Alþýðublaðið - 14.08.1964, Síða 3
!
Berlín, 13. ágúst
(\TB - Reuter).
BORGARYFIRVÖLDIN í Vestur-
og Austur-Berlín styrktu í dag lög
íeglulið' sitt mjög verulega vegna
fcess a'ð í dag eru liðin 3 ár frá því
. að múrinn mikli á mörkum borg-
arhlutanna var reistur. Héldu lög-
reglusveitirnar aðallega til við
múrinn. Samtímis lögðu mörg
liundruð Berlínarbúa blónisveiga
við minnismerki um þá er látið
liafa Iífið við tilraunir við að kom-
ast tii Vestur-Beriínar. Lögreglan
i Vestur-Berlín hafði strengileg
boð um að koma í veg fyrir allar
tilraunir til að koma af stað alvar-
legum atburðum. Meðal þeirra, er
, lögðu blómsvciga í dag, var borg-
arstjóri Vestur-Berlínar, \Villy
Brandt, varaborgarstjórinn Hein-
rich Albertz og meðlimir borgar-
stjórnarinnar.
beir reyndu að komast yfir múr-
inn
í dag lét hin kommúniska borgar
stjóm auka mjög lögregluliðið
-ín megin, jafnframt því sem hún
lét koma fyrir nýjum veghindr-
unum svo að Þjóðverjar kæmust
ekki nálægt múrnum þeirra meg-
in. Aðalmálgagn kommúnista-
flokksins segir í forystugrein að
múrinn hafi þegar gert sitt gagn
og réttlætt byggingu sína. Efna-
hagur Austur-Þýzkalands hafi
batnað mikið síðan hann var reist
ír. „Verndarmúrinn veitti okkur
frelsi til að vinna eins og við vild
um og fyrir okkur sjálf”, segir
blaðið.
Stjórnvöld Vestur-Berlínar
mæltust til þess við Vestur-Berlín
arbúa að þeir haldi kyrru fyrir á
heimilum sínum í kvöld kl. 21.00
—22.00. Á að gera það í minningu
dagsins. Öll opinber farartæki
munu ekki ganga þennan tíma.
Talið er að þetta sé gert m. a. til
þess að forðast óró sem mjög hef
ur borið á þennan dag undanfarin
tvö ár. Einnig er talið að þetta sé
gert til að ekki verði spillt fyrir
þeim samningaviðræðum, sem nú
standa yfir milli borgarstjórna
borgarhlutanna um að Vestur-
Berlínarbúar fái að heimsækja
ættingja sína í Austur-Berlín.
í dag flúðu fjórir austur-Þjóð-
verjar yfir landamærin til Vestur-
Þýzkalands. Gerðist það í Neðra-
Saxlandi í morgun. Þá flúði 16
ára stúlka yfir landamærin í nótt.
Við Lubeck kom austurþýzkur
landamæravörður yfir landamær-
in en hann varð fyrir skothrið fé-
laga sinna. Slapp hann þó óskadd-
aður.
Berlínarmúrinn
þriggja ára í gær
Varaborgarstjórinn, Willy
Brandt lagði blómsveiga við minn
ismerkið um hinn 18 ára gamla
Peter Fechter er austur-þýzkir
kommúnistar skutu og létu síðan
blæða til ólífis á gangstéttinni
austan megin hinn 17. ágúst 1962.
Var hann á múrnum er kommún-
istum tókst að skjóta hann. Hrap-
aði hann þá niður á gangstéttina
austan megin og þar var hann lát-
inn blæða til ólífis. Willy Brandt
borgarstjóri lagði blómsveiga að
trékrossunum þrem, er reistir
voru þar sem fjórir Austur-Þjóð-
verjar létu lífið fyrir kúlum aust-
ur-þýzkra landamæravarða, er
Eru hvattir til
uppgjafar nú
Lusaka 13. ágúst
(NTB - Reuter).
ÁHANGENDUR nornarinnar AI-
ice Lenshine, er gefið hefur sig á
vald lögreglunni I Lusaka, hafa
verið hvattir til að láta af hryðju
verkum sínum. Hefur hún og hvatt
fólk sitt til að láta af ölium mót-
þróa við ríkisstjórnina. Jafnframt
Bátar í Eyjum
hættir veiðum
Vestmannaeyjum, 13. ágúst.
ES, GO.
LÍTIL sem engin síldveiði liefur
verið við Vestmannaeyjar síðan
um þjóðhátíð. Bátarnir eru flestir
liaoítir og nokkrir þeir stærstu
farnir austur. Frétzt hefur um síld
í Meðallandsbugt, en ekki feng-
ist staðfest um magn. Einn xog-
bátur fékk stóra og fallega síld í
fiskitroll austur undir söndunum.
Huginn II. mun hafa fengið 500
tunnur þar eys'ra á leiðinni til
Austfiiarða.
15 bátar stunduðu veiðarnar að
staðaldri frá því í maí í vor. Sild-
in hélt sig að mestu við Surt, eða
þar um kring. Hún var mjög smá
og fór nær öll í bræðslu, lítils-
liáttar var sett í frost. Alls mun
bræðslan hafa tekið á móti 185.000
tunnum, en tölur um frystinguna
fengust ekki.
Hér á eftir fer skrá yfir þessa
15 báta og afla þeirra fram að
þessu: Reynir VE 16.282, Ófeigur
II. VE 15.927, Meta VE 13.901,
Kristbjörg VE 13.705, Gullborg
RE 111.847, Halkíon VE 10.777,
Marz VE 10.567, Huginn VE
110.474, Ásgeir RE 9135, Gulltopp-
ur VE 5674, Ófeigur III. 5172,
I Hannes lóðs RE 3737, Leó VE
2224, Kári VE 1901 og Ásgeir
| Torfason ÍS 728 tunnur.
I Ath.: Allt magnið er miðað við
! tunnur.
hefur hernum verið skipað að láta
af öllum árásum sínum á áhang-
endur hennar.
Óöld ofstækisflokksins hófust
með því að rikisstjórnin skipaði
lionum og meðlimum hans að taka
þátt í almennum kosningum, en
kosningaskylda er í landinu. Þessu
neitaði trúflokkurinn og þegar lög-
reglan ætlaði að láta málið til sín
taka fór allt í bál og brand. Hóf
þá trúflokkurlnn aflífun „viUitrú-
armanna” með þeirri afleiðingu að
allt lék á reiðiskjálfi í landinu. —
Alice Lenshina heldur því fram
að hún hafi dáið líkamsdauða
þrisvar sinnum en jafnliarðan hafi
hún risið upp frá dauðum. Segist
liún fá munnleg fyrirmæli frá
Kristi sjálfum.
Nú verður dreifiblaði með á-
varpi og friðarhvöt nornarinnar
varpað úr flugvélum yfir þau
Framhald á síðu 4.
Varðturu við Berlínarmúrinn.
Verkamannaflokk-
urinn oð tapa fylgii
Grivas yfir-
hershöfðingi
Lundúnum, 13. ágúst
(NTB - Reuter).
Skoðanakönnun, er kunngjörð var
í morgun gefur til kynna að
Verkamannaflokkurinn hafi misst
allt það forskot er liann liafði
fram yfir íhaldsflokkinn. Við
skoðanakannanir fram til þessa
hefur Verkamannaflokkurinn
virzt hafa meirihluta, er næmi
alll að 100 sætum í neðri málstof-
unni.
Við ofangreinda skoðanakönn-
un hefur Verkamannaflokkurinn
aðeins 0,6% meirihluta atkvæða
en vegna kjördæmisskipulagsins
þýðir þetta samt sem áður að í-
haldið fengi meirihluta í neðri
málstofunni er næmi 30 sætum.
Nú hefur það 100 sæta meirihluta.
Á það er rækilega bent, að mikilL
fjöldi kjósenda, um það bil 24%,
virðast enn ekki hafa ákveðið
hvorn flokkinn þeir kjósi. Verða
kosningarnar að fara fram innan
i tveggja mánaða hér frá. Enn er
j ekki endanlega ákveðið hvaða
i daga kosið verður.
Aþenu 13. ágúst NTB-Rauter).
HINN fyrrverandi EOKA-foringi
George Grivas hefur verið skipað
ur yfirmaður Þjóðvarnarinnar í
stað George Rarayannis hershöfð
ingja er sagt hefur af sér. Karay
annis kom til Kýpur frá Aþenu
í dag og hélt þegar í stað á fund
Garoufallias varnarmálaráðherra
og aflienti honum afrit af lausnar
beiðni sinni. Hafði hann þá þegar
afhent Makariosi forseta lausnar-
beiðnina. Talið er að hann hafi
sagt af sér vegna þess að hann hafi
verið mótfallinn árásinni á þorp
Kýpur-Tyrkja á dögunum, en þær
árásir leiddu af sér að tyrkneski
flugherinn gerði loftrásir á eyna.
Þá er og sagt af talsmanni Sam-
einuðu þjóðanna að sennilega hafi
Makarios forseti neitað í fyrstu að
taka lausnarbeiðnina til greina.
Grivas hershöfðingi er kunnari en
svo að hann þurfi nokkurrar kynn-
ingar við. Hann stjórnaði neðan-
jarðarstarfseminni gegn Bretum
fyrir fjórum árum síðan. Var þá
einkum beitt skæruliernaði. Er
sjálfstæði eyjarinnar var orðin
staðreynd neitaði hann öllum af-
skiptum af sjálfstæðissamningnum
er kenndur var við London-Zurich.
Afstaða hans var á þessa leið með
Framhald á síðu 4
Uppreisnarmenn
ugga að sér
Elisabethville, 13. ág.
(NTB - Reuter).
Uppreisnarsveitir þær, er
síffan í byrjun júní-mánaðar
liafa haft öll ráð í Alberts-
ville, höfuðborg Norður-Kat
anga, búa sig nú undir að yf-
irgefa bæiifin. Kom þetta
fram í loftskeytum, er í dag
bárust til Elisabetliville, höf-
uðborgarinnar í Suður-Kat-
anga.
(MMtUHMMMMMUtMMtMM
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 14. ágúst 1964 I3