Alþýðublaðið - 01.10.1964, Side 10
Morð Kennedys...
!;
\
Framhald úr opnu.
e. h„ að starfa einir. Tippit var
einn þeirra, sem falið var að starfa
einn þennan dag.
Orðrómur: Tippit braut fyrir-
skipun, sem hann hafði fengið
daginn áður um að fara ekki út
fyrir það svæði, sem honum var
falið. Þetta svæði átti að vera í
miðborg Dallas í þann mund, sem
hann stöðvaði Oswald.
Niðnrstaða: Athugun á skjölum
varðandi Tippit á lögreglustöð-
inni og skrá um útvarpsskipanir
leiddi í ljós, að eftir morð forset-
ans var Tippit skipað að flytja
sig til Oak Cliff svæðisins til að
vera þar til taks, ef nauðsyn
kerfði.
Orðrómur: Lögreglan hafði ver-
ið kölluð brott af því svæði, þar
sem Tippit fann Oswald.
Niðurstaða: Aðrar lögreglubif-
reiðar voru á Oak Cliff svæðinu
samtímis Tippit. Þær tóku þátt
í leitinni að morðingja Tippits og
handtöku hans.
Orðrómur: Tippit braut reglur
lögreglunnar um að láta aðal-
stöðvar þegar vita í útvarpinu að
hann ætlaði að nema staðar til
að yfirheyra grunaðan mann.
Niðurstaða: Dallaslögreglan
hafði engar réglur eða kröfur um
að lögreglumenn létu vita, þótt
þeir næmu staðar til að yfirheyra
grunaða menn. Þess vegna braut
Tippit engar reglur, er hann lét
hjá líða að láta vita, að hann
ætlaði að stöðva Oswald.
Orðrómur: Tippit hafði ekki
getað þekkt Oswald eftir þeirri
lýsingu, sem gefin var I útvarpi
lögreglunnar.
Niðurstaða: Engin leið er að
komast að, hvort Tippit þekkti
Oswald eftir þeirri lýsingu, sem
útvarpað var. Útvarpsbók Dallas-
lögreglunnar sýnir, að útvarps-
vörður hafi kl. 1:29 tekið eftir
því, að lýsingar á morðingja for-
setans og morðingja Tippits voru
líkar. Það er hugsanlegt, jafnvel
líklegt, að Tippit hafi stöðvað Os-
wald vegna lýsingárinnar í út-
varpi lögreglunnar.
Órðrómur: Tippit og morðingi
hans þekktust. J
Niðurstaða: Rannsóknir hafa
ekki dregið fram neinar sannan-
ir þéss, að Tippit og Oswald hafi
þekkst, hafi nokkru sinni sézt
eða átt nokkra sameiginlega kunn-
ingja. Sjónarvottar að morðinu
sáu engin merki þess, að þeir
hafi þekkzt.
Orðrómur: Frú Helen Markham,
sjónarvottur að morði TippitS,
taldi það hafa gerzt rétt eftir
1:06 síðdegis. Þetta hefði gert
Oswald ókleift að fremja morðið,
þar sem hann hefði ekki haft
tíma til að komast á staðihn svo
snemma.
Niðurstaða: Staðfest jiefur ver-
ið, að Tippit var skotinn um 1:15
eða 1:16 e. h., á grundvelli þess,
að annar sjónarvottur, Domingo
Benavides, kallaði aðalstöðvar upp
í útvarpstæki bifreiðar Tippits.
Orðrómur: Frú Helen Mark-
ham er eini sjónarvottur að morð-
inu.
Niðurstaða: Aðrir sjónarvottar
eru meðal annars Domingo Bena-
vides, sem notaði útvarpstæki
bifreiðar Tippits til að láta út-
varpsvörð lögreglunnar vita um
morðið kl. 1:16, og William
Scoggins, leigubifreiðastjóri, sem
sat í bifreið sinni á liorni 10.
götu og Pattonbrautar. Barbara
Jeanette Davis og Virginia Davis
sáu mann með skammbyssu í
liendi ganga yfir túnblett sinn
þegar eftir að þær heyrðu skotin,
sem drápu Tippit. Maðurinn
tæmdi skothylki úr byssunni og
íor fyrir hornið af 10. götu inn
á Patton. Öll þessi vitni, nema
Benavides, bentu síðan á Oswald
Frú Markham var óviss og ósam-
kvæm í upprifjun á morðtíman-
BRUNATRYGGINGAR
á húsum í smíðum,
véium og áhöldum,
efni og lagerum o.fl.
Heimistpyggíng hentar yður
Heimilistryggingar
Innbús
Vatnsljóns
innbrots
Glerðrygglngar
TRYGGINGAFELAGIÐ HEIMIRf
LINDARGATA 9 REVKJAVlK' SlMI 21260 SlMNEFNI : SURETY
10 1. okt. 1964 — ALÞÝÐUBIAÐIÐ
um í hinum ýmsu yfirlýsingum
og yfirheyrslum.
í hópi manna og töldu hann morð-
ingjann. Benevides taldi ekki, að
hann gæti verið viss um að þekkja
manninn og reyndi því aldrei að
velja hann úr hópi í þeim til-
gangi.
Orðrómur: Frú Markham sagði,
að maðurinn, sem hún sá skjóta
Tippit, hafi verið um þrítugt, lág-
vaxinn, með úfið hár og í hvít-
um jakka. Þar eð þessi lýsing
á ekki við Oswald, getur hann
ekki verið morðinginn.
Niðurstaða: Þegar lagt var mat
á vitnisburð Helen Markham, fór
það ekki fram hjá nefndinni, að
hún hafði verið talin fyrir þeirri
lýsingu, að morðingi Tippits lög-
reglumanns hefði verið lágvaxinn,
þrekinn og með úfið hár, sem get-
ur ekki átt við Oswald. Því hefur
einnig verið haldið fram, að frú
Markham hafi þekkt Oswald úr
hópi manna af fötum meira en
eigin útliti. Þegar Oswald birtist
í hópi manna að viðstaddri frú
Markham, var hann ekki í þeim
jakka, sem hann hafði verið í,
þegar morðið átti sér stað, og frú
Markham hefur sagt, að hún hafi
þekkt hann aðallega af andlitinu. j
Ennfremur hefur frú Markham
lýst yfir, að hún hafi aldrei lýst
manninum sem lágnm, þrekvöxn-
um með úfið hár. Nefndin athug-
aði hljóðritun af símtali, þar sem
frú Markham átti að hafa gefið
slíka lýsingu. Samkvæmt hljóðrij-
uninni staðfesti frú Markham, að
hún hefði örugglega þekkt Oswald
í hópnum, en neitaði því að hafa
lýst honum sem lágvöxnum,
þreknum eða með úfið liár.
Orðrómur: FBI yfirheyrði ann-
an sjónarvott að morði Tippits,
óþekkta konu, en hún var aldrei
kölluð sem vitni fyrir Nefnd
Forsetans um Morð Kennedys.
Þet.ta vitni á að hafa sagt, að
það hafi séð tvo menn taka þátt
í morðinu og hafi þeir hlaupið
hvor í sína átt.
Niðurstaða. Eina konan, sem
nefndin veit til að hafi verið
sjónarvottur að morði Tippits, er
Helen Markham. FBI yfirheyrði
aldrei neina aðra konu, sem sagð-
ist hafa séð morðið, og fékk al-
drei neinar upplýsingar um að slik
kona væri til. Tvær konur, Bar-
bara Jeanette Davis og Virginia
Davis, sáu morðingjann þegar eft-
ir morðið, er hann fór yfir tún-
blett á horni Pattonbrautar og
10. götu, en þær sáu ekki árás-
ina sjálfa. FBI yfirheyrði þær báð-
ar, og þær komu báðar fyrir nefnd
ina. Nefndin hefur engar upplýs-
ingar um önnur vitni en nefnd
hafa verið í skýrslunni.
Orðrómur: Ekkert vitni sá Os-
wald milli þess, sem hann á að
hafa hlaðið byssu sína skammt frá
morðstaðnum og. að hann birtist
við skóbúð á JeffersonbraUt.
Niðurstaða: Sex vitni þekktu
Oswald aftur sem manninn, er
flúði eftir morð Tippits. Ted Gall-
awaý og Sam Guinyard sáu morð-
ingjann með byssu í hendinni á
Pattonsbraut milli 10. götu og
Jeffersonbrautar eftir að Tippit
hafði verið skotinn. Þeir sáu hann
hlaupa að Jeffersonbraut og
beygja til hægri. Að kvöldi 22.
nóvember þekktu Callaway og
Guinyard Oswald úr hópi manna
og kváðu hann vera þann, er þeir
sáu með byssu. Tveir aðrir menn,
Warren Reynolds og Pat Patter-
son, sáu mann með skammbyssu
í hendi hlaupa suður eftir Patt-
onsbraut. Þeir eltu hann götu-
lengd á Jeffersonbraut en misstu
sjónar af honum. Báðir þessir
menn staðfestu síðar eftir mynd-
um af Oswald, að hann hefði ver-
ið sá, sem þeir sáu með byssu.
Harold Russel sá einnig mann með
byssu hlaupa suður eftir Patton-
braut og taldi síðar eftir myndum,
að það hefðí verið Oswald. Frú
Mary Broek sá mann, sem hún
síðar taldi vera Oswald, ganga
hratt inn á bílastæði aftan við
benzínstöðina á horni Jefferson
og Crawford, þar sem jakki Os-
walds fannst stuttu síðar.
Orðrómur: Þegar Oswald fór
út úr husinu, þar sem liann leigði
þerbergi, um klukkan eitt eftir
hádegi 22. nóvember, var hann í
brúnum jakka úr ullarefni og með
rennilás.
Niðurstaða: Jakkinn, sem Os-
wald var í, þegar hann myrti Tip-
pit, var ijósgrár. Samkvæmt því,
sem Marina Oswald sagði nefnd-
inni, átti maður hennar aðeins tvo
jakka, einn bláan og annan ljós-
gráán. K'onan, sem átti húsið,
North-Beckley Avenue 1026, frú
Earlene Roberts, var ekki viss um
hvernig jakkinn var á litinn, sem
Oswald var í, þegar hann fór út.
Orðrómur: Oswald var í ólífu-
brúnum jakka, sem sést greinilega
á öllum myndum, sem teknar voru
af honum eftir að hann var hand-
tekinn.
Niðurstaða: Þegar Oswald var
handtekinn var hann ekki í jakka.
Jakkinn, sem síðar fannst á bíla-
stæði og reyndist vera eign Os-
walds, var Ijósgrár. Engin vitni
hafa borið, að Oswald hafi ver-
ið í olífubrúnum jakka rétt áður,
eðá rétt eftir, að hann var hand-
tekinn. Nefndin hefur ekki séð
neinar myndir af Oswald, sem
teknar voru eftir handtöku hans,
þar sem hann er í slíkum jakka.
Myndir. sem téknar eru skömmu
eftir, að hann var handtekinn.
sýria, að hann er í skyrtu eins og
þeirri, sem frú Bledsoe sagði
hann vera í, þegar hún sá hann
í strætisvagninum um klukkan
1:40 eftir eftir hádegi.
Orðrómur: Konan, sem Oswald
leigði hjá, frú A. C. Johnson,
sagði, að Óswald hefði aldrei haft
byssu í herbergi sínu.
Niðurstaða: Frú A. C. Johnson
sagði, er nefndin ræddi við hana,
að „hann hefði aldrei komið með
riffil inn í hús mitt. Hann gæti
liafa verið með skammbyssu, um
það veit ég ekki, en þeir fundu
byssuslíður.” Eins og sagt var í
fjórða kafla, geymdi Oswald riff-
il sinn í bílskúr Paine fjölskyld-
unnar í Irving, meðan hann átti
heima í Dallas í október og nóv-
ember. Skammbyssan var lítil og
auðvelt að fela hana.
Orðrómur: Oswald gat hvergi
faíi'ð byssu í herbergi sínu í hús-
inu númer 1026 við North Beck-
ley Avénue.
Niðurstaða: Þegar leitað var í
herbergi Oswalds eftir, að hann
var handtekinri, fann lögréglan
byssusííður. Konan, sem Oswald
leigði hjá, frú A. C. Johnson, vott-
aði að hún hefði ekki séð slíðrið
áður. Ekki er nein ástæða til að
ætla, að Oswald hafi ekki getað
falið bæði byssuna og slíðrið í
herbergi sínu. Byssa Oswalds var
lítil og sagað var framan af hlaupi
hennar, svo það var eklci nema
2Vá þumlungar á lengd. Hann
hefði getað falið byssuna í vasa
á fötum af sér.
Orðrómnr: Oswald tók ekki
skammbyssuna, þegar hann kom
í herbergi sitt um eittleytið.
Niðurstaða: Ástæða er til að
ætia, að Oswald hafi tekið byss-
una úr herbergi sínu og senni-
lega falið hana undir jakka sín-
um. Það rennir stoðum undir
þetta að byssuslíðrið fannst í her-
berginu eftir morðið og það gefur
til kynna, að Oswald hafi ekki
geymt skammbyssuna heima hjá
frú Paine, en þar svaf hann nótt-
ina fyrir morðárásina.
Orðrómur: Enginn sá Oswald
fara inn í Texas kvikmsmdahúsið.
Niðurstaða: Johnny C. Brewer,
framkvæmdastjóri skóverzlunar
rétt hjá kvikmyndahúsinu og Jul-
ia Postal miðasölustúlka í kvik-
myndahúsinu, sáu Oswald fara inn
í anddyri kvikmyndahússins og
þaðan inn í sjálfan sýningarsal-
inn.
Orðrómur: Enginn þeirra, sem
staddir voru í kvikmyndahúsinu,
þegar Oswald var handtekinn,
liefui- skýrt frá því, sem fyrir
augu .bar, þegar Oswald var hand-
tekinn.
Niðurstaða: Johnny C. Brewer,
framkvæmdastjóri skóverzlunar-
innar, og tveir kvikmyndalnisgest-
ir, John Gibson og George Jeff-
erson jr. voru í kvikmyndahúsinu
og hafa þeir skýrt nefndinni frá
handtöku Oswalds. Ekki sátu
nema 6-7 manns í sætunum í sal
hússins.
Orðrómur: Ekkert vitni, éf lög-
reglúmönnum er sleppt, hefur
borið, að Oswald liafi verið með
skammbyssu, þegar lögreglan liand
tók hann.
Niðurstaða: Johnny Brewer
skýrði nefndinni svo frá, að hann
hefði séð, að Oswald var með
byssu, þegar lögreglan liandtók
hann.
Soffía Loren
(Framhalcj af 6. síðu).
Aðeins eitt skortir: Á tjörninnl
í hallargarðinum synda ekki leng-
ur svartir svanir eins og í gamla
daga. En Carlo hefur komizt á
snoðir um það, að þótt þeir séu
ófáanlegir á Ítalíu, eru þeir enn
ekki svo sjaldgæfir í Brasilíu og
þangað ætlar hann auðvitað að
fara og sækja svarta svani handa
Soffíu sinni, áður er liun flytur
í höIJína. - Þegar hún svo reikar
um hallargarðinn sinn, - getur hún.
fleygt brauðmolum til svörtu svan-
anna sinna eins og liallarfrúr lið-
inna alda gerðu.