaxtaskál og gipsstyttu. Það er léttur blær yfir hjónaherberg- inu með breiðu rúmi, klæða- skáp og snyrtiherbergi úr eik. Litla herbergið hans Marks er hitað upp með rafmagnsofni, en í hinum svefnherbergjunum er engin upphitun. Þar er því hvorki kolafata né rafmagns- ofan. Eldhúsið er lítið, það er Framhald á síðu 4 MORGUNROÐI. 1. salathöfuð, 4. appelsínur, 6 tómatar. Lögur úr 2 mat- skeiðum salatolíu og 1 matskeið appelsínusafa. Salt eftir smekk. Breiðið úr salatblöðunum á djúpt fat. Leggið þar á þunnar appelsínusneiðar (skornar þvers) og tómatbita. Hrærið löginn, og hellið yfir salatið. Borið fram með kótel- ettum og öðru steiktu kjöti. Margt er skrýtið I kýrhausnum eins og löngum hefur sann- azt. í sama mund og kvenfólkið vill vera kvenlegt fram í fingur- góma og láta karlmennina ðýrka sig sem hin viðkvæmu fögru blóm, — vilja þessar goðumlíku verur einnjg bregða sér í líki karlmannsins, ef svo ber unjdir. Þær vilja verða hið sterka kyn á öllum vígstöðvum. Meðfylgjandi myndir eru úr frönskum tízkublöðum. Sumar- kjóllinn einn minnir á hina eilífu ungmey, sem gengið hefur um í sólskini sögunnar með rauðan klút um hálsinn — svo lengi sem menn muna. Hinar myndirnar eru af karlkonum nútímans — eins og þær eru í tízkublöðunum, — en eftir er að vita, livorf kvenfólkið finnur ekki eitthvert sigurstranglegl að sníða sér stakk eftir vexti. > 'JtllllllllltllllllllllIHIIHIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIHIIIIIIIHIHItlinilllllllllllIUllIIIllIllltlllllll II M lllllll ll|i IIIIIUIIIIUItlUIUIIIIllHIIIH aHiiiiiiiHiiiiniHiiiniiniHiiininiiiummiimiBöiimriiiHinrtííiHuiiuiuiiiiitni.iimiiiniininininiiiiHiiniiiiiiiiiiiiiíiiiiHiHiuHHiiifuumiuHúiHMiHininiiiiiiiVmnuUimiii 8 7. júlí 1964 —. ALÞÝÐUBLAÐlÐ y

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.