Alþýðublaðið - 14.08.1964, Blaðsíða 2
Bltstjórar: Gylfi Gröndal (át>.) og Benedikt Gröndal. — Fréttastjóri:
/irni Gunnarsson. — Ritstjórnarfulltrúl: Eiður Guðnason. — Símar:
J.4S0O-14903. — Auglýsingasími: 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsiö við
nverfisgötu, Reykjavik. —: Prentsmiðja Alþýðuhlaðsins. — Áskriftargjald
tr. 80.00. — í lausasölu kr. 5.00 eintakið. — Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Tímirtn gleymir
FRAMSÓKNAíRMENN .bera 'vafalaust mikla
umhyggju fyrir skattgreiðendum þessa lands, en
:þó ber Tíminn með sér, að þeir hugsa fyrst og
fremst um að rægja stjórnarflokkana og krækja
: ,sér í atkvæði
Tíminn gengur algerlega framhjá þeirri stað
reynd, áð framsóknaTmenn greiddu á Alþingi at-
: ikvæði með lögunum um tekjuskatt og útsvör, og
i toera því fulla ábyrgð á þeim — ef þeir eru yfir-
leitt ábyrgir gerða sinna.
Tíminn gleymir því, að í nefndaráliti fram-
sóknarmanna um útsvarsfrumvarpjð á Alþingi í
vetur stóð, að samkvæmt frumvarpinu muni út-
: svarsgreiðendum fækka og virðist hið nýja frá-
dráttarkeríi ,;vera til hagræðis fyrir þá, sem hafa
fyrir bammörgum fjölskyldum að sjá.“
T minn sleppir alveg að segja lesendum sín-
'um frá þeirri staðreynd, að framsóknarmenn, sem
stjórna bæjarfélögum, hafa lagt á fólk fullkom-
iega eftir útsvarslögunum og jafnvel meira. Þar
er ekki talað um skattpíningu.
A óllu þessu verður Ijóst, að framsóknar-
anenn iru ekki saklausii englar í þessum efnum
; frekar en öðrum.
Ufanferðir
Al-ÞÝÐUBLAÐIÐ skýrði fyrir nokkrum dögum
svo frá, að til síðustu. mánaðamóta hefðu bankarn
ir selt fólki erlendan gjaldeyri til ferðalaga fyrir
um 106 milljónir króna, en á sama tíma í fyrra var
'þessi upphæð aðeins 70 milljónir. Ýmislegt bætist
við, ;vo að aukino. kostnaður vegna utanferða er
imun meiri en þessar tölur gefa til kynna.
Undanfárin misseri hefur verðlag á íslandi
hækkað meir en í nágrannalöndum. Er ástæða til
að ætla, að fjöldi manns hafi meðal annars farið
utan í verzlunareri'ndum, og smygl virðist aftur
fara vaxandi,
Jafnframt þessari þróun gerist það hér heima,
að innflutningur á hátollavöru hefur reynzt minni
-en áætlað var, og tekjur ríkissjóðs þar með lægri
en til stóð. Ef þessari þróun heldur áfram næstu
imánuði, er rétt að vera við því búinn, að einhver
halli ver'ði á ríkissjóði í staðinn fyrir mörg hundr-
uð milljón króna gróða, sem Tíminn talar statt
og stöðugt um.
Framleiðandi
Slippfélagið
í Reykjavík h.f.
S(mi 10123
HEMPELS
SKIPAMÁLNING: Utanborðs og innan á tré og járn.
TIL IÐNAÐAR: Á vinnuvélar, stálgrindaliús, tanka
o.m.fl. — Ryðvarnargrunnar og yfirmálningar alls
konar.
-y^- TIL HÚSA: Grunnmálning, lakkmálning í mörgum lit-
um, utanhússmálning á járn og tré.
( PLASTMÁLNINC)
UTANHÚSS 0G INNAN
Framtciflandi:
SUppfélagið i Rcyhjavik
UTANHÚSS OG INNAN í MÖRGUM LITUM.
Fersk * Áferðarfalleg * Auðveld í notkun * Ódýr.
Fæst víða um land og í flestum málningarverzlunum
í Reykjavík.
Á. i 1
m
SÖGULEGUR FUNDUR
RÍKISSTJÓRNIN hefur haldið
fund út af skattskránni. Þet.a er
sögulegur viðburður, því að aldrei
fyrr hefur verið haldinn sérstakur
ráðúneytisfundur af tilefni skatt-
skrárinnar. Hvers vegna var það
gert? Til hvers bendir það? Svör-
in liggiia í augum uppi, þó að þau
séu ekki látin fylglja með. Skatt-
skráin er vandræðamál. Útkoman
kemur á óvart, einnig ríkisstjórn-
inni. Hún veit, eins og við vitum
það, að skattskráin birtir ranglæti
að undirrótin að hinum g-ífurlegu
álögum á fjölda manna eru skatt
svik!
MÉR HEFUR ALDREI dottið í
hug, að ríkisstjórnin gæti breytt
niðurstöðum skattskrárinnar. Það
er rétt, sem rikisstjórnin segir, að
í sjálfri framkvæmdinni er farið
löglega að af hálfu þeirra, sem
vinna störf á Skattstofunni, þó að
undanskyldum nokkrum dæmum,
sem munu stafa af mistökum, sem
alltaf geta orðið og verða leiðrétt.
Hins vegar hefur það verið sann
að, og blasir við ó hverri síðu skatt
skrárinnar, að vatnið er eitrað,
sem ausið er úr brunninum.
RÍKISSTJÓRNIN HEFUR TIL-
KYNNT, að lögin sjálf verði endur
skoðuð. Hún lætur það fylgja með
að það verði gert vegna „mikilla
breytinga á launakjörum". Hún
hefðí ekki þurft að nefna svo
sjálfsagðan lilut heldur láta fylgja
þessi orð: „Lögin verða endurskoð
uð vegna augljóss misferlis í fram
tölum“. Ríkisstjórnin vekur at-
hygli á því, að skattalögreglan sé
að taka til starfa.
ÞETTA ER ÞÖRF ÁBENDING.
Menn geta átt á ýmsu von. Gildi
laga liggur ekki allt af í því, að
þeim sé hegnt ,sem brjóta þau, þó
að hegning sé sjálfsögð. Gildi
laga liggur fyrst og fremst í því,
að þegnarnir viti hvaða reglum þeir
eiga að fylgja. Það er aðhaldið
sem' er aðalatriðið. Menn
vita hvað þeir eru að kalla yfir
sig. Ríkisstjórnin er að aðvara
menn.
ÞAÐ ER LÍFSNAUÐSYNLEGT,
að almenningur gleymi ekki aðal-
atriði þessa vandræðamáls, en
skrif Tímans og Þjóðviljans og
svör Morgunblaðsins og Vísis við
þeim skrifum, stefna öll að því, að
draga dulu yfir það .sem hlýtur
að vera mergurinn málsins, að á-
lagningin er óréttlát, svo órétt-
lát, að það nálgast það, að hér sé
ekki framar um réttar-þjóðfélag
að ræða. Og ástæðan fyrir óréttlæt
inu er engin önnur en sú, að hér
eru framin stórkostleg skattsvik
með þeim afleiðingum, að útgjöldi
ríkis- og bæja eru lögð á aðra en
eiga að borga þau.
SKATTSVIKARARNIR ERU ekki.
fáir. Þeir eru margir, „þeir eru i
öllum flokkum." Ekki aðeins fyrir
Framh. á bls. 13
Q 14. ágúst 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ