Alþýðublaðið - 01.10.1964, Page 7
^Hiiiiiiiiíiiiiiiiiiiiimtiiiiimiir.i tiir>»»:
fj^fftittrtfmfimmiiiiiiiiiiiiiiii
im iimimiimii
imiiimmmimiiimimiimmimimimtiiiiiiiiiiiiiimiiiiimiiimiiiiiiiiiiiiMiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiii iniiiiiimiiiiiiiimimimiiiiiiMinimmimiiiimmmiiimimiiimiiiiiimm.il n iii ii imiuumi ii iii miimimiiiimimmiiiimmmmiiiiiiifttcnBi
c
1
£
E
5
E
E
5
s
5
UPPREISNIN Á BOUNTY
HÁSKÓLABÍÓ.
„Uppreisnin á Bounty."
Bandarísk mynd gerð
undir stjói'n Lewis Mile-
stone.
Mynd sú, er Háskólabíó sýn-
ir nú, er ekki fyrsta tilraunin
til þess að gera skil í kvik-
mynd sögunni um uppreisnina
á Bounty, sem þeir Charles
Nordoff og James Norman
Hall sömdu á sínum tíma.
Bókin hefur allt til þessa
dags notið mikilla vinsælda, hið
sama er að segja um kvik-
mynd Frank Lloyds frá árun-
um kringum 1930. Mynd sú
þótti mikill kvikmyndaviðburð-
ur og hefur löngum verið tal-
in til hetri kvikmyndavefka.
Lewis Milestone, sem hefur
í blóði sínu arfleifð frá tveim
mestu stórþjóðum veraldar,
Bandaríkjamönnum og Rússum
og tók síðan að sér að bæta enn
um og vinna þrekvirki, sem
færði verk Lloyds í skugganft.
Lewis Milestone er leikstjóri
og hefur gert margar ágætar
myndir. Þekktur er hann að
því að velja sér þau verkefni,
að í þeim gæti mannúðar, sam
úðar með lítilmagnanum og
skammar og haturs á yfirgangi
og ofbeldi.
,, Uppreisnin á Bounty er enn
ein sönnun þessa verkefnavals
Milestones.
Svo þekkt er sagan um Bligh
skipstjóra og stýrimanninn Flet
cher Christian, að ekki er þörf
á því að rekja gang sögunnar
hér, hitt munu væntanlega aliir
sammála um, að ekki er þar að
eins um ævintýrasögn að ræða,
eða ótíndan reyfara, en umtals*
verða skapgerðarskoðun og at-
hugun. á einkennum valds og
valdabeitingar.
Og þá er það myndin.
Sláum þvi strax föstu, að
myndin er „stórmynd“ — að
því leyti að í hana hefur verið
lagt gífurlegt fé — að því leyti
að hvergi hefur verið til spar
að að tæknikunnátta við gerð
hennar fái notið sín. •
Fyrra atriðið er staðreýnd,
en umdeilanlegt, hvort þeim
peningum hefur öllum verið
vél varið — eða til þurftar —
síðara atriðið hefur borið full-
kominn árangur, svo að myndin
er tæknilegt ágætisverk.
Hvað skiptir þá fleira máli?
Það, hvort til skila komizt
sú barátta, sem háð er milii
manntegundanna um borð í
Bounty, hvort til skila komizt
það andrúmsloft, sem henni
hæfir — og mætti að sjálf-
sögðu lengi telja.
Kemur þá til sögunnar sam-
vinna leikara og leikstjóra —
ekki sízt snilli leikst.jórans.
Mér finnst athugun Mileston
es á fantinum Bligh athyglis-
verð. Hann.gerir hann ekki að
einhliða óargadýri, mannlegrar
eigindir hans eru þrátt fyrir
allt ýmsar —og kemur fram í
orðum hans.
Aftur á móti verður þetta til
þess, að átökin milli Christians
og hans verða ekki eins heil-
Framhald á 13. síðu
111111111111111111111111111111111111111111
llllll•l•llll■llllll■ll■l11111111111111iii iii
1111
3
3
1
í
3
3
|
3
%
ii
iiinif
i rm/ppn ppami^v^mD
Rambler Amhassador.
Rambler árgerð 1965
ÞAÐ var vissulega lofsverð framkvæmd hjá borgaryfirvöldum að
breikka Suðurlandsbrautina, en enn skortir þó tilfinnanlega
hrautir yfir götuna þar sem strætisvagnar stanza, éins og til dæmis
á móts við Laugaveg 178, þar sem nær öll byggðin er öðrum megin
við götuna. •
Þessi framkvæmd var orðin mjög aðkallandi og mátti vart drag-
ast lengur.
Önnur framkvæmd, sem allt of lengi hefur setið á hakanum, er
breikkun vegarins upp Elliðaárbrekkuna. Þessi „flöskuháls" “»•
mikils trafala fyrir alla umferð og skapast þarna oft
slysahætta, að ekki sé talað um þær tafir, sem þessi mjói vegarspotti
veldur.
Borgaryfirvöld ættu nú að sjá sóma sinn í að lagfæra þennan
spotta og það sem allra fyrst.
CHEVILLE MALIBU 1965
1965 árgerðir bandarísku bíl-
anna eru nú sem óðast að koma á
markað. Ekki er langt síðan fyrstu
Chevrolet-hílarnir af árgerð 1965
voru sýndir vestra og á næstunni
verða þeir íslendingum til sýnis.
Bandarískir bílaframleiðendur
horfa vongóðir fram á næsta ár
og búast við að það verði algjört
metár bæði hvað snertir fram-
leiðsiu og sölu. Þeir sem í ár eru
að hugsa um að kaupa Chevrolet
geta valið um 44 gerðir af Chevro-
let, Corvair, Corvette, Chevelle,
og Chevy II. Þessar nýju gerðir
voru fyrst sýndar í Bandaríkjun-
um 24. sepember sl.
Ýmsar breytingar hafa orðið á
Framhald á 13. síðu
Nú er komin á markað árgerð
1965 af Rambler Ambassador.
Þetta er stærsti og glæsilegasti
bíllinn, sem American Motors
framleiða í ár. Árgerð 1965 er
rúmlega 25 sentimetrum lengri
en árgerð 1964, ,og nú er í fyrsta
skiptl hægt að fá bílinn opinn.
í ár éb um þrjár mismunandi
gerðir Rambler-bíla að velja, auk
þess sem bílana er hægt að fá
með vélum af ýmsum gerðum og
stærðum. Nöfnin eru þau sömu og
áður, — Ambassador, Classic og
American. Ef allt er talið má
raunar segja, að hægt sé að velja
um 29 mismunandi gerðir bíla frá
American Motors með sjö mis-
munandi vélum.
Ambassadorinn, sem hér birtist
mynd af er óneitanlega glæsileg-
ur bíll. Segja má að hann sé nýr
yzt sem innst og ýmsar veiga-
miklar breytingar hafa átt sér
stað á honum.
Rambler Classic hefur verið
lengdur um fimm þumlunga, sem
Chevelle Malibu 1965.
gérir það að verkum að mun
meira rúm er nú í farangurs-
geynislunni en áður. Alls rúmar
hún nú fimmtán rúmfet, eða rúm-
lega það.
Bæði Ambassador og Classic er
nú hægt að fá með diskahemlum
að framan, og er það óneitanlega
nokkur kostur.
Rambler Ambassador og Rambler Classic er nú hægt að fá njeS
diskabremsuin á framhjólum.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 1. okt. 1964. f