Alþýðublaðið - 01.10.1964, Blaðsíða 11
Frá ífctróttaþingi ISI:
TILLAGA SAMÞYKKT UM
STOFNUN GLlMUSAMBANDS
Nokkrum tillögum Iþróttaþings
var vísað til íþróttanefndar og þær
voru samþykktar einróma, nema
800 komu
til Tokyo
i gær
Tokyo, 30. sept.
(NTB - Reuter)
I DAG komu 800 þatttakend
ur ogr fararstjorar til Tokyo,
það voru bandanskir, russn-
eskir, brezkir, hollenzkir og
kubanskir iþrottamenn. —
Bandaríkjamennirnir
voru
159 og þar á meðal voru
nokkrir heimsmethafar eins
og Bob Hayes, Henry Carr
og Ralph Boston. I lið Russa
voru 190 og frá Kuba komu
45, þ. a m. menntamalarað-
herra landsms.
tillagan um að myndað verði sér-
samband fyrir íslenzka glímu, einn
greiddi atkvæði á móti. Hér koma
tillögurnar:
Frá framkvæmdastjórn ÍSÍ
f
íþróttaþing ÍSÍ 1964, heimilar
framkvæmdastjórn að hefja undir-
búning að því að koma upp æfinga-
og nómskeiðabúðum fyrir íþrótta-
samtökin.
íþróttaþing 1964 telur að sú
þróun sé eðlileg, að sérsamband
verði myndað fyrir íslenzka glímu.
Fyrir því felur þingið framkvæmda
stjórn ÍSÍ að vinna að undirbún-
ingi og stofnun sérsambands í
glímu, á þessu hausti.
íþróttaþing ÍSÍ 1964, lýsir yfir
eindregnum stuðningi við tillögur
þær um uppbyggingu íþróttamann
virkja, er nefnd sú hefur samið, er
menntamálaráðherra skipaði á sl.
ári, til þess að athuga fjármál og
framkvæmdir íþróttasjóðs.
Frá íþróttanefnd.
íþróttaþing ÍSÍ 1964, fagnar þeim
framkvæmdum, sem í sumar hefur
verið unnið að við íþróttakennara
skóla íslands að Laugarvatni.
Jafnframt beinir þingið þeim til-
mælum til menntamálaráðherra,
að hann hlutist til um að gerð
verði fimm ára áætlun um upp
byggingu íþróttakennaraskóla ís-
lands.
Frá íþróttamerkjanefnd.
íþróttaþing haldið í Reykjavík
dagana 19. og 20. sept. 1964, sam-
þykkir:
1. Hafin skuli keppni um íþrótta
merki ÍSÍ fyrir konur.
, 2. Aldurstakmark verði lækk-
að úr 16 árum í 14 ár.
Frá Þorsteini Einarssyni.
íþróttaþing ÍSÍ haldið 19. og 20.
september 1964, samþykkir að
beina þeim tilmælum til háttvirts
menntamálaráðuneytis, að húsa-
kynni til íþróttaiðkana séu reist
við hvern nýjan skóla jafn
snemma og fyrsti áfangi viðkom-
andi skóla.
Gunnar Gren er einn þekktasti
leikmaður sænskrar knattspyrnu
fyrr og síðar. Áffur en hann yfir-
gaf Svíþjóff og: hóf aff leika meff
erlendum atvinnuliffum, lék hann
meff GAIS. Félag hans er nú í
mikilli fallhættu og þessvegna tók
Gren hinn gamla keppnisbúning
sinn úr skápnum og lék meff GAIS
gegn Degerfors sl. sunnudag. De-
gerfors vann leikinn 3-2, en Gren
getur veriff ánægffur þrátt fyrir
Frh. á 13. síffu.
Pólsku olympíukeppendurnir nota búningana, sem þiff sjáiff á mymdl
inni í frístundum.
Valur sigraði í
haustmóti 2 fl.
Handknattleiks-
æfingar hefjast
í dag
í DAG hefjast handknatt-
leiksæfingar Reykjavíkurfé-
' laganna aff Hálogalandi og
öffrum íþróttahúsum borgar-
innar en í októbermánuði
hefst einnig fyrsta mótiff,
Reykjayíkurmótiff. Haust-
heimsóknin aff þessu sinni er
frá Danmörku, en þá eru
væntanlegir Danmerkur-
meistararnir, AJAX. - Mynd-
in er tekin í KB-höllinni j
Kaupmannahöfn og er frá
leik HG og AGF. Tveir varn
arleikinenn HG hindra Thor
kild Rydahl og AGF fær víta
kast.
VALUR sigraði KR í úrslitaleik á
haustmóti 2. fl. á þriðjudags-
kvöldið var með 3:2. Leikurinn fór
fram á Melavellinum, og var bæði
jafn og fjörugur. — Valsmenn
skoruðu fyrst, fljótlega. Það var
Bergsveinn Alfonsson h. innh.,
sem fyrstur Valsmanna sendi bolt-
ann í KR-netið, nokkru síðar jafn-
aði v. innherji KR, Ragnar Þór-
hallsson. Enn taka Valsmenn for-
ystuna, er v. lith. Halldór Einars-
son skorar með fallegu skoti upp-
undir slá, eftir skemmtilegan sam-
leik frá miðju. Enn jafna KR-
ingar og úr vítaspyrnu, sem bar
að með þeim hætti, að h. útverði
Vals, Sigurði Jónssyni mistókst
fráspyrna og hrökk boltinn upp í
aðra hendi hans. Var hér um ljóst
óviljaverk að ræða, því dómurinn
mjög strangur. Stóðu nú leikar
jafnir og hart barizt á báða bóga,
og sótt og varizt af ofurkappi. Er
um 15 mín. voru eftir af leiknum
kom sigurmark Vals, með föstu
skoti v. innherjans, Gunnsteins
* Skúlasonar, sem markvörðurinn
! missti yfir: sig, en hefði hins vegar
I getað varið með yfirslætti.
Þær mínútur, sem eftir voru,
sótti KR mjög fast, en þrátt fyrir
mikla sókn, tókst Valsmönnum að
hrinda hverju áhlaupi og tryggja
endanlegan sigur í mótinu,
All skuggsýnt var orðið undjr
lokin, og máttu bæði áhorfendur,
en þó einkum leikmennirnir hafa
sig alla við, að fylgjast með knetþ
inum.
Dómari var Baldur Þórðarson.
EB
wwwmwwwwwwwwmww
Heimsmets-
jöfnun
Vancouver, 30. september
(NTB - AFP).
Hin 16 ára gamla Jane Hug-
hes, sem keppir fyrir Kan-
ada á Olympíuleikjunum
jafnaffi heimsmetiff í 880 yds
skriffsundi í dag, þegar hún
synti á 9.57,1 mín á móti í
Vancouver í dag.
»WWWWW%WWWWWWWWWW)
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 1. okt. 1964 IJ,