Alþýðublaðið - 01.10.1964, Blaðsíða 9
fndarinnar er kafii, þar sem nefndin svarar öilum heizfu efasemdunum, móf-
\
íáfum og öðru þvíf sem fram hefur komiö varðandi morð Kennedys forsefa.
þennan afhyglisverða kafia í heifd, og gefa Eesendur dæmf sjálfir, hvorf þeir
ni eða öðrum. Þeffa er spennandi íesfur. Hér fer á effir 2. hlufi kaflans.
M MORD KENNEDYS
kom. Við yfirheyrslu lögreglunn-
ar eftir handtöku Oswalds játaði
hann að hafa ferðazt bæði með
strætisvagni og leigubifreið á leið
sinni heim eftir að forsetinn hafði
verið myrtur. Frá Norður-Beckley-
braut hefði Oswald auðveldlega
getað gengið níu tíundu hluta úr
mílu (um 1450 metra) til 10. götu
og Pattonbrautar, þar sem hann
rakst á Tippit.'
Orðrómur: Nákvæmri og ótrú-
lega skýrri lýsingu af Oswald var
útvarpað um lögregluútvarpið í
glumaffur var myrtur meff.
Dallas kl. 12:36 síðdegis 22. nóv-
ember 1963.
Niffurstaða: Útvarpsbækur Dall-
aslögreglunnar og skrifstofu
hreppslögreglu Dallas sýna, að
engri lýsingu á manni grunuðum
um morð Kennedys forseta var
útvarpað fyrr en kl. 12:45 þann
dag. Oswald var ekki nefndur á
nafn í útvarpinu, fyrr en hann
hafði verið handtekinn. Lýsing
híns grunaða manns, sem útvarp-
að var, iíktist Oswald, en skorti
mikilsverð atriði, svo sem augna-
og háralit. Upplýsingar, sem fyrsta
útvarpslýsingin byggðist á, voru
sennilega frá Howard Brennan,
sem sá Oswald í glugganum, er
hann Iileypti af riffilskotunum.
Orffrómur: Oswald hafði ekki
tíma til þeirra ferða, sem honum
er ætlaður frá því hann yfirgaf
Bókageymsluna og þar til hann
rakst á Tippit.
Niffurstaffa: Tímarannsóknir á
öllum hreyfingum Oswalds hafa
staðfest, að hann gat komizt allra
umræddra ferða á þeim tíma, sem
ætlað er.
Orffrómur: Oswald var stöðvað-
ur af lögreglunni um leið og hann
yfirgaf bygginguna, en var leyft
að halda áfram, er hann kvaðst
stax-fa í húsinu.
Niðurstaða: Nefndin hefur ekki
getað fundið neitt vitni, sem sá
Oswald yfirgefa bygginguna.
Þessi orðrómur er sennilega mis-
túlkun á þeirri staðreynd, að
Baker lögreglumaður stöðvaði Os-
wald í matstofunni, áður en hann
yfirgaf húsið, en honum var leyft
að fara ferða sinna eftir að Truly,
vfirmaður Bókageymslunnar, kvað
hann vera starfsmann þar. Lög-
reglan umkringdi ekki húsið fyrr
en nokkrum mínútum eftir að Os-
wald gat komizt út.
Orðrómur: Ökubók leigubif-
reiðastjórans William W. Whaley,
sem ók Oswald til Norður-Beck-
leybrautar, sýnir, að hann steig
inn í bifreiðina kl. 12:30. Þar eð
þetta gerðist alllangt frá þeim
stað, þar sem forsetinn var myrt-
ur, hefði Oswald ekki getað myrt
hann.
Niðurstaffa: Bók Whaleys sýnir
12:30, en hann hefur borið, að
hann hafi ekki verið nákvæmur
í skráningu farþega, sem stigu
inn í bifreið hans og hafi venju-
lega skráð þá á 15 mínútna milli-
bili. Þess vegna hafi Oswald ör-
ugglega stigið í bifreiðina ein-
hverntíma eftir 12:30. Stundum
færði hann ekki í bók sína, fyrr
en þrem eða fjórum ferðum síð-
ar. Strætisvagnsmiðinn, sem
fannst á Oswald, var gefinn út
eftir 12:36 síðdegis. Nefndin hef-
ur komizt að þeirri niðurstöðu,
að Oswald hafi sennilega stigið
inn í leigubifreiðina um 12:47 eða
12:48 síðdegis.
Orffrómur: Fjarlægðin frá Grey-
hound langferðastöðinni í Dallas,
þar sem Oswald steig upp í leigu-
bifreiðina, og Norður-Beckley-
brautar, þar sem hann sennilega
steig út úr henni, er nokkuð yfir
3 mílur (4,8 km.) — eðlilega um
10 míirútna ferð í leigubíl. Vegna
umferðatruflana, sem voru á þess-
um tíma, er ólíklegt, að Whaley
hefði komizt þessa leið á minna
en 15 mínútum. Ein áætlun er
þess efnis, að ferðin hafi tekið
23 mínútur frá Greyhound stöff-
inni til herbergis Oswalds.
Niffurstaffa: Fjárlægðin frá
Greyhound stöðinni á horni Jack-
son og Lamar gatna til númera
500 á Norður-Beckleybraut er 2,5
mílur (4 km.). í raun réttri steig
Oswald út úr bílnum við 700-
blokkina á Norður-Beckley. Fjar-
'lægðin var því styttri en 2,5 míl-
ur. Whaley hefur skýrt nefndinni
svo frá, aff ferðin hafi tekið 6
mínútur. Reynsluferðir, sem starfs
menn nefndarinnar hafa farið við
mjög svipaðar aðstæður og ríktu
22. nóvember, tóku um 5 mínút-
ur og 30 sekúndur. Það tók starfs-
menn nefndarinnar 5 mínútur og
45 sekúndur að ganga frá horni
Beckley og Neelygötu, þar sem
Oswald sennilega yfirgaf bílinn,
til Norður-Beckley 1026.
Orffrómur: Oswald var á leið til
íbúðar Jack Ruby, þegar Tippit
lögreglumaður stöðvaði hann.
Niffurstaffa: Engar upplýsingar
benda til þess, að Oswald og
Ruby hafi þekkzt eða haft neitt
samband með milligöngu þriðja
aðila. Engar upplýsingar benda
til þess, að Oswald hafi vitað,
hvar Ruby bjó. Þess vegna er
hvorki til sönnun þess né er
ástæða til að trúa því, að Oswald
hafi verið á leið til íbúðar Rubys,
þegar Tippit stöðvaði hann.
MORÐ TIPPITS.
Tilgátur um morð Tippits snér-
ust um fullyrðingar þess efnis, að
hann hafi ekki verið á réttum
stað, þegar hann var skotinn, að
hann hafi þekkt manninn, sem
skaut hann og lýsing sjónarvottar
á morðingja hans hafi ekki getað
átt yið Oswald.
Nefndin komst að þeirri nið-
urstöðu, að Tippit hafi án efa
verið á eftirlitsferð á því svæði,
sem honum hafði verið falið í að-
alstöðvum lögreglunnar. Engar
sannanir fundust fyrir því, að Tip-
pit og Oswald hafi þekkzt eða
nokkurn tíma sézt áður. Þeirri
lýsingu á morðingjanum, sem var
eignuð einum sjónarvotti, var af-
neitað af sama sjónarvotti og
hlaut engar undirtektir annarra
sjónarvotta.
Orffrómur: Tippit ók einn í lög-
reglubifreið, enda þótt það væri
föst fyrirskipun lögreglunnar í
Dallas, að tveir menn skyldu á-
vallt vera í slíkum bifreiðum.
Niðurstaffa: Yfirmenn lögregl-
unnar í Dallas upplýstu, að sam-
kvæmt starfsreglum lögreglunnar
yrðu um 80% lögreglumanna á
dagvakt, frá kl. 7 f. h. til kl. 3
(li'ranxbald & 10. síðu).
Enskar og Hollenzkar
Vetrarkápur
Hollenzkar
Rúskinnskápur
í úrvali
K
Kápu- og Dömubúðin
Laugavegi 46.
Gaboon - Gaboon
Höfitm fyrirliggjandi finnskt smáskorið og
blokklímt gaboon. Þykktir 16, 19 og 22 mm.
Stærð 5x10 fet.
Kristján Siggeirsson hf.
Laugavegi 13. — Símar 13879 og 17172.
Fólk vantar. til frystihússtarfa
FISKUR h.f.
Hafnarfirði. — Sími 50-993.
Starfsfólk vanfar
Flakara og pökkunarstúlkur vantar í frysti-
húsið Hvammur, Kópavogi. Upplýsingar
í síma 41868 og 36286.
Atvinna
Fólk óskast til iverksmiðjuvinnu nú þegar.
Yfirvinna —.
Ekki unnið á laugardögum.
Hf. Hampiðjan
Stakkholti 4. — Sími 11600.
Handlaginn maöur
óskast til framtíðarstarfa í sælgætisverk-
smiðju. — Sími 34350.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 1. okt. 1964 9