Alþýðublaðið - 14.08.1964, Síða 7
ÁGÚST JÓSEFSSON
Ágúst Jósefsson, prentari |
og fyrrverandi bæjarfulltrúi og
heilbrigðisfulltrúi, er níræður í
dag, 14. ágúst.
I.
Ágúst fæddist að Belgsstöðum
í Innri-Akranesshreppi í Borgar-
fjarðarsýglu 14. ágúst 1874. For-
eldrar hans voru: Guðríður Guð-
mundsdóttir, bónda á Syðri-Kross
um í Staðarsveit, og Josef Helga-
son sjómaður á Akranesi. Helgi,
faðir Jósefs, bóndi á Ytra-Hóli í
Vindhælishreppi, var fæddur að
Sauðanesi í Húnavatnssýslu 25.
ágúst 1801. Jósef fórst ásamt þrem
mönnum öðrum i fiskiróðri frá :
Akranesi 27. febrúar 1879.
Eftir að Ágúst fluttist til Reykja
víkur með móður sinni árið 1880
óttu þau heima að Ofanleiti við
Ingólfsstræti fyrstu dvalarár
þeirra í bænum.
Prentnám hóf Ágúst í ísafoldar-
prentsmiðju 19. nóvember 1890.
Eftir rösklega fjögurra ára nám
þar hélt hann til Kaupmannahafn-
ar í aprílmánuði 1895. Þar starf-
aði hann um tíu ára skeið sam-
fleytt í prentsmiðju S. L. Möllers.
Þegar eftir stofnun prentsmiðj-
unnar Gutenberg árið 1904 fór til-
finnanlega að bera á vinnuafls-
skorti í ísafoldarprentsmiðju. Þó
tókst eiganda þeirrar prentsmiðju
að ná í vinnukraft erlendis frá
með aðstoð sonar síns, Sveins
Björnssonar, og Dansk Typograf-
Forbund. Þannig atvikaðist það, að
í ársbyrjun 1905 kom Ágúst aftur
heim til íslands og hóf starf í ísa-
foldarprentsmiðju. — Samskipa
Ágústi heim til íslands voru þeir
Herbert Sigmundsson og. Stefán
Magnússon prentarar og einn
danskur prentari, Joseph Hansen
að nafni, og voru þeir einnig ráðn
ir til starfa í ísafoldarprentsmiðju.
Eftirlitsmaður frá danska prentara
sambandinu fylgdi þeim félögum
heim til íslands, og gerði hann
samning við prentsmiðju ísafold-
ar (Bjöm Jónsson). Þetta var fyrsti |
verksamningur, sem gerður var
hér á landi milli atvinnurekanda
annars vegar og vinnuþega hins
vegar. Fylgdarmaður þeirra félaga
hét Carl Waldemar Christensen,
og var einn af stjórnendum danska
sambandsins, og talinn mjög fjöl-
gáfaður maður. Stuttu eftir ís-
Iandsförina tók hann að lesa til
stúdentsprófs, en vann þó jafn-
framt að prentstörfum. Síðar varð
hann kandídat í hagfræði. Eftir
að hann fékk þeirri breytingu
framgengt á eftirnafni sínu að
kalla sig Bramsnes, varð hann
kunnur á stjórnmála- og fjármála-
sviði Danmerkur. Var lengi ríkis-
þingsmaður i flokki jafnaðarmanna
og um skeið fjármálaráðherra. —
Loks varð hann aðalbankastjóri
Þjóðbankans danska í meira en tvo
áratugi.
Meðan Ágúst dvaldi í Dan-
mörku, kyntist hann mjög náið bar
áttumálum danskra verka- og iðn-
aðarmanna fyrir bættum lífskjör-
um og kröfugerð þeirra til um-
bóta í húsnæðis- og heilbrigðis-
málum. Það var því ekki að undra,
þótt hann hyrfi fljótt í raðir prent-
arasamtakanna hér á landi, og yrði.
fljótlega einn af ■ forystumönnum
þess félagsskapar, því stut'tu eftir
heimkomuna, eða 8. maí 1905
gekk hann í Hið íslenzka prentará-
félag. Varð hann formaður félags-
ins 1907-1908 og aftur 1911-1912.
Gjaldkeri félagsins var hann 1914,
og formaður Sjúkrasamlags prent-
ara 1915-1918. Auk þess tók hann
verulega virkan þátt í margvísleg-
um störfum hinna ýmsu nefnda
innan félagsins, ekki hvað sízt í
samninganefndum félagsins við
pr entsmið j ueigendur.
Þegar blað Prentarafélagsins,
Prentarinn, hóf göngu sína í febrú
ar 1910, var Ágúst kosinn í fyrstu
ritnefnd blaðsins, ásamt þeim Ein-
ari heitnum Hermannssyni og Hall
grími heitnum Benediktssyni.
Gegndi Ágúst ritnefndarstörfum
við Prentarann í samfleytt þrjú
ár. Skrifaði hann þá margar hvatn-
ingar- og fróðleiksgreinar í Prent-
arann, og drap á mörg nýmæli til
hagsbóta og réttaraukningar til
handa prenturum, t. d. um stytt-
ingu vinnudagsins í átta stundir.
Vafalaust myndi Ágúst hafa ver-
ið meðal stofnenda Hins íslenzka
prentarafélags hefði hann ekki á
því tímabili starfað fjarri fóstur-
jörðu sinni. Tveim árum eftir heim
komuna er hann orðinn formaður
Prentarafélagsins. í hans for-
mannstíð fengu prentarar fyrstu
réttarbót að sumarfríi — þrjá daga
í byrjun ágústmánaðar. Tvímæla-
laust voru þau fríðindi Ágústi mest
að þakka, enda hafði hann þá um
áratugsskeið fylgst vel með áhuga-
málum og kröfum danskra verka-
og iðnaðarmanna, ■ svo sem fyrr
greinir.
Þegar Prentarafélagið varð
tuttugu og fimm ára gaf það út
vandáð minningarrit. Um útgáfu
þess sá Ágúst Jósefsson ásamt
Haraldi heitnum Gunnarssyni
prentara. Rit þetta var hið vand-
aðasta að öllum frágangi. Mikla
vinnu og fyrirhöfn varð að leysa
af höndum við samningu ritsins og
söfnun mynda í það. Var ekkert
sparað til að gera ritið sem bezt úr
garði. Það var prentað á mynda-
pappír. Verk þetta var leyst af
hendi af tveim prentsmiðjum, Gut
enberg og Acta. Annaðist Guten-
berg grunnaprentunina en Acta
tekstaprentunina.
Frá því Ágúst hóf störf að nýju
í ísafoldarprentsmiðju árið 1905
vann hann þar óslitið til 14. októ-
ber 1915, er hann réðst til Félags-
prentsmiðjunnar, þar sem hann
starfaði til 30. júní 1918, er hann
lét af prentstörfum.
Heiðursfélagi Hins íslenzka
prentarafélags hefur hann verið
frá 1957.
II.
Sama ár og Ágúst lét af
prentstörfum (1918) tók hann við
heilbrigðisfulltrúastarfi Reykja-
víkurbæjar, og gegndi því til 31.
júlí 1950.
Ágúst átti lengi sæti í Húsa-
leigunefnd Reykjavíkur, og sömu-
leiðis eitt kjörtímabil í Sáttanefnd
bæjarins.
Hann var sæmdur riddarakrossi
Fálkaorðunnar 1. jan. 1952.
Til þess að drýgja tekjur sínar
og sjá heimili sínu betur farborða,
meðan hann vann að prentstörf-
um tók hann að sér ýmis auka-
störf, sem hægt var að sinna eftir
vinnutíma. Hann var nokkur ár
þulur hjá Leikfélagi Reykjavíkur,
og mörg ár dyravörður við Nýja
Bíó eftir að það hóf starfsemi sína
1912.
Þrátt fyrir þau störf, sem Ágúst
hafði með höndum, gaf hann sér
þó tíma til að vera með í að leysa
ótal mörg önnur verkefni. Hann
var aðal hvatamaðurinn að stofnun
Starfsmannafélags Reykjavíkur-
bæjar. Á tuttugu ára afmælishátíð
félagsins var Ágúst gerður að heið-
ursfélaga þess. Ágúst var einn af
stofnendum Bálfararfélags íslands
og í stjórn þess þar til það var lagt
niður.
Þegar Alþýðubrauðgerðin var
stofnuð var leitað til verkamanna
og iðnaðarmanna um hluttöku
stofnfjár með kaupum á hlutabréf-
um. Alls lögðu rúmlega 200 manns
fé fram í þessu skyni, þar af 19
prentarar, sem mér er kunnugt
um. Þar var Ágúst vitanlega að
verki, og gekk þar fram með sama
dugnaði, er ávallt einkenndi öll
þau störf, sem hann kom nærri.
Ennfremur var Ágúst einn af ell-
efu stofnendum eldra Alþýðu-
blaðsins, sem hóf göngu sína í árs-
byrjun 1906. Auk þess var hann
lengi í Fulltrúaráði verkalýðsfé-
laganna.
III.
Þá skal lítillega rætt um
starfsemi Ágústs fyrir alþýðusam-J
I tökin í bænum og þátttöku iians S
| málefnum bæjaríns.
I Fram til ársins 1910 höfðu engin
! samtök verið meðal verkamaiina 1
| því skyni að bera fram sér^takam
lista við bæjarstjórnarkosningar,
Þá gerðist það, að við bæjarstjórn-
arkosningar 29. janúar 19i0 var
borinn fram sameiginlegur listi frá
Dágsbrún og Landvarnarílokkn-
um. Tveir efstu menn listans von»
Pétur G. Guðmundsson bókbind-
ari og Guðm. Hannesson læknir,
Listin hlaut 315 atkv. og kom að
einum manni, Pétri G. Guðmunds-
syni. Tveim árum siðar, 27. jan.
1912, fóru aftur fram bæjarstjórn-
arkosningar. Þá kom í fyrsta skipii
fram óháður listi alþýðusamtak-
anna, borinn fram af verkamanna-
félaginu Dagsbrún, með Þorvarð't-
Þorvarðarsyni prentsmiðjustjórs*
efstum, en hann var einn af stofn-
endum Prentarafélagsins frá 1897.
Listi Dagsbrúnar hlaut 281 at~.
kvæði og eínn mann kosimi.
Þegar haustfundir hófust í Dags-
brún árið 1915 varð ljóst, að mik-
ill áhugi var ríkjandi fyrir því atP
kjósa fulltrúa úr röðum alþýðu-
samtakanna í bæjarstjóm vicT
næstu kosningar, sem fram átti%
að fara 6. febrúar 1916. Kosín var
nefnd til að undirbúa framboðs-
lista. Þegar kom fram í janúar-
mánuð upplýstist, að einn af þrem
mönnum, sem á íistann voru sett-
ir af nefndinni, reyndist ekki kjör-
gengur þegar til kom. Var þá leit-
að til Ágústs að taka sæti hans »
listanum. Varð það að ráði eftir
nokkurt málþóf við hann. Kjósa
átti fimrn menn í bæjarstjórn. —
Listi alþýðusamtakanna lcit þann-
ig út eftir að fullt samkomulag:
náðist:
Jörundur Brynjólfsson, kennari,
Ágúst Jósefsson, prentari,
Kristján V. Guðmundsson, verkstj
Kosning fór fram á tilscttumí.
tíma, og daginn eftir, 7. febrúar,
voru atkvæði talin. Atkvæðí höfðt*
fallið þannig, að kosnir voru me-JP’
eftirgreindum atkvæðaíjöida:
Jörundur Brynjólfsson 909 atkv.
Ágúst Jósefsson...... 725 atkv.
Jón Þorláksson ....... 586 atkv.
Kristján V. Guðmunds. 548 atkv»
Thor Jensen .......... 501 atkv.
Stuttu síðar hvarf Jörundur yfií*-
í raðir samvinnumanna.
Við bæjarstjórnarkosningu 1924t
var Ágúst efsti maður á lista Al—
þýðuflokksins, og hlaut þá kosn—
ingu til næstu 6 ára með 1722 at—
| kvæðum. Árið 1930 var hann enn £
| efsta sæti á lista flokksins, og þái
I kosinn til f jögurra ára með 386T
' atkvæðum. Að því kjörtímabxll*
I loknu var Ágúst orðinn sextugui-
að aldri og farinn að þreytast s»
hinum endalausu nefnda- og funur*
störfum. Gaf hann því ekki kost t
sér aftur til framboðs fyrír flok - -
inn, enda hafði flokkurinn þá oro -
ið mörgum nýtum mönnum á . 9
skipa.
Ágúst hefur setið á mörgi •*
þingum Alþýðusambandsins, cfí
stundum verið varaforseti þess.
Formaður Dagsbrúnar mörgT
fyrstu árin var Sigurður Sigurðs-
Framhald á 10. síðu
Hann fæddist þennaft dag 1874 og skortir því aðeins einn tug
upp á aldarafmæli. Hann ólst upp við umkomuleysi og fátækt með
móður sinni, en var svo góðum gáfum gæddur og tók í arf svo
mikla mannkosti, að hann hefur verið þjóðfélagsprýði um langan
aldur. Hann lærði heldrimannaiðn ungur og varð prýði stéttar sinnar.
Hann dvaldist erlendis lengi og hreifst af manngildishugsjónum verka-
lýðshreyfingarinnar og jafnaðarstefnunnar og valdist til forystu eftir
heimkomuna og reyndist bjartsýnismaður og mannbótamaður hvar
sem hann mætti til fundar og hvaða starf sem honum var falið að
leysa af hendi. Hann var, ásamt Kjartani Ólafssyni, múrara, fundar-
stjóri á öllum stórfundum Alþýðuflokksins í áratugi og fór þar sam-
an háttvísi, skörungsskapur og réttsýni. Ilann var og er umburðar-
lyndur maður, en á fastmótaða Iífsskoðun og túlkar hana af hrein-
skilni og ákafa. Það er lífsskoðun socialdemokrata. — Hann gengur
enn marga km. á hverjum degi, snyrtimenni, lífsglaður, fróður um
liðna tíð í Reykjavík, eins og bezt sést í bók lians Svipmyndir og
minningar, sem út kom 1959. — Þannig hefur Ágúst Jósefsson prent-
ari, fyrrverandi heilbrigðisfulltrúi, verið alla tíð. — Við félagar hans
hyllum hann í dag og þökkum honum starfið. Börn lians fara með
hann í ferðalag þessa daga.
Vilhj. S. Vilhjálmsson.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 14. ágúst 1964 J